Stúdentablaðið - 01.01.2003, Blaðsíða 9
Stúdengblaðið
9
Leiðtogar framboðanna: Vaka (A)
Vaka hefur sýnt að hún er
traustsins verð
Vaka kynnti framboðslista sína til
Stúdentaráðs og háskólafúndar þann
31. janúar síðastliðinn. Efsta sæti
listans til Stúdentaráðs skipar
Jarþrúður Ásmundsdóttir en hún er
26 ára gömul og stundar nám í
viðskiptafræði við HÍ. Stúdenta-
blaðið tók Jarþrúði tali nú á
dögunum og bað hana fyrst um að
segja einhver deili á sér.
„Ég er fædd á Húsavík og bjó fyrstu
fimm ár ævinnar við Mývatn. Þá
flutti ég í Breiðholtið og gekk í
Hólabrekkuskóla og svo í FB. Núna
er ég á þriðja ári í viðskiptafræðinni
í HÍ og stefhi á mastersnám að því
loknu. Ég er gift Viggó Ásgeirssyni,
forstöðumanni vefdeildar Búnaðar-
banka íslands."
Hefurðu verið mikið ifélagsstörfum?
„Ég var varaformaður framkvæmda-
stjómar Félags framhaldsskóla 1996-
1997. í vetur hefur ég gegnt starfi
ritara og varaformanns Mágusar,
félags viðskiptafræðinema, auk þess
að hafa starfað með NESU,
samtökum viðskipta- og hagfræði-
nema á Norðurlöndunum. Ég fór
meðal annars út á ráðstefnu hjá þeim
fyrr í vetur og fer á aðra þegar nær
dregur vori.“
Hefurðu eitthvað tekið þátt í pólitik?
„Nei, ég hef ekki tekið þátt í neinni
pólitík hingað til.“
Áhersla á
kennslumál
Hver eru aðal stefnumál Vöku jyrir
komandi kosningar?
„Vaka leggur aðaláherslu á
kennslumál því þau eru helsta
hagsmunamál stúdenta. í fyrsta lagi
viljum við að kennurum verði metið
til tekna að taka námskeið í kennslu-
fræðum en kennarar á háskólastigi
eru þeir einu sem ekki em gerðar
neinar kennslufræðilegar kröfúr til.
Við viljum að kennarar tileinki sér
vandaða kennsluhætti og sýni við-
leitni til að bæta sig sem kennarar.
Það skilar okkur árangursríkari
kennslustundum og þar af leiðandi
betri menntun.
í öðm lagi viljum við halda
áffarn að efla og þróa prófasafhið á
netinu, sem opnað var nú á haust-
misseri. Það vom sjálfboðaliðar úr
hagsmunabaráttu stúdenta sem alls
vörðu 150 vinnustundum í að skanna
inn yfír 3000 próf frá undanfomum
tveimur ámm. Prófin em nú aðgengi-
leg í vefkerfi Háskóla íslands.
Stúdentaráð opnaði jafnframt síðuna
www.prof.is en þar eru einnig ýmsar
gagnlegar upplýsingar sem tengjast
prófum. Á næsta starfsári viljum við
fá tækifæri til að halda áfram með
það starf sem unnið hefur verið með
opnun prófasafns. Við viljum að
prófsýningar verði auglýstar á prof.is
og að þar verði einnig að finna
upplýsingar um tölfræði prófa. Að
sjálfsögðu munum við halda áffarn
að beita okkur fyrir því að kennarar
skili inn prófum að loknu hverju
próftímabili.
í þriðja lagi hvað varðar
kennslumálin viljum við sjá frjálst
og fjölbreytt nám við Háskólann,
sem meðal annars felur í sér
sumarönn, fleiri námskeið á ensku
og styttri námskeið. Eitt af því sem
náðist fram í Lánasjóðsmálunum
síðastliðið vor var að stúdentar geta
nú fengið lán fyrir próf tekin i ágúst.
Við í Vöku viljum að þessi mögu-
leiki verði nýttur enn ffekar þannig
að skólinn bjóði upp á sumarönn. Ég
tel að flölgun námskeiða sem kennd
eru á ensku sé af hinu góða, sérstak-
lega þegar litið er til þess fjölda
erlendra nema sem koma hingað til
lands til að taka hluta af sínu námi
við HÍ. Styttri námskeið, þ.e.
námskeið sem kennd eru hluta
annarinnar en í staðinn oftar í viku,
auka möguleika okkar á að fá erl-
enda gestakennara. Þessi nýbreytni
hefur meðal annars rutt sér rúms í
lagadeild, en við viljum að sem
flestar deildir Háskólans skoði þenn-
an möguleika.
Mesta hækkun
grunnfram-
færslu
í áratug
Hver er áhersla ykkar í
öðrum málum, eins og
lánasjóðs- og aðstöðu-
málum stúdenta?
„Við viljum lækka
skerðingarhlutfallið í
lánasjóðsmálunum vegna
þess að það er alveg ljóst
að þeir sem vinna með
námi eru væntanlega þeir
sem þurfa mest á lán-
unum að halda. Núna er
skerðingarhlutfallið 40%
sem þýðir einfaldlega að
fyrir hveijar þúsund
krónur sem þú vinnur
þér inn umffam ffítekju-
markið, lækkar lánið um
400 krónur. Frítekjumarkið þarf
einnig að hækka, en það er
nú 280.000 krónur sem er
algjörlega óásættanlegt.
Jafhvel þeir stúdentar sem
hafa lágmarkstekjur yfir
sumarið fara flestir yfir þessa
upphæð. Að sjálfsögðu þarf áffarn
að beijast fyrir hækkun grunnffam-
færslunnar og einnig viljum við beita
okkur fyrir því að nemendur geti
fengið lán fyrir lyfja- og lækniskost-
naði. Þess má einnig geta, að á síð-
asta ári kom Stúdentaráð því til
leiðar að grunnffamfærsla háskóla-
nema hækkaði meira en hún hafði
gert undanfarinn áratug.
Hvað húsnæðis- og aðstöðu-
málin varðar viljum við tryggja
sólarhringsaðgang að byggingum
skólans og hraðari uppbyggingu
Stúdentagarða. Á prófatímanum
síðasta vor vöktuðu stúdentaráðs-
liðar Odda til að sýna ffam á þörfina
á lengri opnunartíma og nýttu marg-
ir stúdentar sér aðstöðuna.
Nú hefur verið ákveðið að
setja upp aðgangsstýrikerfi í allar
helstu byggingar skólans og er gert
ráð fyrir að þeirri vinnu verði lokið
næsta haust. Með aðgangs-
stýrikerfinu geta nemendur fengið
Jarþrúður Ásmundsdóttir:
55Við viljum vekja athygli á sérstöðu Háskóla íslands sem
rannsóknarháskóla og nýta þá möguleika sem í því felstíé
aðgang að byggingum
háskólans allan
sólarhringinn en
það hefúr lengi
verið baráttumál
Vöku. Auk þess
viljum við að gerðar
verði úrbætur hvað
varðar aðgengi fatlaðra en
því er víða ábótavant á háskóla-
svæðinu."
Hvaða tillögur hafið þið varðandi
breytta stöðu Háskóla Islands með
tilkomu fleiri háskóla hér á landi?
„Við viljum vekja athygli á sérstöðu
Háskóla íslands sem rannsóknar-
háskóla og nýta þá möguleika sem í
því felst. Við lítum á samkeppni sem
jákvæðan áhrifavald á starf skólans.
Við viljum þó vekja athygli á vand-
ræðum fámennra greina en allt of
algengt er að námskeið séu felld
niður vegna fjárskorts.
Við höfum einnig lagt til að
fyrirtæki fái skattaafslátt fyrir að
styrkja háskólastarf. Vísindagarðar í
Vatnsmýrinni er ffamkvæmd sem við
viljum að verði hraðað enda er mikil-
vægt að samstarf Háskóla íslands og
atvinnulífsins sé á sem flestum
sviðum.
Stundatöflur og
próftöflur til staðar
við skráningu í
námskeið
Hvað með mál sem snúa að fjöl-
skyldufólki?
„Um fjórðungur háskólastúdenta
eiga böm og er því afar mikilvægt að
gæta sérstaklega að hagsmunum
þeirra. Vaka hefur tekið mikið
ffumkvæði í þessum efnum. Fyrr í
vetur stofnaði Háskólinn sérstaka
nefhd sem fjallar um fjölskyldumál
en ffam að því hafði þessum hópi
verið gefinn litill gaumur innan
Háskólans. Við fengum einnig í gegn
afnám tekjutengingar við maka sem
er eitt stærsta skrefið í baráttunni
fyrir jafnrétti til náms í langan tíma.
Fjölmargir hafa komið að máli við
Stúdentaráð og sagt okkur að án
afnáms tekjutengingarinnar hefði
það ekki haft tækifæri til að stunda
nám nú í vetur.
Það sem við leggjum mikla
áherslu á fjöskyldumálin er að
stundatöflur og próftöflur séu til
staðar við upphaf skólaárs, þ.e. þegar
þú ferð og skráir þig í námskeið þá
áttu að geta séð á hvaða dögum og
klukkan hvað fyrirlestamir eru, og
hver dagsetning lokaprófsins er.
Þetta er sérstaklega mikilvægt fyrir
fjölskyldufólk - að það geti samræmt
stunda- og próftöfluna annars vegar,
og fjöskyldulífið hins vegar."
Er einhver beygur i Vökufólki vegna
þriðja framboðsins?
„Nei, alls ekki. Við fognum bara því
ffamboði. Á þessari stundu hef ég
aftur á móti ekki heyrt hver þeirra
málefni eru, en þau eiga væntanlega
eftir að kynna það á næstunni.“
Eitthvað að lokum?
„Vaka leggur áherslu á að jákvæðni
og ffumkvæði séu höfð að leiðarljósi
og að hugsað sé í lausnum en ekki
vandamálum. Vaka hefur sýnt að hún
er traustsins verð og við biðjum stúd-
enta um að veita okkur umboð til að
leiða áffam starfið í Stúdentaráði og
tryggja þar með áframhaldandi
árangur."
Kristján Hrafn Guðmundsson
Kristjg@hi.is