Dýraverndarinn - 15.03.1915, Page 12
8
D Ý R AV ERNDARINN
Sú tegund rifla var lengi auglýst á eftir og þaö haft til meö-
mæla, aö meö einum af þeirri tegund heföi svanurinn veriö
skotinn á Reykjavíkur-tjörn.
En nú eru allir svanir friðhelgir í öllum sveitum. Fugla-
friöunarlög eru aö vísu einatt brotin í öllum löndum. Það er
því við búið aö eþihver falli hér fyrir freistingunni, og aö einn
og einn svanur falli fyrir skoti. Það er svo auövelt reiknings-
dæmi þetta — fyrir mann, sem ekki kann að skammast sin
fyrir að Ijrjóta lög —: brotið kostar 2 kr., ef það kemst
upp, en svanurinn er 5 króna viröi. Þaö borgar sig aö skjóta,
minsta kosti hinn fyrsta. Samt sem áður er góður fengur í
friðunarlögunum.
T a m d i r s v a 11 i r eru prýði margra borga í öðrum lönd-
um. Engin jafnmikil og jafnódýr prýði fyrir höfuöstað íslands
er hugsanleg í bráðina eins og tamdir svanir á Tjörninni. Þegar
brúin er komin yfir tjörnina og tamdir svanir eru þar á sveimi,
mun margur ungur og gamall staðnæmast á brúnni og skemta
sér við að horfa á þá og gefa þeim.
MÚSAMAMMA.
Mýs þykja hvimleiðir gestir hvar sem þær koma. Þær eru
nærgöngular við menn og jafnvel skepnur, og er því ekki að
furða, þó að reynt sé aö gera þær rækar úr öllum mannahí-
býluru. Þær naga alt, sem tönn festir á, og gera ekkert gagn, en
oft talsverðan skaða. Öllum er því illa við þær.
En við megum ekki gleyma því, að músin er dýr með tauga-
kerfi og tilfinningu. Þaö er eðlilegt aö þeim sé fargað, en
ómannúðlegt að kvelja þær meira en þörf er á. Músagildrur
eiga að vera svo, að þær drepi á augabragði, og þær eru nú til
af þeirri gerð. Kötturinn er víðast aöalvörn manna móti músa-
gangi; en þaö er ljótur leikur aö horfa á, er köttur hefur náð
mús og leikur sér að henni áður en hann tekur til matar síns.
Þetta er nú eðli kattarins. Og líklega er það músinni eina
liknin, aö hún verður brátt sljó og meðvitundarlítil í þeirri
viðureign, svo að þaö er ekki víst að hún kveljist mikiö.
Við ættum ekki að reynast ver en kötturinn, og þess mega
ekki finnast dæmi að skepna sé kvalin í hefndarskyni. Ef þú
þarft að lífláta skepnu eða kvikindi, þá hafðu alt af hugfast