Stúdentablaðið

Volume

Stúdentablaðið - 01.04.2002, Page 20

Stúdentablaðið - 01.04.2002, Page 20
20 UPPLIFUN HLÁTURS Stúdentaleikhúsið efndi í annað sinn til leikritasamkeppni í janúar sl. og gat dómnefnd ekki gert upp hug sinn milli tveggja frambærilegustu leik- ritanna sem skrifuð voru af Hildi Þórðar- dóttur og Aðalsteini Smárasyni. Var þá brugðið á það ráð að blanda þessum tveimur Ieikritum saman og er Upprisa holdsins útkoma samvinnu rithöfund- anna, Sigurðar Eybergs leikstjóra og leik- aranna sem þátt tóku í uppfærslunni. Sýningin var haldin í Stúdentakjallaran- um og er óhætt að fullyrða að rými hans hafi verið nýtt til fullnustu. Þegar ljósin dofnuðu fór í hönd atburðarás sem erfitt og í raun óþarft: er að skilgreina náið. Verkið er bundið saman af baráttu tveggja systra sem báðar reyna að komast yfir duiarfullan vinnumann sem er nýráð- inn á býlið. Það sem virtist vera enn einn þjóðsagnakenndi gjallandinn til um hið einfalda líf horfinnar moldarmenningar breyttist fljótt í ærslafullan leik þar sem skautað var um ýmis svið hugmyndasög- unnar og persónur á borð við Guð, Hitler, Castro, Þórberg Þórðarson, Dav- íð og Hannes Hólmstein skutu upp koll- inum þar sem þeirra var síst von með mjög fyndnum afleiðingum. Skuggaleg- um sögumanni brá einnig reglulega fyrir og var hlutverk hans að vekja áhorfendur til vitundar á ný og létta á krampaköstum hlátursins. Hann var þó afhjúpaður undir lok verksins; alvaran vék og hláturinn tók öll völd. Leikarar voru öruggir og flestir með skýra ffamsögn, búningar voru skemmtilegir, útfærsla hljóðs góð og leikmyndin vel unnin og var sér- staklega vel til fundið að láta áhorfendur sitja gegnt hver öðrum svo upplifun hlátursins verði meiri og smitaði örugglega hvern einasta einstak- ling í salnum. Það má vera ljóst af ofansögðu að hér er ýmislegt gott í gangi sem vert er að athuga nánar og féngum við Karl Óttar Geirsson, formann Stúdentaleikhússins, tál áð fræða okkur nánar um stofnunina Stúdentaleikhús- ið. Hvað er Stúdentaleikhúsið, hvenær var það stofnað og hver eru helstu afrek þess? Ég þekki. ekki sögu Stúdentaleikhússins nógu vel en ég veit að það var nokkuð virkt hér á árurn áður. Aðdragandi endurreisnar þess var hins vegar á þá leið að við vorum nokkur í kúrs innan bókmenntafræðinnar sem heitir Leiklistarfræði og var kenndur af Terry Gunnell. Hlynur Páll, sem síðar varð fyrsti formaður Stúdentaleikhússins eftir end- urreisn þess, fékk þá hugmýnd að sækja um styrk til rektors til að setja upp eitt leikritanna sem við vorum að lesa í kúrsinum. Við feng- um smáaur og upp frá því ákváðum við að setja upp Tartuffc eftir Moliére undir for- merkjum Stt'identaleikhússins og endurreisa starfsemi þess £ leiðinni. Ólafur Egilsson leik- listarnemi leikstýrði verkinu og gekk það mjög vel. Við fengum frábæra aðsókn og góða dóma og upp frá því fundum við mik- inn áhuga allt í kringum okkur, auglýstum fund og opnuðum Stúdentaleikhúsið fyrir alla. Næsta verkefni sem við réðumst í var Strœti og tóku um 30 manns þátt í þeirri uppfærslu, bæði úr Háskólanum og Listaháskólanum. Þetta var mjög stórt verkefhi og fengum við sty.rk ffá rektor og Bandalagi íslenskra leikfé- laga, Þessi sýning var eiginlega of stór fyrir okkar mælikvarða en samt rnjög skemmtileg. Helsta afrek Stúdentaleikhússins var tví- mælalaust þriðja sýningin sem við settum upp og hét Ungir tncnn á tippleið. Leikritið var af- rakstur fýrstu leikritasamkeppni Stúdentaleik- hússins sem er öllum opin til þátttöku og tók snillingurinn Bergur Þór Ingólfsson að sér leikstjórn. Verkið gékk fyrir fullu húsi í lengri tímá,’ yið 'unnum áhugaverðustu áhugaleik- sýningu ársins og sýndunt í Þjóðleikhúsinu. Það férli var alveg ótrúlega skemmtilegt og í raun einhvet besti dagur sem við, sem stóð- um að sýningunni, höfum upplifað. Það var farið með mann eins og atvinnuleikara allan daginn og syoleiðis stjanað við mann. Að sýna svo á Stóra sviðinu fýrir framan troðfull- um sal var náttúrlega bara draumur. Áður en við unnum okkur leið inn í Þjóðleikhúsið fór- um við til Litháén á leiklistarráðstefnu. Þar setturn við upp leikritið og unnuin verðlaun fýrir besta erlenda leikritið og svo féngum við verðlaun fýrir eitthvað sem hét „Best Pro- fessional Spirit“ sem við vissum ekki alveg hvað var en var samt alveg gaman að fá. Stef- án Hallur fékk einnig verðlaun sem besti leik- arinn, svo þetta stykki för nú bara sigurtör um Evrópu! Síðan settum við upp Púóurtunnuna sem aldrei hefur verið sett upp á íslandi áður og var mjög áhugaverð sýning. Það var ekki sami grallarabragurinn yfir henni en mjög skemmtilega uppsett en gekk ekki alveg eins vel í miðasölunni. Nú, svo er það Upprisa holdsins sem gekk mjög vel og var uppselt á allar sýningar. Hvernig fá menn inngöngu í leikhópinn? Það fá allir inngöngu sem vilja og það eru engin inntökupróf. Við auglýsum fýrsta fimd hverrar annar og þá kynnum við starfsemina og það leikrit og leikstjóra sem við erum bú- in að velja. Það er auðvitað leikstjórans að velja hverjir fá að leika en það er alltaf nóg að gera fýrir meðlimi sé áhuginn fýrir hendi óg það er mikilvægt að koma því á framfæri að þetta er ekki bara einhver klíka irinan bók- menntafræðinnar og það mega allir vera í Stúdentaleikhúsinu sem yfir höfuð eru með stúdentspróf. Við gerum heldur engar for- kröfur um einhverja ákveðna hæfni eða reynslu, það var t.d. nýr strákur að koma inn í þetta núna sem þekkti engan og hafði aldrei leikið neitt áður. Hann mætti á fund og lék í sýningunni og komst í kjölfarið inn í Leiklist- arskólann. Reyndar voru þrír úr Stúdentaleik- húsflokknum að komast inn í Lcik- listarskólann núna svó þetta er góð- ur æfingahlúti týrir verðandi leikara, byggir upp sjálfstraust og kemur þeim af stað. Hvernig fjármagnið þið batt- eríið? Rektor hefur verið okkar aðal- styrktaraðili frá því við reistum þetta við og án hans værum við ekki að gera neitt. Einu sinni á ári fáum við líka einhvern pening frá Bandalagi íslenskra leikfélaga en ,það myndi aldrei standa undir tveimur sýning- urn -á ári. Svó fáum við einhverjar auglýsingatekjur. Allar fjárhagspæl- ingar miða að því að kóma út á sléttu, það er auðvitað engin gróða- pæling í félagsskap sem þessurn og bara spurning um að skrapa saman aur til að geta sett upp tvær sýningar á ári. Hvernig veljið þið leikstjóra til liðs við ykkur? Það er, eitthyáð sém stjórnin ræðir og svb fáufn við „feedback'1 'ffá krökkunum og hefjum leitina. Við höfum haldið þeirri reglu að reyna að fá til liðs við okkur tiltölulega unga leikstjóra sem hafa nýjar hugmyndir. Þetta er náttúrlega áhugaleikhús og þarna eigurn við að taka áhættur og prófa nýja hluti. Þetta er því bara spurning um hversu vel okkur líst á fólkið og eina skilyrðið er að það sé orkumikið og hug- myndaríkt. Nú eru þrjú ár liðin frá því að Stúdenta- leikhúsið var endurreist, fer ekki að fækka í þeim hópi? Jú, það er þegar búið að fækka töluvert og við sem erum eftir útskrifumst flest á þessu ári. Það er því algjör endurnýjun í gangi núna og þannig á það líka að vera. Nýtt fölk kem- ur inn og tekur við af reynsluboltunum. Ég held samt að Stúdentaleikhúsið sé komið til að vera. Áhuginn er mjög mikill, mikið af fólki sem vill vera með svo ég hef engar áhyggjur af framtíðinni svó framarlega sem fólk haldi rétt á spilunum. Þið fenguð Unga menn á uppleið í Þjóð- leikhúsið, fer Upprísa holdsins sömu leið? Það er aldrei að vita. Það er kannski dálítið mikill sprelligangur í verkinu en ég veit að fólkið frá Þjóðleikhúsinu skemmti sér ágæt- lega og ég vona innilega að það verði fýrir valinu. Það á svo sannarlega heima þar. ORSOGUSAMKEPPNI MÍMIS Á haustdögum stóð ritnefnd Mímis, félags stúdenta í íslenskum fræðum, fyrir örsögusamkeppni. Að sögn ritnefndar hefur nokkrum sinnum verið Ijóða- samkeppni á vegum þeirra en þetta árið var ákveð- ið að fareyta til. Ströng skilyrði voru lögð fyrir þátt- töku I örsögusamkeppninni. Sögurnar skyldu vera nákvæmlega fimmtíu orð, hvorki fleiri né færri. Nemendur í íslenskum fræðum eru greinilega mikil skáld og tóku þessari keppni fagnandi. Alls bárust 34 sögur I keppnina undir hinum ýmsu dulnefnum. Dómnefnd var skipuð þeim Sveini Yngva Egilssyni, stundakennara við íslenskuskor, Sigþrúði Gunnars- dóttur, ritstjóra barnabóka hjá Máli og menningu og Ernu Erlingsdóttur, fulltrúa ritnefndar. Niðurstöður urðu þær að sagan Meðvirka konan eftir Katrínu Jakobsdóttur hafnaði í fyrsta sæti. Sagan Pústið farið einnig eftir Katrínu lenti í öðru sæti, en þriðju verðlaun hlaut Sigurlín Bjarney Gísladóttir fyrir sögu sína Rif úrsiðu minni. gs 2. sæti Pústið farið Katrín Jakobsdóttir Þau höfðu þagað alla leiðina frá Borgarnesi og nú voru þau að klífa Bröttubrekku. Það lét hátt í bílnum, eins og hann væri í of lágum gír og puðaði þess vegna óvenju mikið. Skyndilega heyrðist skerandi hávaði og allir mælar hringsnérust. „Jæja," sagði hann. „Nú er pústið farið und- an honum." 1. sæti Meðvirka konan Katrín Jakobsdóttir Vegna þrýstings lét meðvirka kon- an sem hún byggi enn í húsinu sem hún hafði flutt úr hálfu ári fyrr. Fólk- ið í húsinu óttaðist að ef búferla- flutningar hennar kæmust í hámæli myndi hún hætta öllum trúnaðar- störfum fyrir húsfélagið. Þess vegna ríkti þegjandi samkomulag um að mínnast ekki á þetta einu orði. 3. sæti Rif úr síðu minni Sigurlín Bjarney Gísladóttir Mig vantar rjóðan mann sem seg- ir kinnroðalaust sögur úr fornum bókum. Spilar á harmoníku fyrir hrútana og dansar af mér skóna undir hlöðuveggnum. Grætur yfir dauðu flugunum á mykjuhaugnum og óförum Helgu fögru. Ég tek rif úr síðu minni, sveifla því eins og slöngu og hrópa: „Guð, gefðu mér mann!"

x

Stúdentablaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Stúdentablaðið
https://timarit.is/publication/350

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.