Dýraverndarinn


Dýraverndarinn - 15.03.1915, Blaðsíða 16

Dýraverndarinn - 15.03.1915, Blaðsíða 16
12 DÝRAVERNDARINN er viss um aö þeir sakna hans allir, því nú — þvi miöur — fer hann frá Laugarnesinu i vor, og því miður er ekki séð aö Reykjavíkurhestarnir fái annan eins húsbónda í staöinn. Bæjarstjórn Reykjavíkur byggir Laugarnesiö — og um býl- iö kvaö hafa sótt 40—50 menn. Bæjarstjórn Reykjavíkur ætti aö hafa þaö hugfast aö byggja þaö þeim eina manni, sem væri þektur aö því að sýna skepnum velvildarhug. „Dýra- verndarinn" mundi veröa henni þakklátur, ef svo reyndist aö hún geröi þaö. JÖH. ÖGM. ODDSSON. NAFNIÐ. Að því hefur veriö fundið, að „Dýraverndunarfélag I s- 1 a n d s“ kallar sig því nafni, og það fyrir borið, aö félagíð liafi veriö stofnað fyrir Reykjavíkurbæ, og heföi því átt aö heita „Dýraverndunarfélag Reykjavíku r“. Um þetta ætti ekki að þurfa að deila. Meö því að kalla sig því nafni, sem félagiö nú heitir, vill þaö auövitaö tákna, aö starfssviö þess sé ekki Reykjavikurbær eínn, heldur alt landiö. Það vill bæöi meö málgagni sínu og annari starfsemi ná tök- um á öllum landsmönnum, eöa svo mörgum, sem kostur er á. Eitt af því, sem félagið vill beita sér fyrir, er það, að hvetja til stofnunar dýraverndunarsamtaka út um alt land, smærri fé- laga, meö sama markmiði. Fer þá vonandi svo meö tímanum, að nánari samvinna tekst með öllum þeim félögum, sem stofn- uö veröa, meö sameiginlegum fulltrúaþingum viö og viö, og sameiginlegu málgagni. Nafniö skiftir i sjálfu sér minstu, en ekki verður séö, aö félagið villi á sér heimildir með þvi að kalla sig „Dýravernd- unarfélag Islands". Aöalatriöiö er það, aö allir vinni saman, og fái sameiginlegan áhuga fyrir því máli, sem félagiö hefur markað á sinn skjöld, mönnum og málleysingjum til far- sældar. Lög félagsins, sem auglýst eru á öðrum staö í þessu blaði, eru auövitað til l)ráðabyrgða, og þeim þarf að breyta meö tímanum, — ]>egar nokkuö mörg félög eru stofnuö víðsvegar á landinu, svo aö ástæða sé til að stofna til sambands þeirra innbyrðis. Enn er aðeins eitt félag stofnað fyrir tilstilli „Dýra-

x

Dýraverndarinn

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dýraverndarinn
https://timarit.is/publication/598

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.