Stúdentablaðið

Árgangur

Stúdentablaðið - 01.04.2002, Síða 14

Stúdentablaðið - 01.04.2002, Síða 14
VISINDAKONA? 14 stMdewtablaOia Nýlega kom út skýrsla á vegum menntamálaráðu- neytisins sem fjallar um stöðu kvenna í vísindum og rannsóknum á íslandi. Niðurstöður skýrslunn- ar eru afar fróðlegar og þar er að finna mikið magn af gagnlegum og áhugaverðum upplýsingum sem gefa okk- ur skýra mynd af íslensku samfélagi og stöðu jafnréttis- mála í dag. Upplýsingar sem skýrslan byggir á var tekin sanran at' nefnd um konur og vísindi er skipuð var af menntamálaráðherra vorið 2000. Upphaf rannsóknarinnar má rckja til áætlunar Evrópu- sambandsins sem miðar að því að auka hlut kvenna í vísindum því talið er að ftill nýting mannauðs auki hagvöxt og velferð. hetta er í samræmi við stefnu íslenskra stjórnvalda sem hafa sett sér það marknrið að tryggja jafna stöðu karla og kvenna í íslensku samfélagi, efla mennt- un og rannsóknir og stuðla að áframhaldandi hagsæld á íslandi. Ljóst er að verulega heftir hall- að á hlut kvenna í vísindum og síféllt tleiri tálla frá þeirri skoðun að vísindin séu hlutlaus og kvn- laus. Vísindin endurspegla í raun líf og samfé- lagslegan veruleika þeirra sem ástunda þau. Af þessu leiðir að ef t.d. karlar eru í meirihluta þeirra senr sinna vísindastörfum er hætta á að vís- indin birti skekkta mynd. Ahrifáleysi kvenna í vísindunr hefur jafntramt í för með sé að samfé- lagið fer á mis við hugmyndir þeirra og að fjár- festing skattgreiðenda í menntun kvenna skilar e.t.v. ekki sambxrilegum arði og menntun karla. I skýrslunni var að finna tölfræðilega sarnan- tekt á stöðu íslenskra kvenna á vinnumarkaðnum sem og á menntun kvenna. Þar eru birtar tölur um nemendur á framhaldsskólastigi og á sér- skóla- og háskólastigi auk þess sem ffam koma tölur urn fjölda brautskráðra nemenda á þessum skólastigum. I ljós kom að konur eru nú um helmingur þeirra sem stunda nám eða útskrifast úr ffamhaldsskólum eða um 61%. Konur eru einnig í meirihluta þeirra sem stunda nánt og út- skrifast af sérskóla- og háskólastigi á Islandi eða um 60 %. Samkvæmt upplýsingum ffá nenrenda- skrá HÍ árið 2000 voru konur meirihluti nem- enda í öllum deildum skólans nema í verkfræð- dcild. Konur voru einnig í minnihluta í hag- fræðiskor senr er hluti af viðskipta- og hagfræði- deild en í raunvísindadeild voru t.d. yfir 60% nemenda konur. Meðal brautskráðra nemenda þá er hlutfall kvenna svipað eða um 67%, hæst í uppeldisgreinum, heilbrigðisvísindum og í hug- og félagsvísindum en hlutfáll karla er hæst í tæknigreinum, náttúrufræði og stærðffæði. Af þessu má leiða að þrátt iýrir að sú goðsögn að karlar fari frekar í nánr tengt tækni og raungrein- um sé á undanhaldi þá á hún enn við rök að styðjast. I framhaldsnámi við íslenska háskóla þá eru konur jafnffamt í meirihluta eða um 59%. Ekki liggja ft'rir sambærilegar upplýsingar um lokapróf Islendinga frá erlendum háskólum en haustið 2000 voru heldur fleiri karlar en konur við nám erlendis. Þegar litið er á tölur um þá sem útskrifast með æðri menntagráður þá vekur athygli að brottfall kvenna er nokkuð. Þannig voru konur einungis fjórðungur þeirra sem út- skrifast hefur með doktorspróf síðasta áratug sem er mjög lágt hlutfall ef tekið er tillit til þess að konur eru meirihluti þeirra sem útskrífast með ft'rstu háskólagráðu. Þetta verður að teljast alvarleg þróun en hún er sú sama víðast hvar annars staðar. Einnig voru dregnar saman tölffæðilegar upp- lýsingar um konur sem stunda störf við rann- sóknir og þróun en þar var að fmna fjölda þeirra samanborið við karla, starfssvið þeirra og upplýs- ingar um úthlutanir úr íslensku styrkjakerfi til rannsókna. Starf í rannsóknum krefst umtals- verðrar menntunar og þjálfunar og er doktors- próf oft og tíðum nauðsynleg brú til starfa á sviði rannsókna. Ef hafðar cru til hliðsjónar tölur um menntun kvenna á æðri menntastigum kemur ekki á óvart að konur eru í minnihluta þeirra sem starfa á sviði rannsókna og þróunar eða um 37 %. Karlar eru í meirihluta nreðal háskólakennara þó svo að konunr hafi fjölgað meðal þeirra á undan- törnum árum. I tébrúar voru konur 9% próféss- ora, 29% dósenta og 52% lektora hér á landi. Konur eru tæpur helmingur (48%) annarra kennara á háskólastigi. Almennt gildir að tleiri karlar en konur sóttu um og fengu styrki til rannsókna á tímabilinu 1996-2000 en vægi kvenna hefúr þó aukist lítillcga nreðal umsækj- enda og styrkþega og er hlutfall styrkþega af um- sækjendum nokkuð svipað hjá báðum kynjun- um. Er það í samræmi við vísbendingar sem gefa til kynna að rannsóknarvirkni kvenna sé svipuð og rannsóknarvirkni karla. Að síðustu voru dregnar saman tölur unt hlut kvenna í stjórnkerfi rannsókna og leiddu þær í ljós að fleiri karlar en konur sitja í stjórnum og ráðum á sviði rann- sókna og vísinda. Af niðurstöðum skýrslunnar að dæma er óhætt að fúllyrða að hlutur kvenna í vísindum á íslandi er rýrari en karla. Kyn hefirr augljóslega mikil áhrif á tækifæri fólks í vísindasamfélaginu sem og annars staðar og með óbreyttu ástandi fer mikill mannauður til spillis. Það liggur jafh- framt í hlutarins eðli að það getur ekki \'erið hollt ft'rir vísindin sjálf ef þau stunda nær ein- ungis karlar. Sem leið til að etla vísindi og ný- sköpun hér á laridi er nauðsynlegt að jafna hlut kynjánna og vinna að því að koma í veg fyrirkyn- bundið náms- og starfsval. Brottfall kvenna úr námi eftir ft'rstu háskólagráðu má vissulega rekja að einhverju leyti til barneigna en eitthvað fleira liggur þar að baki. Því er ekki að neita að staðal- mynd vísindamannsins er oftar en ekki karl og nauðsynlegt er að breyta því. Kvennemendur hefiir skort týrirmyndir á sviði rannsókna og vís- inda og er því vert að huga að því að gera vísind- in nreira aðlaðandi týrir stúlkur. Marka þarf skýra og markvissa stefriu í þessum efnum og þörf er á að allir; stjórnvöld, fjölmiðlar, foreldrar og kennarar taki höndum saman og etli konur til aukinnar þátttöku í vísindum. jks . .saga mannlegrar sálar, hversu ómerkileg sem hún kann að vera, er ekki síður forvitni- leg og holl lesning en saga heillar þjóðar." -Mihaíl Lermontov- r netinu er hægt aö finna heimasíður fólks þar sem þaó rekur úr sér garnirnar. Inni á þessum síðum fjalla þessir einstakling- ar um hvað drífur á daga þeirra. Nýjar færslur næstum hvern einasta dag meó upplýsingum um hvernig það eyddi deginum, skoðanir þeirra og allt sem þau kæra sig um að láta flakka: „HEY!! Eitt enn.. ef einhver sér mig með sobba á hálsinum.. þá er ég SAKLAUS! Ég var bara að bíða eftir því að kornast að tá mér að pissa í partíinu í gær og var eitthvað að tuða í honum Geira... og hann sagði: „A ég að setja á þig sogblett?“ og svo réðst hann á hálsinn á mér. Hefði ég ekki klipið hann rosa fast væri sobbinn stærri *hágrát* Núna er ég dæmd til að haga mér eins og ég sé 14 ára. Fela með rneiki og ganga með trebba og geyma hárið alltaf þarna ft'rir.. Það er svo erfitt að vera ég :oP“ Endalausar, persónulegar ffásagnir af hvers- dagslegustu uppákomum sem enginn ætti kannski að kæra sig um að heyra: „ehemm betarokk, sigurjón og þráinn voru að segja að tölvunarfræði væri óspennandi... eða beta (ok og hún er á leiðinni í bókmenntafræði eða vottever, hvernig getur það mögulega verið spennandi hehe) sagði það og hinir tóku undir, ég meina er ekkva óspennandi að mæta kl 8 í skólann, taka einn fifa \ playstation, mæta svo kannski í tíma, spila wolfénstein við félaga sína í einhverja klukkutíma, mæta kannski í einhvern dæmatíma, læra, spila meira wolf, spila meira fifa, borða pizzu, læra smá, fara heirn um svona 19- 22 og finna sér eitthvað skemmtilegt að gera um kvöldið effir að hafa hangið með vinum sínum allan daginn.“ Hvernig getur nokkur maður haft áhuga á skoðunum þessarar stelpu hlýtur að vera það fýrsta sem kernur upp í kollinn. Með allan þann fróðleik og upplýsingar sem hægt er að komast yfir með því að fara á næsta bókasafn, ná sér í bók og byrja að lesa eitthvað sem mögulega gæti komið sér vel að vita og verið skemmtilegt. Það er ekki fræðilegur möguleiki að einhver annar en sá sem skrifár textann og kannski nánustu vinir viðkomandi lesi þennan þvætting sem er svo til- gangslaus og ömurlegur. En svo er þó ekki. 111.000 sinnum hefiir verið farið inn á síðuna hjá stelpunni sem stendur ft'rir síðari textanum hér að ofan. Er það ekki magnað? Hvað veldur þessum áhuga fólks að lesa um einföldustu dag- raunir fólks sem það þekkir ekki neitt og er ekk- ert merkilegra en það sjálft? Dagar lesendanna eru mjög líklega alveg eins og dagar þeirra sem það skemmtir sér við að lesa um. Er ekki alltaf skemmtilegast að skoða ljós- myndir af sjálfum sér? Ætli fólk sé ekki orðið þreytt á öllu upplýsingaflæðinu, að þurfa síféllt að vera í erfiðri þekkingarleit til að bæta hagnýt- um upplýsingum í heilabúið hjá sér? Að lesa há- fleyga, ldassíska texta unt stórmenni gærdagsins, að troða ofan í sig dramatíkinni og ógeðinu sem stendur skrifað á öllum blaðsíðunum í bókun- um, þurri upptalningu á breytingum í stjórnsýslu þjóðríkjanna? Ætli deyfingin sem þessar síður gefa frá sér séu ekki það sem er svo þægilegt, að þurfa ekki að hugsa og fmna fýrir áhrifum text- ans, geta bara skoðað eigin spegilmynd? Einu sinrii for stelpa til Húsavíkur til að taka þátt í samsýningu einhverra listamanna. Það sem hún gerði var að fara með myndbandsupptöku- vél á rúntinn á Húsavík. Hún keyrði í endalausa hringi og tók upp mannlífið og húsin. Á sýning- unni kom hún lýrir bílstól, útvarpi, vídeói og sjónvarpi. Sýningargestir áttu að setjast í stólinn, hlusta á útvarpið og horfa á myndbandsupptöku at' rúnthringnum í sínum eigin heimabæ, eitt- hvað sem er cins fástur punktur í líti ungs fólks á litlum stöðum úti á landi og að förmæla Reykja- víkurpakkinu. Stelpan sagði mér að verkinu hennar hefði verið tekið mjög vel. í staðinn ft'r- ir að fróa sér í eigin ælu, kúki og pissi til að sýna fram á kynferðisbælingu og sálarkvalir nútíma- mannsins í afskiptalausu samfélagi kapítalismans sýndi hún fólkinu það sent það hefur fýrir aug- unum á sér alla daga og hlaut lof ft’rir. Æitli það sé ekki einmitt málið með þetta blogg, friðþæging frá háfleygu, hyldjúpu, t\'í- ræðu, fréttatengdu, afstæðu, óþægilegu kjaftæð- inu sem kæfir mann, kvelur og drepúr úr leiðind- um? Við búum í íslensku veltérðarsamfélagi og þurfum ekki að þjást með skáldunum og stríðs- hrjáða tölkinu, það er miklu þægilegra að dansa í gegnum lífið í bleikum sokkum. Til hvers að vera meðvitaður, nudda sér upp úr drullunni og væla í einhverri tilvistarkreppu ef maður getur komist hjá því og bara hallað sér aftur, andvarp- að og brosað í átt að skjánunt og þakkað fýrir það hvað maður hefur það helvíti fint. Ætii það sé ekki bara heillavænlegast að vera fitlið sem veit ekki neitt. “Happiness is thc rclicffrom pain.” -Martin Amis-

x

Stúdentablaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Stúdentablaðið
https://timarit.is/publication/350

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.