Árbók Háskóla Íslands - 01.02.1950, Síða 8
6
ar, og meðal bygginga þeirra, er þörf verður að reisa á næsta
áratug, er náttúrugripasafn ríkisins, er háskólinn hefur tekið
að sér að koma upp, sundlaug fyrir stúdenta, nýr stúdenta-
garður og sérstakt samkomuhús fyrir mötuneyti og allt félags-
líf stúdenta. Er Náttúrugripasafnsbyggingin næsta mál há-
skólans, er reynt verður að koma í framkvæmd, þegar lokið
verður við lögun lóðarinnar. Er til þess ætlazt, að þar verði
ekki aðeins gott safn allra íslenzkra náttúrugripa, heldur einn-
ig rannsóknarstöð í þágu íslenzkra náttúruvisinda, og má telja
höfuðnauðsyn, að ekki dragist lengi, að sérstök náttúruvísinda-
deild verði stofnuð við háskólann, en fyrst verður að reisa
þessa bygging og skapa hin ytri skilyrði til kennslu og rann-
sókna. Þróun háskólans hefur á síðastliðnum árum orðið ör-
ari en nokkurn hefur órað fyrir, sem sést m. a. á því, að tala
stúdenta fer vaxandi með hverju ári, og af þeirri ástæðu verð-
ur nauðsynlegt áður en mörg ár líða að hefjast handa um
að reisa nýjan stúdentagarð og koma upp samkomuhúsi eða
félagsheimili stúdenta.
En allar þessar framkvæmdir, ásamt lögun háskólalóðar-
innar, munu kosta mikið fé, og verður ekki á þessu augnabliki
séð, hvemig þessi fjárhagslegu vandamál verða leyst. Hins
vegar hef ég þá trú, að allar þessar fyrirætlanir verði fram-
kvæmdar, af þeirri ástæðu, að sumum málum er þannig hátt-
að, að leysa verður þau — og mun svo einnig fara hér. Hver
þjóð er einkum metin af afreksverkum á sviði vísinda og lista,
en hin kynborna íslenzka þjóð er að eðli sínu metnaðargjöm
og leitast nú við að sækja örar fram en efni standa til, og
veldur sú viðleitni mörgum áhyggju, hvernig farnast muni
á komandi árum. Peningaflóð stríðsáranna hefur komið losi
á allt þjóðlífið, hér sem annars staðar. Hinar fomu dyggðir,
vinnusemi, nægjusemi og sparsemi virðast á förum, en í stað
þess er komin leti, sívaxandi kröfur um bætt lífskjör, eyðslu-
semi og óhóf. Vinnuafköst manna hafa rýmað að miklum mun,
og á þetta ekki aðeins við verkalýðinn, heldur flestar stéttir
manna, einnig þær, er andleg störf vinna. Það var góður sið-
ur að bæta launakjör kennara og annarra eftir þjónustualdri