Árbók Háskóla Íslands - 01.02.1950, Blaðsíða 109
107
fræðisnám við Háskólann. Lægri styrk en 500 kr.
má ekki veita.
2. Að styrkja vísindalegar rannsóknir eða vísindastarf-
semi, einkum þá, er varðar lögfræðileg efni, íslenzk
náttúruvísindi og heilbrigðismál.
3. Að styrkja útgáfu vísindalegra rita eða vel saminna
alþýðlegra fræðibóka.
Með þessum skilyrðum hefir stjóm Háskólans full um-
ráð yfir sjóðnum og semur skipulagsskrá fyrir hann.
4. Það er vilji minn, að búi mínu verði eigi skipt af skipta-
réttinum, heldur af sérstökum skiptaforstjórum. Nefni ég
til þessa starfa þá Ólaf Lárusson prófessor og Pétur Magn-
ússon hæstaréttarmálaflutningsmann í Reykjavík, og hafa
þeir báðir lofað að taka þetta starf að sér, ef þeir lifa mig.
Til staðfestu erfðaskrá þessari undirrita ég nafn mitt í við-
urvist notarii publici.
Reykjavík, 24. október 1927.
(sign.) Guðmundur Thorsteinsson.
Ár 1927, mánudaginn 24. október, var undirritaður fulltrúi
notarii publici í Reykjavík staddur í húsinu nr. 40 við Njáls-
götu, ásamt notarialvottunum Magnúsi Magnússyni, Stafholti
hér í bænum, og Guðlaugu Árnadóttur, er hér býr. Mætti þá
Guðmundur Thorsteinsson, er býr hér, og ritaði nafn sitt með
fúsum vilja og fullu ráði undir erfðaskrá þessa í viðurvist minni
og notarialvottanna, sem öll þekkjum hann persónulega. Kvað
hann erfðaskrána hafa sinn síðasta vilja að geyma.
Notarius publicus í Reykjavík, d. u. s.
(sign.) Þórður Eyjólfsson
ftr.
Notarialvottar: (L.S.)
(sign.) M. Magnússon
(sign.) Guðlaug Árnadóttir
Ég hef í dag breytt arfleiðslugerningi þeim, sem vísað er til
í 1. gr. arfleiðsluskrár þessarar, á þá leið, að í stað hússins
nr. 40A við Njálsgötu kemur: húsið nr. 12 við Bjarnarstíg.