Árbók Háskóla Íslands - 31.12.2003, Page 208
um að takast á við brestina í fari okkar og reynum sífellt að bæta okkur. I háskóla
erum við sem sagt ekki komin til þess eins að afla okkur tiltekinnar kunnáttu eða
þekkingar sem á að gera okkur hæfari til að leysa tiltekin vandamál eða vinna
ákveðin störf í þjóðfélaginu. Háskólamenntuninni er einnig ætlað að gera okkur
hæfari til að skynja og skilja lífið í heild sinni, hugsa skýrari og dýpri hugsanir,
verða að þroskaðri manneskjum sem leggja hver á sinn hátt sitt af mörkum til að
gera mannlífið fegurra og betra.
Háskóli íslands
Spurningin sem mig langar nú til að varpa til ykkar. kandídatar góðir. er eftirfar-
andi: Er starf Háskóla íslands í samræmi við þá hugsjón um háskóla sem ég hef
eftir Humboldt um frjálst fræðasamfélag kennara og nemenda? Svör ykkar verða
örugglega mismunandi því reynsla ykkar er ólík og deildir skótans eru fjarri því
að vera allar eins. En ég hygg að ekkert ykkar myndi segja að Háskóli íslands sé í
fullu samræmi við þá hugsjón sem hér er lýst: sennilega nær enginn háskóli í
víðri veröld því takmarki. En ég vona að þið hafið fundið að Háskóli ístands reynir
að vinna í anda þessarar hugsjónar og að ykkur finnist tíka að þið hafið átt ykkar
þátt í því að gera Háskóla ístands að eiginlegum háskóla. Ég vona líka að þið deil-
ið þeirri hugsun með mér að Háskóli íslands þarf að vinna enn betur og mark-
vissar að því að vera öflugt og blómlegt fræðasetur. Hvernig förum við að því?
Hvað þarf að gera?
Fyrsta og mikilvægasta spurningin er sú hvort sú háskótahugsjónin sem hér hef-
ur verið lýst sé sjálf nægilega inngreipt í huga okkar og hvort við leggjum okkur
nægilega fram um að byggja Háskóla íslands upp sem alhliða fræðasetur sem
skapar kennurum. nemendum og öllu áhugafólki um vísindi og fræði skilyrði til
að leita sannleikans, styðja hvert annað í daglegu starfi og vinna að persónuleg-
um þroska sínum og annarra.
Fjárþörf
Ágætu kandídatar, okkur er öllum Ijóst að framkvæmd hugsjóna kostar oft miklar
fórnir. Háskóli íslands á því láni að fagna að eiga og hafa átt fjölda starfsfólks,
nemendur. kennara og embættismenn sem hafa lagt sig alla fram um að efla hag
hans og getu til framfytgja hugsjón sinni. Sú fórnfýsi verður aldrei fullþökkuð.
Hann hefur líka notið mikils skilnings og stuðnings hjá almenningi og ráðendum
þjóðarinnar. Þakkarskuld sína við íslenska þjóð endurgeldur Háskólinn með síöfl-
ugra starfi í hennar þágu.
Það liggur í eðli kröftugrar háskólastarfsemi að hún þarf mikið fé til að kosta
nýjar rannsóknir. kaupa fleiri bækur. bæta húsakost og vinnuaðstöðu nemenda og
kennara. svo nokkuð sé nefnt. Starfið í Háskóla íslands hefur aldrei verið eins og
öftugt. fjölbreytt og skapandi og um þess mundir. Og það er einmitt af þeim
ástæðum sem þörfin fyrir meira fé er svo raunveruleg og brýn. Tækifærin og
möguleikarnir hrópa á aukinn fjárstuðning svo starfið megi skila enn meiri arði til
þjóðfélagsins. auðga það og efla að ötlu teyti.
Leið sem nefnd hefur verið til að afla Háskótanum aukinna tekna er að heimila
honum að innheimta skólagjöld og hefur mikil umræða farið fram innan skólans
um þetta mál. Bendi ég þeim sem vilja kynna sér þá umræðu á ítarlega fundar-
gerð á heimasíðu Háskólans af háskólafundi 6. september sl. þar sem ólík sjón-
armið og ýmis rök í þessu máli koma fram.
Ein spurning, kandídatar góðir. varðandi þetta mál er mér ofarlega í huga á þess-
ari stund vegna þess að þið einir kunnið svarið við henni. Hefðuð þið verið Há-
skóla íslands betri nemendur ef þið hefðuð greitt skótagjöld?
Frá mínum bæjardyrum séð er þetta mikilvæg spurning þegar skólagjöld ber á
góma vegna þess að metnaður okkar atlra er sá að gera Háskóla Islands að enn
betri mennta- og rannsóknarstofnun. Og ef skólagjöld eru ein leið til þess að
bæta kennstu, nám og rannsóknir. þá hljótum við íhuga vandtega kosti hennar og
galta.
Meginrökin sem oftast eru færð fyrir skótagjöldum eru af stjórnmálalegum og
efnahagslegum toga og snerta í sjálfu sér ekki beint innra starf skólans. Þessi rök
tengjast hugmyndum um jafnrétti til náms. hvað skuti greiða af almannafé og hverju
einstaklingarnir skulu sjátfir kosta beint til menntunar sinnar. Rökin túta að því
hvernig við sem þjóðfélagsþegnar og íslendingar metum ávinning menntunar fyrir
einstaklingana og þjóðfélagið í heild. Um þessi rök fjalla stjómmátamenn og Al-
þingi á hverjum tíma htýtur að gera það upp við sig hver niðurstaðan á að vera.
204