Árbók Háskóla Íslands - 01.01.1989, Page 120
118
Árbók Háskóla íslands
Ragnar Sigurðsson hefur unnið að þessu verk-
efni.
Hornrœkin skammtasviösfrœði
Ýmis líkön í skammtasviðsfræði eru óbreytt
gagnvart homræknum vörpunum tfmarúmsins.
Upphaflega var slíkum líkönum einkum ætl-
að að lýsa öreindaferlum við háa orku, en
nýlega hefur áhugi á homrækinni skammta-
sviðsfræði aukist mjög vegna tengsla þeirra
við strengjafræði og við fasabreytingar tvívíðra
kerfa. Ragnheiður Guðmundsdóttir hefur unnið
að þessu verkefni.
KvíslunarfræÖi
Kvíslunarfræði fjallar um ólfnulegar jöfnur,
t.d. deildajöfnur, sem em háðar stikum. Athug-
að er hvemig lausnimar breytast þegar stikam-
ir breytast. Talað er um kvíslun þegar fjöldi
lausnanna breytist, eða mynstur þeirra breyt-
ist með öðmm athyglisverðum hætti. Kvíslun-
arfræði má beita á ýmsa vegu í vísindum og
verkfræði. Robert J. Magnus vinnur að þessu
verkefni.
Línuleg fallagreining
Nálgun á flóknum stærðum með einfald-
ari stærðum er algengt viðfangsefni í stærð-
fræði. Nefna má setningu um nálgun sam-
felldra falla með margliðum. Alhæfingu þeirrar
setningar, hina svokölluðu Stone-Weierstrass-
setningu, má aftur á móti líta á sem sértilvik af
almennum athugunum á því, hvaða föll verka
með samskeytingu á rúm af samfelldum föll-
um. Eggert Briem hefur unnið að þessu verk-
efni.
Slembifletir
Slembifletireru alhæfing á slembigangi, sem
notaður er í líkindafræði, en einnig við lausn
hlutaafleiðujafna og í kennilegri eðlisfræði.
Rannsóknin hefur beinst að almennum eigin-
leikum slembifiata og hvemig unnt sé að velja
á þá mál sem eru nothæf í eðlisfræði. Þórður
Jónsson hefur unnið að þessu verkefni.
Túlkanir á grúpum
í nútímavísindum leiða samhverfulögmál til
athuguna á grúpum og túlkunum þeirra. í túlk-
unarkenningu fyrir tiltekna grúpu G má greina
þrjú meginverkefni: (1) Að flokka allar ókljúf-
anlegar einoka túlkanir grúpunnar G. (2) Að
nota flokkunina úr (1) til að rannsaka stærð-
ffæðigreiningu á rúminu L2(G). (3) Að rann-
saka sérstakar túlkanir sem koma eðlilega upp
í stærðfræði eða öðrum greinum. Mark G. Dav-
idson hefur unnið að þessu verkefni.
VíÖfeðm ólínuleg fallagreining
Markmiðið er að beita aðferðum deildarúm-
fræði á mengi varpana, sem gera má að ólínu-
legri víðáttu, í því skyni að ráða við ólínuleg-
ar hlutafleiðujöfnur og samsvarandi tilfærslu-
heildir. Mörg þessara verkefna eru sprottin af
eðlisfræðilegum og verkfræðilegum spuming-
un. Halldór I. Elíasson hefur unnið að þessu
verkefni.
Virkjaalgebra
Vitneskja um rúmfræðilega eiginleika stöðu-
rúms C*-algebru getur varpað ljósi á óleyst
viðfangsefni á sviði virkjaalgebru. Jón Ragn-
ar Stefánsson hefur unnið að þessu verkefni.
Reynir Axelsson
Líffræöistofnun Háskólans
Líffræðistofnun Háskólans tók til starfa árið
1974.
Hlutverk hennar er:
- Að afla gmndvallarþekkingar í líffræði,
einkum þeim greinum sem kenndar em við
raunvísindadeild Háskóla íslands.
- Að miðla gmndvallarþekkingu í líffræði,
kynna fræðilegar nýjungar og efla rann-
sóknir og kennslu i líffræði á íslandi.
Stofnunin tekur einnig að sér rannsóknir á
hagnýtum sviðum líffræðinnar eftirþví sem að-
stæður leyfa og um semst.