Árbók Háskóla Íslands - 31.12.1998, Page 111
Kynningarstarfsemi
Vegna 50 ára afmælis Tilraunastöðvarinnar gafst tilefni tit óvenjuöflugrar kynningar-
starfsemi bæði á innlendum og erlendum vettvangi. Það var óspart nýtt bæði með
fréttum og viðtölum í blöðum. útvarpi og sjónvarpi. en einnig á ýmsan annan máta.
I. Alþjóðleg afmælisráðstefna
Efnt var til alþjóðlegrar ráðstefnu sem bar heitið: „Symposium on Prion and
Lentiviral Diseases". 20.- 22. ágúst í Háskólabíói. í tengslum við hana var haldin
ráðstefna Félags norrænna taugameinafræðinga (Scandinavian Society for
Neuropathology). Vísindamönnum sem eru í fararbroddi í heiminum í rannsókn-
um á príon- og tentiveirusjúkdómum var boðið tit að hatda yfirtitsfyrirtestra og fór
þar fremstur meðat jafningja Stanley B. Prusiner sem fékk nóbelsverðlaun í
tæknisfræði nokkrum mánuðum eftir að hann hafði þekkst boð okkar. Auk hans
fluttu Charles Weissmann og John Coltinge yfirlitsfyrirlestra um príonsjúkdóma.
Yfirlitsfyrirtestra um lentiveirusjúkdóma fluttu: Robin A.Weiss. Douglas D.
Richman. Ronatd C. Desrosiers og Guðmundur Pétursson.
Þátttakendur voru atls 318 frá 31 landi eða tvöfalt fteiri en áætlað hafði verið. Auk
yfirlitsfyrirtestra kynntu þátttakendur nýjustu niðurstöður rannsókna sinna í 80
fyrirtestrum og á 85 veggspjöldum. Keldnafólk lét ekki sitt eftir tiggja með inntegg
á ráðstefnunni en flutti niðurstöður rannsókna sinna í fimm fyrirtestrum og á níu
veggspjöldum og átti þar að auki aðitd að tveimur fyrirlestrum. að ótötdum einum
yfirlitsfyrirlestri. í tengslum við ráðstefnuna var þátttakendum boðið tit móttöku á
Tilraunastöðinni og efnt var til hófs á lokadegi hennar og var þangað boðið auk
gestafyrirlesara þeim innlendum og ertendum aðilum sem höfðu þekkst boð
stöðvarinnar um að stýra fundum. Útdrættir úr fyrirlestrum og veggspjöldum voru
gefnir út í ráðstefnubók.
II. Opið hús
Sunnudaginn 4. október var starfsemin kynnt atmenningi. Starfsfólk á hinum
ýmsum sviðum kynnti rannsóknir sínar, sýndi gestum hin margvíslegustu tól og
tæki og tilraunadýr af ýmsu tagi. Veggspjöld sem sýndu alla þætta starfseminnar
þöktu veggi og sýnd voru og skýrð myndbönd um ýmsa sjúkdóma sem fengist er
við og fluttir stuttir fyrirtestrar. Aðsókn var með afbrigðum góð. Fyrstu gestirnir
komu nokkru áður en húsið var opnað að morgni og var stanslaus straumur allan
daginn og má ætla að nokkur þúsund manns hafi sótt stofnunina heim.
III. Heimsóknir nemenda
Líffræði- og læknanemum var boðið sérstaklega að kynna sér starfsemina og
þekktust líffræðingar boðið og kom á fimmta tugur þeirra og kynnti sér starfsemina.
IV. Kynningarbæklingur
í tilefni afmælisins var ráðist í það að gefa út handhægan. ríkulega myndskreyttan
kynningarbækling á ensku og íslensku þar sem er skýrð er í stuttu máli staða
Tilraunastöðvarinnar í stjómkerfinu. greint frá meginhlutverkum. helstu rannsóknar-
og þjónustusviðum. framleiðslu og starfsliði. Þessi bæklingur sem fer vel í vasa
hefur nýst vel til að stinga að gestum og gangandi, hérlendum sem erlendum.
Fræðslufundir voru sem fyrr haldnir mánaðarlega í bókasafni Tilraunastöðvar-
innar. að undanskildum sumarmánuðum. en jafnframt var efnt til funda einkum
er erlenda vísindamenn ber að garði þannig að alls urðu þeir 20 á árinu. Starfs-
fólk Keldna flytur flesta fyrirlestranna. sem eru öllum opnir og kynntir allvíða. en
einnig koma hérlendir og erlendir gestir við sögu fyrirlestrahalds.
Annað
Framlag ríkissjóðs, sem er fyrst og fremst til að mæta launagjöldum. var rétt
ríflega 100 m.kr. Það hækkaði um 16% vegna samningsbundinna launahækkana
en einnig fékkst framlag tit að ráða sameindaerfðafræðing til rannsókna á riðu og
skyldum sjúkdómum. Það var mjög ánægjulegt og í samræmi við stefnumótun
stofnunarinnar að styrkja á þann veg fræðigrein sem gegnir æ meira htutverki í
hvers kyns rannsóknum í tífvísindum. Sértekjur drógust hins vegar saman um 5
%. þ.e. úr 44.6 m.kr. í 42,8 m.kr.
Verkefna- og tækjakaupastyrkir námu um 36.5 m.kr. og voru nær 10 m.kr. hærri
en 1997. í flestum tiivikum er um að ræða tittölulega lágar upphæðir úr innlend-
um sjóðum. Stærsti styrkurinn sem veittur hefur verið sérfræðingi stofnunarinnar
á undanförnum árum var frá norrænu ráðherranefndinni til rannsókna á áhrifum
umhverfis á ónæmiskerfi þorsks að upphæð 16,3 m.kr. til samnorræns verkefnis
og var hann veittur til þriggja ára og bar Tilraunastöðin u.þ.b. 60% af honum úr