Stúdentablaðið

Árgangur

Stúdentablaðið - 01.01.2003, Blaðsíða 13

Stúdentablaðið - 01.01.2003, Blaðsíða 13
fræðineminn tók í sama streng, en hann sagði þó sagnfræðinema koma helst við á Prikinu. Smiðjustígur Hverfisbarinn vair fullur af fólki og troðið á dans- gólfínu. Á föstudags- kvöldinu var Hverfis- barinn undirlagður af nemum úr Tækniháskóla Islands og Háskóla Reykjavíkur sem voru að djamma eftir vís- indaferðir, auk fólks úr skóla lífsins. Ungir nemar úr Háskóla íslands voru einn- ig á staðnum. Snemma á laugar- dagskvöldinu voru ffekar fáir þrátt fyrir langa röð sem hægt er að lita á sem kærkomið tækifæri fyrir fjölþreifna karlmenn og konur sem finna sig ekki alveg á dansgólfmu. Verkfræðinemi sem lyftir sér oft upp með skólafélögunum, kemur af og til á Hverfisbarinn og hann verkfræðina annars fara mikið á Astró og Sportkaffí. Á laugardagskvöldinu tókum við bensínstopp á Grand Rokk og hittum þar lögfræðinema likt og kvöldið áður. Sumir leggja áherslu á að spila eða tefla en þó ekki allir fastagestimir. Celtic Cross (borið fram Keltic) er staðurinn fyrir vinahópa í stuði og djamm þraukara en staðurinn er opinn langt fram eftir. Lifandi tónlistin fær fólk til að taka undir, eins og verkfræðinema á 2. og 3. ári sem sungu fúllum hálsi gamla Bubbaslagara. Verkfræðinemarnir kunna að finna sér ástæðu til að lyfta sér upp en þeir voru að koma úr félagsvist úr því að þeir fengu ekki vísindaferó. Um að gera að bjarga sér! Laugardagurmn 0:20 Hvcrllsbarinn 0.42 Thorv aldsenbar 0:49 Nasa 0:58 Vídalín 1:14 Gaukurínn 1:20 Dubliners 1:26 Fyrir utan Píanóbarinn 1:33 N'elly’s 1:38 Sportkatfí 1:50 Fyrir utan Sirkus 2:03 Vegamót 2:09 Ölstofan 2:30 Grandrokk 3:15 Katfibarinn 4:18 22 6:30 Matartimi að Dillon og Kaffibarinn væru staðimir sem ísl- enskan færi á. „Á Dillon af því Andrea Jóns er að spila og á Kaffibarinn því þar eru svo sætir barþjónar sem líkjast þó meir vel vöxnum hobb- itum.“ Vegamóta- stígur 55Gaurarnir segja t.d. „vant- ar þig light elskan?" Við erum ekki alveg að skilja hvað light er44 Bergstaðastræti Á Kaffibamum var um auðugan garð að gresja. Þar mátti m.a. finna nema í mannfræði, hagnýtri fjölmiðlun, verkfræði, viðskiptaffæði, íslensku og svo virðist vera sem staðurinn sé einnig vinsæll meðal erlendra nema. Fræga fólkið hafði greinilega þurft að víkja fyrir skemmtanaglöðum háskólanemum og áhangendum þeirra. Einn af barþjónum Kaffi- barsins er í sálffæði og er líklega að greina drykkjuhætti landans. Hann á mikið verk fyrir höndum! íslensku- stúdent á 1. ári fræddi okkur um það Vegamót er án efa stelpustaðurinn í bænum. Sætir barþjónar gera greinilega sitt. Á bamum var samviskusamur 1. árs lögfræðinemi sem var að vinna en ekki drekka. „Ég græði peninga í staðinn fyrir að eyða honum,“ sagði hann skynsamlega. Sjálfúr fer hann ekkert út með lögffæðinni vegna þess að „það er ekkert að gerast þar.“ Hann segist frekar fara á Prikið, Kaffibarinn, Hverfisbarinn og Vegamót. Eftir stutt spjall rauk bar- þjónninn í að afgreiða æstar gellur sem biðu pirraðar við barinn og vildu fara að dansa við taktvissa tóna Jóa Bé. Á Vegamótum fundum við einn- ig nema í bókasafhs- og upplýsinga- ffæði en hann sagðist ekki skemmta sér með skólafélögunum þar sem meirihluti þeirra væru miðaldra konur. Það sást til hans á Kaffibamum seinna um kvöldið. Eldra fólkið hefur loksins fengið góðan samastað á Ölstofúnni. Á föstudagskvöldinu voru fáir háskólanemar þrátt fyrir að boðið sé upp á ódýrar veigar. Eini staðurinn þar sem léttvínsglasið kostar minna en 500 kr. Þrátt fyrir sama troðninginn var andrúmsloftið á laugardagskvöldinu yngra og var eldra fræga liðið eflaust að deyja úr þynnku í úthverfúnum. Gömlu mið- bæjarrottumar létu sig þó ekki vanta ffekar en fyrri daginn. Háskólanemar voru tiltölulega fjölmcnnir, m.a. úr viðskiptafræði, heimspeki, hjúkk- unni... að ógleymdri Andreu Róberts kynjafræðinema. Ein úr viðskipta- fræðinni er nýbyrjuð að stunda Ölstofuna og líkar vel. Hún fer stundum út með skólafélögum en þá er einkum farið á Astró og Sportkaffi þar sem góð tilboð fyrir stúdenta laða að. Nemi úr heimspeki var fámáll en vinur hans, húsasmiðurinn, talaði fyrir hann: „Ég veit alveg hvað þessi maður héma hugsar, ég er búin að þekkja hann síðan við vorum fimm ára. Heimspekinemar em allir eins, vinna ekki handtak, era á lánum og búa enn heima hjá foreldram sínum þótt að þeir séu orðnir 25 ára.“ Eftir þessar yfirlýsingar vinar síns rann feimnin af heimspekinemanum og hann sagði: „Ef við djömmum þá forum við alla leið!“ Ekki vitum við hvað hann átti við með því. Klapparstígur Fyrir utan Sirkus voru eingöngu bitrir karlmenn í biðröð, bijálaðir yfir að gellan í dyrunum hleypti hvorki þeim né okkur inn. Þegar líða fer á nóttina er 22 samkomustaður alvöra tjúttara. Á dansgólfinu eru ffumskógarlögmálin í hávegum höfð. Fjölbreytta flóru háskólanema var þar að finna. Einn guðfræðineminn vissi alveg hvað hann var að gera: „Ég er að gera það sem allir einstæðir karlmenn eru að reyna að gera, dansa og sýna á mér kroppinn." Hann var sammála sagn- fræðinemanum á Vídalín um að makaleit væri tilgangur skemmtana- lífsins. Þegar illa gengur í þeim málum er best að leita trúarlegra leiða til að koma ffá sér niður- drepandi hugsunum. „Það má kannski segja að ég sé að telja sjálf- um mér trú um að ég sé í bindindi. Ég hélt að það væri að virka að segj- ast vera í guðffæði en síðast þegar ég reyndi að tala við stelpur drógu þær upp míkrafón og fannst rosalega sniðugt að taka viðtal við mig.“ Guðffæðineminn kemur oft á 22 en segist mæta því minna í sunnu- dagsmessumar daginn eftir. Hann lætur þó vel að víninu sem þar er í boði. Þó svo hann fari ekki í mess- umar segir hann marga guðffæði- nema gera það. Þegar við spurðum hann hvar við gætum fúndið aðra guðfræðinema sagði hann þetta: „Meðalaldurinn í guðffæðinni er 45 ár. Þetta era óstaðfestar tölur en ef þið viljið hitta guðffæðinema mundi ég ffekar mæla með Kaffi Reykjavík en 22.“ Matartími Vegna þess að Glaumbar var búinn að loka var ekkert annað í stöðunni en að haska sér heim. Einn háskóla- nemi með sósu í munnvikunum fannst fyrir utan Glaumbar í góðum glaumi. Háskólanemar láta ekki úrval skyndibitastaða ffam hjá sér fara undir morgun. Valli í vöfflu- vagninum var þó búinn að pakka niður og farinn heim. Nonni er farinn að loka „snemma" en Hlölli og Kebab húsið vora enn að selja sveitt- ar samlokur. Þar fundum við enn einn viðskiptaffæðinemann. Þeir fara víða. Þetta er ekki tæmandi listi yfir þá staði sem háskólanemar sækja en sökum timaskorts og ó-nemenda- væns leigubílaverðs sáum við okkur ekki fært að hafa viðkomu á fleiri stöðum. Það virðist vera sem ódýr bjór og ýmis tilboð hafi áhrif á hvaða skemmtistaðir verða fyrir valinu hverju sirrni þegar hópar háskóla- nema fara saman út. Það er mikil hreyfing á mannskapnum og á flakki okkar sáum við marga oftar en einu sinni. 95Ég tel mér trú um að ég sé í bindindi44 Þó að þessi atferliskönnun á skemmtanalífi háskólastúdenta sé langt ffá því að vera hávísindaleg bendir margt til þess að stór hluti háskólanema fari ekki út með sam- nemendum sínum, heldur fari ffekar út á galeiðuna með vinunum. Nokkrir viðmælendanna höfðu enga löngun til að skemmta sér með skólafélögunum og komumst við að því að það ríkja ekki einungis for- dómar um skemmtanalíf annarra deilda heldur líka innan deilda. Skemmtanalíf háskólanema virðist vera jafn mismunandi og þeir eru margir. Á flestum stöðum fannst einhver úr Háskólanum þó svo þeir hafi verið fjölmennari á sumum stöðum en öðrum. Eitt er þó víst; leitið og þér munið finna hressa og skemmtilega skólafélaga alls staðar. 1 pMiv a ' PP®» - J i

x

Stúdentablaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Stúdentablaðið
https://timarit.is/publication/350

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.