Stúdentablaðið - 01.04.2002, Page 8
8 stúdentablaðið
SAMFÉLAGIÐ
-Nýtt nemendafélag við Ht
VIÐSKIPTAFRÆÐI VIÐ HÍ
-Guðmundur Rúnar Svansson ræðir við Ástu Dís Óladóttur, samskipta- og kynningarfulltrúa
viðskipta- og hagfræðideildar HÍ
Nýlega var stofnað nýtt nemendafélag viö Háskóla íslands
sem ber nafnið Samfélagiö og er félag framhaldsnema í fé-
lagsvísindadeild. Hlutverk félagsins verður að berjast fyrir
hagsmunum nema í meistara- og doktorsnámi í deildinni,
koma á fót kraftmikilli útgáfu og kynna nám og rannsóknir
félagsmanna jafnt innan Háskólans sem utan hans. Fyrsti
formaður Samfélagsins er Gunnar Þór Jóhannesson og
sagði hann þörfina fyrir slíkt félag hafa farið vaxandi síðustu
ár. Fólk hafi hingað til verið að vinna í sínum málum hvert í
sínu horni og skort allt samhengi.
Nýr vettvangur fræðilegrar umræðu
„Framhaldsnemar hafa ekki átt fulltrúa í rann-
sóknarnámsneffid, á deildarfundi eða deildarráðs-
fundum sem er mjög bagalegt í ljósi þeirrar stefnu
að það á að styrkja rannsóknarnám við HI. Fiitt af
því fyrsta sent við gerðum var að kjósa okkur full-
trúa í rannsóknarnámsnefnd sem er beintengd inn
í rannsóknarnámið og við erum að vinna að því að
fá fulltrúa á deildarfundi og í deildarráð. Þetta eru
vitaskuld málefni sem varða hagsmuni framhalds-
nema við félagsvísindadeild ntikið en ætlun Samfé-
lagsins er einnig að efla fræðilega umræðu og
fræðastarfið því þessi þættir eru afar mikilvægir
hlutar framhaldsnámsins. Það hefur ekki verið
neinn sameiginlegur vettvangur fyrir masters- og
doktorsnema til að koma sínum málum á framfæri
og vera í gefandi „díalóg“ við fræðin og annað
fræðifölk, kennara og fólk út í bæ. Það hefur því
vantað þetta félag sent nú getur haldið utan um
hópinn og skapað virkt og skemmtilegt samfélag.“
Félagsvísindi sem ein heild
Nafn félagsins hefur sterka skírskotun til fortíð-
ar, þ.e. til félags þjóðfélagsfræðinema sem bar heit-
ið Samfélagið. Þjóðfélagsfræðin var þverfagleg
námsbraut, forveri félagsvísindadeildar.
„Þetta félag lognaðist út af en okkur þótti við
hæfi að tengja okkur við það, sérstaklega núna
þegar æ meiri áhersla er lögð á þverfáglega sant-
vinnu. Það er verið að brjóta niður múra milli
greina og nafnið undirstrikar þann anda. Fram-
haldsnemar innan félagsvísindadeildar eru nú milli
120 og 130 talsins og sú tala fer hækkandi með
hverju árinu sem líður. Það á samt ekki að vera
erfitt að henda reiður á þessum tjölda því
félagið hefur mjög almenn markmið og
það má allt eins líta á félagsvísindi sem
eina heild og er það einmitt sú nálgun
sem við leggjum áherslu á. Við viljum
kynna framhaldsnám við HÍ sem áhuga-
verðan valkost, vinna að útgáfumálum og
almennum hagsmunamáium sem koma
öllum framhaldsnemum til góða. Fólk
hefur margvíslegan bakgrunn og nálgan-
ir að viðfangsefnum sínum en ég held að
samræður á grunni þessa margbreytileika
geti orðið einn helsti styrkleiki Samfé-
lagsins og framhaldsnámsins hér við skól-
ann. Leitast verður við að fulltrúi úr
hverri þeirra fimm skora sem hafa skipu-
lagt framhaldsnám sé í stjórn og því ætti engin skor
að verða út undan.“
Sýnilegt og kröftugt félag
„Framhaldsnám við HI er kostur sem er tiltölu-
lega nýr og það þarf að kynna hann vel, ekki síst
fyrir fólkið í skólanum en að sjálfsögðu líka út fyr-
ir háskólalóðina. Við ætlum okkur að halda mál-
þing, gefa út tímarit, starfrækja virka netsíðu og
vera í góðu samstarfi við aðrar deildir um ýrnis mál
svo fjölbreytileiki fræða innan HI verði Ijós. Við
höfum hugsað tímann frant að næsta skólaári sent
ákveðinn undirbúningstíma og svo verður allt sett
á fullt næsta haust. Félagið á ekki að vera eitt
djammfélagið til heldur er því ætlað að blása lífi í
hið tfæðilega starf. Það þarf að skapa jákvæða
stemmningu í kringum fræðin, það eru margir að
vinna verulega metnaðarfull MA- og doktorsverk-
efni og það er algjör synd að sjá þessi verkefni ryk-
falla uppi í hillu á Bókhlöðunni meðan þau geta
þjónað virku hlutverki í háskólasamfélaginu og
þjóðtélaginu almennt. Við viljum líka vekja athygli
á þeirri aðstöðu sent rnargir frámhaldsnemar við
HI þurfa að búa við. Þar má nefna að vinnuaðstaða
nemenda er í engu samræmi við fjölda framhalds-
nerna og bókakostur mætti vera mun betri. Það er
ekki nóg að tala um eflingu rannsóknarnáms, mað-
ur verður líka að sjá eitthvað á borði og ég held að
nemendafélag eins og okkar geti reynst vel í því.
Kerfið í þjóðfélaginu er allt að því fjandsamlegt
rannsóknarnámi, fólk er oft í fullu starfi með
meistaranántinu og þótt tengslin við atvinnulífið
séu nauðsynleg, þá bitnar of mikið vinnuálag ein-
faldlega á gæðum námsins. Félagslífið verður fyrst
fýrir barðinu á slíku en það er einmitt þar sem þú
kemst í hvetjandi samræður við samnemendur þína
og hefur möguleika á að ntynda mikilvæg tengsl
við annað fræðifólk. Það er vitaskuld nám út af fýr-
ir sig sem mér finnst skorta við HI vegna þess um-
hverfis sem nemendur upplifa sig í og ætlar Samté-
lagið að gera sitt til að vekja athygli á vandamálinu
og vonandi að konta með einhverjar lausnir.“
bv
Vidskiptafrœöin er í dajj fjölmennasta
deildin. Er einhver þörf fyrir kynninjjar-
fulltrúa?
Með þessari auknu samkeppni er það
ekki spurning. Við erum að byggja upp þá
ímynd af viðskipta-og hagfræðideiid að við
séurn þessi akademíski háskóli sem byggir
á rannsóknum en er sarnt í miklum tengsl-
um við atvinnulífið. Það er það sem við
leggjum áherslu á. Við leggjum líka mikið
upp úr því að vera virkir þátttakendur í
þjóðfélagslegri umræðu. Bæði kennarar
deildarinnar sem og erlendir fræðimenn
hafa verið að miðla etni á þessum sviðum
til almennings á vegum deildarinnar.
Markmið viðskipta- og hagfræðideildar er
einnig að ná í fleiri góða nemendur, nemendur
sem skara fram úr.
Nú mœta 500 manns i fyrstu tímana aö hausti.
Kemur þetta ekki niður á kennslunni? Er þetta
boðlejjtfyrir viöskiptafrnöina ?
Já og nei. Þó svo að það sé einn kúrs sem
kenndur er í sal 1 í Háskólabíói höfum við kom-
ið til móts við fýrsta árs nema með því að bjóða
upp á minni hópa. Kúrsinn Stjórnun 1 var færð-
ur fram á haustmisseri fýrsta árs. Þar eru nem-
endur í 25 manna hópum. Kennarinn úthlutar
verkefnum í upphafi tímans og nemendur leysa
verkefnið og ræða það sín á milli. Þar gegnir
kennari hlutverki umræðustjóra. Fyrir vikið
myndast stundum þcssi „bekkjarkjarni“ meðal
nemenda. Nemendur hafa einnig aðgang að öllu
kennsluefni og aðgang að kennurum sínum.
Þetta eru einungis tveir kúrsar á fý’rstu önninni
og þegar þeirn sleppir taka við fámennari kúrsar.
Eyrir utan viðskiptafrnöina hér er líka viöskipta-
frxðikennsla eöa skylt nám í Háskólanum í
Reykjavík, Rifröst, Háskólanum á Akureyri ojj
T&kniskólanum. Eru störf fyrir alla þessa viö-
skipta- ojj hajjfrxöinjja i þjóðfélajjinn ?
Tvímælalaust. Það má segja að viðskipta- og
hagfræðingar séu starfandi á öllum sviðurn at-
vinnulífsins auk þess að stunda rannsóknir og
fræðistörf. Það er ákveðinn samdráttur í efna-
hagslífinu og hann endurspeglast í atvinnuá-
standi viðskiptafræðinga og hagfræðinga eins og
annarra. Margir af mínum nemendum hafá rætt
við mig um hvernig sé að fá vinnu í dag og segja
það frábrugðið því sem var fýrir rúmu ári síðan.
Flest hafa þau þó fengið vinnu á sínu sviði.
Einnig hafá launakröfúr fólks minnkað frá því
sem var.
Eru fordómar innan háskólasamfclajjsins jjajjn-
vart viðskiptafrœði ojj viðskiptafreiðincmum?
Alls ekki, að minnsta kosti hef ég ekki fundið
fýrir því. Kannski má segja að það séu mjög
skiptar skoðanir að líta á Háskólann sem týrir-
tæki, en það er það eina sent ég hef fundið að
greini að viðskiptafræðina frá öðrum greinunt,
en ég vil ekki flokka það undir neina fordóma,
langt því frá.
Hvernijj séröu stöðu námsins eftir fimm ár?
Ég tel að eftir fimm ár verði aftur kominn
meiri stöðugleiki í viðskiptafræðinám á Islandi.
Það eru margir að tára af stað með nýtt nánt og
samkeppnin hefur aukist til muna, sent að rnínu
niati er af hinu góða. Ég tel einnig að nemend-
um í framhaldsnámi eigi eftir að tjölga rnjög
mikið, bæði í meistaranámi og doktorsnámi. I
dag bjóðum við upp á MS- og MA-nám á fimrn
sviðum, stjórnun og stefnumótun, mannauðs-
stjórnun, fjármálum, markaðsfræði- og alþjóða-
viðskiptum og rekstrarstjórnun. Einnig bjóðum
við upp á tveggja ára MBA-nám. Aðsókn í meist-
aranám og doktorsnám við deildina hefur aukist
mikið á milli ára. Má þar kannski sérstaklega
nefna mikinn áhuga á MA-náminu í mannauðs-
stjórnun sent við törum at'stað með næsta haust.
Fyrir næsta misseri hafa uni 170 manns sótt um
MA- og MS-nánt í viðskipta- og hagfræði. Þar að
auki verða urn 45-55 manns teknir inn í MBA-
námið sem notið hefur mikilla vinsælda og þeir
nemendur sem nú eru að ljúka því námi hafa lát-
ið rnjög vel af því.
Eitthvaö sem þú vilt sejjja aö lokum ?
Já, mig langar tii þess að netna að það er mjög
ntikið af góðunt og metnaðarfullum nemendum
í viðskipta- og hagfræðinámi. Það glevmist svo
oft að hrósa nemendum og því vil ég nota þetta
tækifæri til þess að gera það. Ég fór t.d at stað
með nýjan kúrs á síðasta misseri sem heitir við-
skiptahugmyndir. Unt 60 nemendur vorú
skráðir í kúrsinn og fór hann fram úr mínum
björtustu vonum. Nemendur skiluðu inn við-
skiptaáætlunum um fýrirtæki og mátti sjá að þau
höfðu rnörg hver lagt gríðarlega rnikið á sig, svo
góðar voru áætlanirnar. Ég held að það rnegi
gera meira af því að hrósa nemendum fj'rir vel
unnin störf. Endurgjöf frá kennurum til nem-
enda er nauðsynlegur þáttur sem ég tel að há-
skólasamfélagið allt mætti leggja meira upp úr.
grs
TITLAR SEM ENGINN
MÁ LÁTA FRAM HJÁ SÉR FARA
Að horfa á myndbönd ku vera góð skemmt-
un. Þegar líða fer að prófum dvelja margir
daglangt á Þjóðarbókhlöðunni. Þar eru ekki
einungis bækur, heldur má þar einnig finna
ágætis myndbandasafn. Þó ekki basar-,
glens- eliegar rómantískar myndir í líkingu
við þær sem nálgast má á vídeóleigunni á
horninu. Fremur er um að ræða vandaðar
fræðslu- og heimildamyndir. Blaðamaður
Stúdentablaðsins fletti i gegnum mynd-
bandasafnið og valdi úr 13 titla sem enginn
ætti að láta fram hjá sér fara.
1. Mígreni. Meira en höfuðverkur
616.8570208 Míg
Fólk með mígreni lýsir einkennum sínum og
hvaða áhrif mígreniö hefur á daglegt líf þess.
Afar fræðandi, sérstaklega ef þig vantar
vottorð.
2. Vertu á verði
613.850208 Ver
Fræðslumynd um kynsjúkdóma. Fjallað á op-
inskáan hátt um smitleiöir og helstu einkenni
og einnig mögulegar forvarnir. Á sömuleiðis
aö geta komið þeim að góöum notum sem
vantar vottorð
3. Sannleikurinn um kommúnismann
320.5320208 Tru
(The Truth about Communism) Rakin er þró-
un kommúnismans frá fæðingu til Leníns og
Stalíns. Upphaflega gefið út í Bandaríkjunum
í upphafi 7. áratugarins og er einn af bauta-
steinum Þjóðarmenntunarverkefnisins þar
vestra (National Education project). Myndin
er því „Made in USA" svo ekki sé meira sagt.
4. Öryggi viö landbúnaðarstörf
363.119630208 Öry
Fræðslumynd um þær margvíslegu hættur
sem fylgt geta því að búa í sveit. (Landbún-
aður er sem kunnugt er dauðans alvara).
Einkum er um aö ræða hagnýta fræðslu um
samneyti við dráttarvélar, heyvinnuvélar og
drifsköft.
5. Gegningar og mjólkurvinnsla
949.18 Geg
Hulunni er flett ofan af löngu horfnum lifnað-
arháttum í Skaftafellssýslum (þarna fyrir
austan). Gegningar voru aðalstörf karl-
manna að haustverkum loknum. (Skepnun-
um var gefið á garðann, heyið var borió fram
á kláfum.) Einnig voru sýnd þau handbrögð
sem viðhöfð voru við aö sía og skilja mjólk,
aó búa til smjör úr rjómanum og hleypa ost
og skyri úr undanrennunni. Mjög gofr efn;
fyrir upprennandi húsmæður
6. Bjarni Benediktsson. Forsætisráð-
herra
923.20208 Bja
Einstæð heimildamynd um hina viðburðaríku
ævi Bjarna sem m.a. varð prófessor vió Há-
skólann aðeins 24 ára að aldri, borgarstjóri í
Reykjavík á hernámsárunum og forsætisráð-
herra í 7 ár. Dr. Hannes Hólmsteinn Gissurar-
son samdi handrit.
7. Assorted Nazi
Political Films: 1932-1943
943.0860208 Ass
Þarna er einnig um að ræða vel heppnaða
áróöurskvikmyndageró. Nokkrum af helstu
kvikmyndaperlum úr safni tiltekins ráðuneyt-
is safnað saman á eitt myndband.
8. Bændur og býli í Vestur-Húna-
vatnssýslu
914.915100208 Bæn
Tekin á árunum 1953-1964. Frábær heimild
um áhugaveröa ábúendur, mannvirki jarða,
búskaparhætti og mannlíf í sveitum landsins
um miðja 20. öld. Einnig eru sýnd brot úr
mannlífinu í kauptúninu Hvammstanga þar
sem þjónustu- og afurðafyrirtæki héraðsins
voru og eru sennilega enn staðsett.
9. Þjóðhátíð á Þingvöllum 1974
949.10500208 Vil
Úr hinu merka kvikmyndasafni Vilhjálms og
Ósvalds Knúdsen. Fyrir þá sem misstu af
stemmningunni á Kristnihátíð.
10. The BBC Television Shakespeare
822.330208 Sha
Á Hlöðunni má finna heildarsafn sjónvarps-
leikgerða þeirra er breska ríkisútvarpiö hef-
ur gert af ævistarfi Shakespeare heitins.
Ómissandi fyrir áhugamenn um skáldið sem
og þá sem vilja temja sér málfar sem hæfir
hraða nútímasamfélagsins.
11. Söngvastund
782.420208 Sön
Sígríður Beinteinsdóttir syngur með börnun-
um (jibbí). Einnig er farió í leiki og svo er
hlustaó á söguna um Fóu og Fóu feykirófu.
12. íslenska ullin
746.094910208 Frí
Kennslumyndband um íslensku ullina, eigin-
leika hennar, meöferð, vinnslu, sem og fjöl-
breytt notagildi hennar í nútið og fortíð.
Myndinni fylgja kennsluleiðbeiningar.
13. Veður
551.6549100208 Mar
Skýrðir eru frumþættir vinda og veðurs, fjall-
að um vinda- og veóurkerfi og rætt um
hitafar og úrkomu. Einnig er sérstaklega
fjallað um starfsemi veðurstofunnar og hlut-
r/erk hennar fvrii.ís'pnskt samfélag.
Að lokum er þó rétt að taka fram aó ekki er
heimilt aö horfa á myndbönd í Bókhlöðunni
meöan að próftíð stendur yfir.