Dýraverndarinn - 15.01.1916, Blaðsíða 7
DÝRAVERNDARINN
3
honum. Meira kæri jeg mig ekki urn aö segja svo börnin heyri,
— og svo varð þögn.
En börnirí viklu heyra meira, þó að þeim óaði við frarn-
haldinu.
Ja, eg veit ekki, hvort þið hafið nokkuð gott af að heyra
það ; en fyrst þið viljið endilega heyra þaö, þá skal eg segja
ykkur það sem m é r hefur verið sagt um náttúru jressara
kvikinda. Eins og eg sagði, hafa þessi villidýr ekki mök við
menn — ekki lifandi menn, og öllum lifandi mönnum stendur
stuggur af þeim. En þegar harðast sverfur að, þá grata þeir
sig undir kirkjugólfið og 1 e g g j a s t á n á i n n.
Börnin höfðu ekki búist við góðu, en þessum ósköpum voru
þau ekki við búin. Þau fölnuðu, og skulfu af hræðslu, því þeim
datt ekki í hug að rengja söguna, — og sumt fullorðna fólkið
kannaðist við hana, og trúði. Það styrkti líka trúna, að ein-
hver hafði séö urðarköttinn alveg nýlega smeygja sér inn í
holu í kirkjugrunninum. Það var svo senr auðvitað, hvaða erindi
hann átti þangað.
I þessum vandræöum sínum leituðu þau til mörnrnu. Hún
bað þau að setjast hjá sér og sagði þeim þessa sögu:
Einn harða veturinn var hræðilegur músagangur á K i r k j u-
b ó 1 i. Mýsnar voru ekki einungis í búrinu, þar sem þær gátu
átt matarvon, heldur voru þær inn um alla baðstofu, uppi í
rúmum fólksins, í ullarlárunum stúlknanna og allir veggirnir
voru útgrafnir af músum og og mús i hverri holu. Húsbóndinn
var slænmr við konuna sína og köttinn. Kötturinn gat flúið,
og gerði það líka; svo að nú var enginn köttur í bænum. Músa-
gildran var spent á hverju kveldi, og oft var hún veiöisæl, en
þar sá ekki högg á vatni. Loks var tekið það ráð að útvega
kött. En það gekk erfiðlega, því að víðar var nnisagangur en
á Kirkjubóli þennan vetur. Að lokum tókst þó að útvega
ketling. Hann var alsvartur á skrokkinn, en hvítur á framfóta-
tánum og nefinu, blíður í lund, mannelskur og símalandi. Heima
hjá sér fékk hann að liggja í hjónarúminu hvenær sem hann
vildi, og notaöi sér líka af því, nerna rétt á meðan mamma hans
var að kenna honum að veiða.
Það brá svo við á Kirkjubóli, þegar þetta litia grey kom þar,
að mýsnar héldu sig í holum sínum, og týndu líka tölunni, svo
að bráðlega varð alger friður fyrir þeim. Meðan kisa var aö
hreinsa bæinn, átti hún besta atlæti og var gefin mjólk eins