Árbók Háskóla Íslands - 01.02.1950, Side 111
109
Yfirlit yfir störf stúdentaráðs 1949—50.
Skýrsla formanns.
Skipan ráðsins. Haustið 1949 fóru kosningar til Stúdentaráðs há-
skólans fram laugardaginn 29. október. Úrslit kosninganna urðu þau,
að A-listi, sem borinn var fram af félagi frjálslyndra stúdenta og
stúdentafélagi lýðræðissinnaðra sósíalista fékk 134 atkv., B-listinn,
listi Vöku, félags lýðræðissinnaðra stúdenta, fékk 213 atkv. og C-
listinn, listi félags róttækra stúdenta, fékk 120 atkvæði.
í ráðið völdust því þessir menn:
Af A-lista: Tryggvi Þorsteinsson, stud. med., Björn H. Jónsson,
stud. theol., Hallgrímur Sigurðsson, stud. jur.
Af B-lista: Björn Þorláksson, stud. jur., Halldór Hansen, stud.
med., Baldur Jónsson, stud. mag., Bjami Bjamason, stud. oecon.
Af C-lista: Jón Skaftason, stud. jur., Ingi R. Helgason, stud. jur.
Þegar til stjórnarkjörs kom í ráðinu, komu aðeins fram tveir
listar, listi félags frjálslyndra stúdenta og stúdentafélags lýðræðis-
sinnaðra sósíalista og listi róttækra. Bjöm Þorláksson, stud. jur.,
gerði þá grein fyrir afstöðu Vökumanna, að þegar upphaflega hafi
verið mynduð stjóm í stúdentaráði haustið áður, hefðu Vöku-menn
gert ráð fyrir því, að sú stjóm nyti stuðnings meirihluta ráðsins.
Síðan hefði sú stjóm verið felld. Ýmsir örðugleikar hefðu af því
skapazt, og Vökumenn teldu, að enginn yrði bættari, þó að þeir
örðugleikar endurtækju sig í þessu ráði. Af þeim ástæðum bæm
Vöku-fulltrúamir ekki fram neinn lista til stjórnarkjörs.
Atkvæði við stjómarkjörið féllu þvi þannig, að listi frjálslyndra
og lýðræðissinnaðra sósíalista fékk þrjú atkvæði, listi róttækra tvö
og fjórir seðlar vom auðir. Samkvæmt því varð stjórn ráðsins þann-
ig skipuð: Hallgrímur Sigurðsson, stud. jur., formaður, Tryggvi Þor-
steinsson, stud. med., ritari og Jón Skaftason, stud. jur., gjaldkeri.
Auk þeirra, sem að framan eru greindir og sæti hafa átt í stúd-
entaráði þetta kjörtímabil, hafa þeir Magnús Guðjónsson, stud. jur.,
Ásmundur Pálsson, stud. jur., og Ámi Guðjónsson, stud. jur., tekið
þátt í störfum ráðsins, sérstaklega Magnús, er tók að mestu við
störfum Tryggva Þorsteinssonar nokkru eftir áramót. Björn H. Jóns-
son, stud. theol., gegndi og formannsstörfum í ráðinu frá því í nóv-
embermánuði og fram í byrjun febrúar.
Fundir. Stúdentaráð hefur að jafnaði haldið fundi einu sinni í
viku, á fimmtudögum, en auk þess hafa ráðsmenn til skiptis verið
til viðtals í skrifstofutíma ráðsins, sem var tvisvar í viku, á þriðju-
dögum og fimmtudögum.