Árbók Háskóla Íslands - 01.02.1950, Síða 103
101
3. Rekstrarhagfræði sérgreind, munnlegt próf.
4. Þjóðhagfræði, skriflegt próf.
5. Þjóðhagfræði almenn, munnlegt próf.
6. Þjóðhagfræði hagnýt og fjármálafræði, munnlegt próf.
7. Islenzk haglýsing, munnlegt próf.
8. Lögfræði, munnlegt próf.
9. Bókfærsla almenn, skriflegt próf.
10. Reikningshald, munnlegt próf.
11. Bókfærsla, endurskoðun og skattaskil, skriflegt próf.
12. Tölfræði, skriflegt próf.
13. Viðskiptareikningur, skriflegt próf.
14. Enska, skriflegt og munnlegt próf.
15. Ritgerð um hagfræðileg efni, er hagfræðikennarar
deildarinnar fá stúdentinum til meðferðar í lok fjórða
misseris, er hann stundar nám í viðskiptafræðum í
deildinni.
Stúdentum er heimilt að ganga hvenær sem er á námstíma
sínum undir próf í 3., 7., 8., 9., 10., 12., 13. og 14. prófgrein,
og skulu slík próf að jafnaði haldin að aflokinni yfirferð yfir
hlutaðeigandi námsgrein. Teljast próf þessi til fullnaðarprófs,
þótt ekki séu þau tekin samtímis því. Áður en stúdent tekur
þátt í æfingum í bókfærslu verklegri, endurskoðun og skatta-
skilum, skal hann hafa lokið prófi í almennri bókfærslu og
hlotið a. m. k. einkunnina miður vel.
Áður en stúdent segir sig til fullnaðarprófs, skal hann af-
henda prófritgerð sína vélritaða og leggja fram skilríki um, að
hann hafi tekið þátt í æfingum í eftirtöldum greinum:
1. Rekstrarhagfræði, m. a. haldið eitt erindi og afhent
kennaranum það vélritað.
2. Þjóðhagfræði, m. a. haldið eitt erindi og afhent kenn-
aranum það vélritað.
3. Verklegri bókfærslu, endurskoðun og skattaskilum,
m. a. tekið þátt í a. m. k. 12 verklegum æfingum.
4. Ensku, m. a. leyst úr 25 skriflegum verkefnum.
Nái stúdentinn ekki einkunninni miður vel að meðaltali í
1., 2., 4., 5., 10. og 11. prófgrein, stenzt hann ekki fullnaðar-