Stúdentablaðið - 01.01.2003, Blaðsíða 12
12
'jr
"l-
Stúden^maðið
Háskólanemar
úti á galeiðunni
Helgin 17. -18. janúar
Viðskiptafræðinemar eru á Astró og
heimspekinemar stunda Sirkus. Al-
hæfingar af þessu tagi leiðir til þess
að fólk fer að búa til staðalmyndir og
geta þær jafnvel skapað fordóma. Er
deildaskipting til staðar á djamminu?
Þær BRYNJA DÖGG FRIÐRIKS-
DÓTTIR, DÖGG HJALTALÍN og
HÓLMFRÍÐUR ANNA BALD-
URSDÓTTIR, nemendur í hagnýtri
ljölmiðlun, vildu sannreyna þær
alhæfmgar sem virðast umlykja
skemmtanalíf stúdenta, drógu fram
hlaupaskóna og lambhúshettumar og
litu við á vinsælustu skemmti-
stöðunum í 101. Ætlunin var að grafa
upp háskólanemana og taka sem
flesta tali. Úti var nístingskuldi sem
stoppaði ekki víkinga þegar mjöður
var annars vegar. Ýmislegt forvitni-
legt varð á vegi þeirra þessa helgi.
Föstudagskvöldið einkenndist af
vísindaferðum og kosningskvöldum
Vöku og Röskvu. Laugardags-
kvöldið var öllu fjömgra, troðningur
á flestum stöðum og góð stemmning.
Austurstræti
Á föstudagskvöldinu var litið inn á
Astró og Kaffihúsið. Þar gaf að líta
Vökufólk, verðandi hjúkkur og verk-
fræðinema eftir vísindaferðir að nýta
sér bjórtilboð á bamum, viðskipta-
ffæðinema og gaura í jakkafötum að
mæla út „markaðinn". Það var rólegt
á Astró, en i seinni viðkomu hafði
samsetning hópsins breyst aðeins þar
sem eldra fólk hafði bæst við.
Háskólanemar höfðu greinilega farið
annað fyrir utan nokkra sveitta á
dansgólfinu.
Ungur verkffæðinemi varð þó
á veginum og var hann maður ein-
samall. Það kom á daginn að hann
djammaði aldrei með samnemum
sínum þar sem honum fannst þeir
afspyrnu leiðinlegir. Okkur fannst
þetta kannski ansi hart og fómm út af
Astró í þungum þönkum. Þessa
staðhæfmgu varð að athuga nánar.
Hafa nemendur kannski fordóma
gagnvart eigin deild?
Austurvöllur
Eldra fólk og eflaust fyrrum
háskólanemar dönsuðu og dilluðu
sér í takt við Dadda Diskó á
Thorvaldsenbar. Að leita að
háskólanema var eins og að fmna nál
í heystakki en hugsanlega voru ein-
hverjir úr endurmenntun á svæðinu.
Þrátt fyrir aðstoð dyravarða fannst
engin.
Á Kaffíbrennslunni var ekki
margt um manninn. Við grófum upp
eina mannffæðistúdínu á þriðja ári
sem sagðist ekki djamma mikið og í
raun ekki djamma mikið með mann-
fræðinni yfír höfuð vegna anna í
vinnu.
Áki var „Pain“ í búrinu á Nasa
og áhorfendapallarnir voru þétt-
skipaðir en dansgólfið tómt. Einn
lyfjaffæðinemi var mættur og sagðist
fara á Nasa um hverja helgi. Hann
munar ekki um að borga 1000 kr. inn
á Nasa. „Þetta er bara ein pizza.“
Hann fer ekki út á lífið með
skólafélögunum og segir: „Lyfja-
fræðinemar eru nördar og sextugar
konur." Hmm ...
Aðalstræti
Plötusnúðurinn Steini í Quarashi
trekkti að en hann var að spila á
Vídalín. Reyndar barst okkur til
eyma eftir helgi að þetta hafi endað í
fámennu einkapartýi. Ekki mörg
kunnugleg andlit en þar hittum við
fyrir sagnffæðinema á 3. ári. Hann
segir Vídalín hafa verið ágætan upp
á síðkastið en sækir einnig aðra staði.
„Það er aldrei neitt að gerast á
djamminu. Það lifa allir í þeirri von
að maður geti „höstlað" niður í bæ
og það virðist vera tilgangurinn.
Samt er maður aldrei að höstla neitt
þannig að þetta er orðin bara eintóm
kvöð að fara niður í bæ um helgar.
Ég tek ekki þátt í þessum kjöt-
markaði, mér finnst miklu skemmti-
legra að bara spjalla og hitta fólk
eins og ykkur.“
Tryggvagata
Sssól átti að spila á Gauknum en
voru ekki mættir. Stemmningin í lág-
marki enda fáir komnir en fólk
týndist inn til að hoppa og syngja
„húsið er að gráta.“ Lengi lifír í
gömlum (gl)æðum. Læknanemi utan
að landi ffæddi okkur um að lækna-
deildin, líkt og margar aðrar deildir,
færu á Astró eftir vísindaferðir eða á
Hverfísbarinn.
Hafnarstræti
Við fundum engan á Dubliners en
gólfíð á effi hæðinni átti eflaust eftir
að dúa vel síðar um kvöldið.
Spuming hvenær það hrynur.
Á röltinu ffam hjá Píanó-
bamum hittum við fýrir hagffæði-
nema. Hann sagðist fara sjaldan á
Píanóbarinn og sækja frekar staði
eins og Astró, Sólon og Hverfis-
barinn. „Margir úr hagfræði sækja
þessa staði, Hverfisbarinn af því það
er „east-side place“og Astró af því
það er tilboð á bamum eftir vísinda-
ferðir.“
Þingholtsstræti
Nemar í sparnaðarhugleiðingum
vom á Nelly's eða týndir í tíma og
rúmi. Hilmir Snær er fastagestur -
enda fastur á veggnum. Á Nelly's
grófúm við upp syng-
jandi sálfræðinema
sem djammar einna
helst á Astró og oft
með sálfræðinni. „En
þegar ég er með
alþýðufólki þá læt ég
sjá mig á Nelly's,“
sagði hann og bætti svo
við „ég mundi segja að
það væm þrjár ástæður
fyrir því að ég djamma,
lyfta mér upp með fél-
ögunum, dansa og
stelpur." Nelly’s ætti í
raun ekki að vera verri staður en hver
annar til að uppfylla þessar litlu kröf-
ur skemmtanaglaðra stúdenta.
Á Sportkaffi er málið að mæta
í hvítu ef tilgangurinn er að slá í gegn
á gólfinu. Reykurinn og bláa ljósið
slæva skilningarvitin og skapa
stemmningu sem er einstök. Mann-
skapurinn var að komast í stuð þegar
við áttum leið hjá en við hittum
meðal annarra nema í viðskipta-
ffæði, sem vildi ekki heyra minnst á
viðtal en var alveg til í að láta taka
mynd af sér.
55 Ég tek ekki
þátt í þessum
kjötmarkaðiu
Ingólfsstræti
Á föstudagskvöldinu var Sólon
staðurinn fyrir Röskvufólk sem var
að koma sér í gír fyrir kosningarnar.
Þar var nemi í íslensku og félags-
ffæði. Hún sagði íslenskunema ekki
fara mikið út að djamma heldur vera
ffekar í „lokal“-partýum. Hún sagði
Kaffibarinn þó stundum verða fyrir
valinu. „Við eigum rosalega erfitt
með að fara á skemmtistaði vegna
þess að þar er töluð svo léleg ísl-
enska á djamminu, mikið um þágu-
fallssýki og okkur finnst rosalega
erfitt að heyra slangrið. Gaurarnir
segja til dæmis „vantar þig „light“
elskan? “ Við erum ekki alveg að
skilja hvað „light" er. Það er engin
spumig að ef þú vilt „höstla" ísl-
enskunemana er best að skoða
orðabókina vel og helst að taka ein-
hver falleg og ónýtt orð, einhver orð
sem helst enginn veit hvað þýða,“
sagði íslenskuneminn. Á Sólon sást
einnig til nema í jarðfræði og
viðskiptaffæði.
Eftir Sólon var
rokið yfir á rauðu ljósi og
hlömmuðum við okkur
næst niður hjá sagn-
ffæðinema og heimspeki-
nema á effi hæð Priksins.
Þeir eiga ættir sínar að
rekja til Húsavíkur en
segjst sjaldan sækja í
sveitaballastemmninguna
á Gauknum.
Heimspekineminn sagðist
djamma tvisvar i mánuði
en mjög sjaldan með
skólafélögunum. Sagn-
Föstudagurinn
17.janúar
23:25 Sólon
23:40 Astró
0:02 Kaffibrennslan
0:45 Astró
1:15 Sólon
1:25 Prikið
1:30 Hverfisbarinn
1:43 Grandrokk
1:48 Celtic Cross
1:55 Vegamót
2:05 Ölstofan
2:15 Kalfibarinn