Stúdentablaðið

Árgangur

Stúdentablaðið - 01.04.2002, Síða 16

Stúdentablaðið - 01.04.2002, Síða 16
16 stúdentablattitt wiðtalia myndir: billi UM FYNDNI HVERSDAGSINS -Guðrún Eva Mínervudóttir ræðir um heimspeki og háskóla, ritstörf og önnur störf Guðrún Eva Mínervudóttir er rithöfundur og heim- spekinemi við Háskóla íslands. Hún gaf út smá- sagnasafnið Á meðan hann horfirá þig ertu Mar- ía meyá rið 1998 og í kjölfarið fylgdu skáldsögurnar Ljúlí, Ijúliárið 1999 og Fyrirlestur um hamingjuna árið 2000 en fyrir þá síðarnefndu var Guðrún tilnefnd til íslensku bók- menntaverðlaunanna. Guðrún Eva hefur einnig gefið út eitt smásagnasafn til sem ber nafnið Valur: heimspeki- legar smásögur og Ijóðabók sem hún skrifaði ásamt manni sínum, Hrafni Jökulssyni. Nýverið kom svo út nýtt rit úr hennar fórum sem heitir Albúm og er sú bók kveikj- an að því spjalli sem í hönd fer auk þess sem gæði náms við Háskóla íslands ber á góma. Hvers vegna skrifar þú sögur? Það má eiginlega scgja að ég hafi plat- að sjálfa mig inn í bransann. Það var ekki fyrr en ég var búin að skrifa fyrstu skáld- söguna sem ég hugleiddi að ég gæti mögulega lagt þetta fyrir mig. Sagan kom aldrei út en ég var komin með nasaþefinn af skáldskapnum og því var erfitt að hætta. Mér fannst lengi sem þetta væri hálfómerkileg iðja og hafði samviskubit yfir þ\ í að vera ekki að gera eitthvað raun- verulega gagnlcgt, eins og að búa uppi í sveit og framleiða mat eða gæta eyðni- sjúkra barna í Afríku. Svo rakst ég á ágæta kenningu um að öll sagnalist þroski sam- úð með öðrum mönnum á þann veg að því fleiri sögur sem maður les, heyrir cða sér, því auðveldara verði að ímynda sér sögu þeirra sem verða á vegi manns, og þannig minnkar hættan á því að maður upplifi fólk eins og dauða hluti. Ef það er rétt að ég geti aukið samúðina í heimin- um með sagnaskrifum þá hlýtur að heita svo að ég verði að gagni. Hvers vegna valdir þú heimspeki? Satt best að segja var það grein Sartre, „Existensíalismi er húmanismi" sem tældi mig inn í heimspekina. Ég lofaði mér því reyndar þegar ég byrjaði að ég myndi hætta cf mér færi að leiðast, en það hefur ekki gerst, eiginlega þvert á móti, því ég er farin að treina mér námið, tek eitt nám- skeið í cinu svo cg geti sökkt mér al- mennilega í efnið og kreist úr því safann eins og mögulegt er. Er gott jafnvægi milli rithöfundarins og heimspekinemans? Það var ágætt jafnvægi þarna á milli en nú hefúr myndast ákveðin togstreita út af tímaskorti, rithöfundurinn verður smám saman frekari, et' ég má orða það svo. Ég hcf samt ekki hugsað mér að hætta nám- inu. Heimspekin gerir öllum gott vegna þess að hún vekur upp í okkur svo margt mikilvægt, eins og forvitni og sjálfstæði, uppreisn og jafnvel löngun til að verða heilsteyptari. Eins fylgir með í pakkanum dálítil hugmyndasaga sem sviptir mann sakleysinu í ákveðnum skilningi. Ég held ekki lengur að allt sem mér dettur í hug sé að fæðast í fyrsta sinn og lendi þannig síð- ur í því að vera alltaf að finna upp hjólið. í grein sem þú sendir Stúdentablað- inu á haustmánuðum síðasta árs um fræðikonuna Helen Keller, kemur í Ijós ákveðin skoðun þín á skólakerf- inu. Fá íslenskir háskólanemar ekki nægan tíma til að hugsa? Svo það fari örugglega ekki milli mála skrifaði ég ekki grein um Helcn Keller í því skvni að smygla mínum skoðunum á framfæri í skjóli þcirrar mcrku konu, held- ur fánnst mér að reynsla hennar af því að þurfa að berjast fyrir því að fá að læra og viðhorf hennar til menntunar væru vel til þess fallin að vckja okkur til umhugsunar um það livers virði menntunin raunveru- lega er. Greinin um Hclen Keller var því fremur vangavelta um hugarfar okkar, sem höfum vanist því síðan við vorum sex ára að líta á námið sem skyldu eða jafnvel kvöð, heldur en bcin gagnrýni á skóla- kerfið, enda er ég kannski ekki rétta manneskjan til að gagnrýna Háskólann úr

x

Stúdentablaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Stúdentablaðið
https://timarit.is/publication/350

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.