Stúdentablaðið

Årgang

Stúdentablaðið - 01.01.2003, Side 18

Stúdentablaðið - 01.01.2003, Side 18
18 Stúden^blaðið Stuttar fréttir 10-11 á stúdentagarða? Að undanfomu hafa forsvarsmenn FS og 10-11 rætt um að setja upp verslun í Eggertsgötu 24. Hug- myndin er að setja upp bjarta og fall- ega hraðbúð í anda 10-11 og jafnvel vídeóleigu í kjallarann. 10-11 rekur 19 verslanir og leggur áherslu á langan af- greiðslutíma, gott úrval af helstu nauð- synjavörum, ferskt græn- meti og mat sem er fljót- legt að elda. Viðræðurnar eru enn á könnunarstigi en báðir að- ilar hafa lýst yfir miklum áhuga um að ráðast í verkið. Eins og margir vita hefur það verið draumur og baráttumál margra námsmanna að fá kjörbúð á háskólasvæðið, enda þurfa íbúar stúdentagarða að fara langan veg til að komast í kjörbúð. FS hefur sett upp könnun á heimasíðu stúdentagarða (www.studenta- gardar.is) þar sem stúdentar eru beðnir um að gefa álit sitt á hugmyndinni. Met þátttaka í rafrænni kennslukönnun ÚTÞRÁ 2003: Kynning á námi, leik og starfi erlendis fyrir ungt fólk á aldrinum 15-25 ára Föstudaginn 28. febrúar n.k. býðst ungu fólki á aldrinum 15-25 ára að kynna sér þau íjölbreyttu tækifæri sem standa til boða varðandi nám, leik og starf erlendis. Kynningin, sem nefnist Útþrá 2003, fer fram í Hinu húsinu, Pósthússtræti 3-5, og stendur ffá 16:00 til 18:00. Útþrá 2003 er sniðið fyrir þá sem hugsa sér að dveljast í útlönd- um til lengri eða skemmri tíma. Starfsmenn Hins hússins og þátttak- endur ætla að kynna hina fjölmörgu möguleika sem í boði eru. Boðið verður upp á heitt kakó undir fram- andi tónlist. Eftirfarandi aðilar kynna starfsemi sina: AFS á íslandi (Alþjóðleg fræðsla og samskipti), Alþjóðaskrifstofa Háskólans, Al- þjóðleg Ungmennaskipti (AUS), EES-Vinnumiðlunin, Nordjobb, Snorri West verkefhið, Stúd- entaferðir, Ungt fólk í Evrópu (UFE) og Upplýsingamiðstöð Hins Hússins / Euro- desk. Nánari upp- lýsingar er að finna á heimasiðu Hins Hússins www.hit- thusid.is. Um 20.000 svör bárust í kennslukönnun Háskóla íslands sem lögð var fyrir rafrænt í fyrsta skipti dagana 20. nóvember til 1. desem- ber. Þetta er um 30% meiri þátttaka en áður hefur fengist í kennslu- könnun. Um 60% allra nemenda tóku þátt í könnuninni og skiluðu inn mati fyrir 577 námskeið og 687 kennara. Þessi árangur sýnir svo ekki verður um villst að nemendur við Háskóla Islands er framarlega í notkun veraldarvefsins og er án efa háskólanum hvatning til að halda áfram á sömu braut. Hreinn Pálsson prófstjóri, af- henti fyrir hönd kennslumiðstöðvar einum heppnum þátttakenda verð- laun og þetta skiptið hlaut þau Helga Amadóttir líffræðinemi. Garðalíf Aukinn aðgangur og meira öryggi VFrá Félagsstofnun stúdenta Kaffistofur stúdenta Fyrir skemmstu kom út fyrsta tbl. Garðalífs sem er fréttabréf íbúa á stúd- entagörðum. Stúdentaráð, sem er útgefandi frét- tablaðsins, ætlar með þessu að veita íbúum stúdentagarða nýjustu fféttir og upplýsingar af hagsmunamálum þeirra. Ritstjórar Garðalífs eru þær Brynja Dögg Friðriksdóttir, Dögg Hjaltalín og Hólm- fríður Anna Baldurs- dóttir, nemendur í hag- nýtri fjölmiðlun. Dögg, ein af rit- stjórunum, segir að markmiðið með útgá- funni sé að auka upplýsingaflæðið milli skrifstofu Stúdentagarða og íbúa á görðunum en þær vilji einnig að íbúar á görðunum geti komið málefnum sínum á framfæri. „Við hvetjum lesendur eindregið til að hafa sam- band því að þetta er góóur vettvangur fýrir stúdenta til að vekja athygli á skoðunum sínum.“ Nýlega gekk Háskóli íslands frá samningi við tvö öryggisfyrirtæki, Öryggismiðstöðina og Securitas, um að sjá um gæslu í öllum helstu bygg- ingum skólans. Ætlunin er að setja upp öryggiskerfi og veita nemend- um og starfsmönnum Háskólans aðgang með iykilkortum. Fyrsta kerfið er komið upp í Odda, hús- næði viðskipta- og hagfræðideildar og félagsvisindadeildar, en áætlanir gera ráð fyrir að allar helstu byggingar skólans, s.s. Lögberg, Ámagarður og VRll, fylgi i kjöl- farið og verði tilbúnar fyrir næsta haustmisseri. Þegar kerfíð verður komið í gagnið að fullu eykst að- gengi stúdenta að byggingum Háskólans og jafnframt verður komið í veg fyrir að óboðnir gestir leggi leið sína um byggingamar. Margir forystumanna stúdenta sjá fyrir sér að með þessu kerfi skapist forsendur fyrir sólarhringsaðgangi stúdenta að byggingum Háskólans. Stúdentaráó Háskóla íslands hefur gefið út bæklinginn Réttindaskrá stúdenta sem er ótæmandi upp- lýsinganáma um réttindi stúdenta í húsnæðismálum, réttindi innan Háskóla íslands og gagnvart LÍN og lánasjóðskerfinu. Þar er einnig að fínna upplýsingar um þjónustu SHÍ og annarra málsvara stúdenta. Réttindaskráin er ekki síst gerö til að kynna starfsemi Stúdentaráðs og réttindaskrifstofu Stúdentaráðs. „Skráin er unnin upp úr reglugerðum og reglum sem snerta stúdenta og em upplýsingnar víða að, t.a.m. frá LÍN, HÍ og Tryggingastofnun rík- isins. Það má gera ráð fyrir því að upplýsingar sem skráin veitir breytist með tímanum og því gott að hafa það í huga þegar skráin er lesin,“ sagði Brynjólfur Stefánsson, formaður SHÍ, í samtali við Stúdentablaðið. Bæklinginn má nál- gast á skrifstofu SHÍ Logos, lögmannsþjónusta og Búnaðarbanki íslands styrktu út- gáfúna. Um áramót bættust nokkrar nýjar vörutegundir við á Kaffistofum stúdenta. Meðal þeirra er nýtt og ferskt pastasalat sem er útbúið á staðnum. Stúdentar hafa tekið þessari nýjung á matseðlinum vel en skálin kostar kr. 250. Stúdentakjallarinn FS og Búnaðarbankinn munu sem fyrr bjóða stúdentum á tónleika í Stúdentakjallaranum á þessu miss- eri. Föstudaginn 21. febrúar verður The Klezmer band Shpilkas í kjall- aranum en hljómsveitina skipa tveir Danir og tveir íslendingar. Föstudaginn 14. mars er svo Megas væntanlegur. ’ .....------------------- Réttindaskrá stúdenta

x

Stúdentablaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Stúdentablaðið
https://timarit.is/publication/350

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.