Dýraverndarinn - 15.01.1916, Side 18
14
DÝRAVERNDARINN
sem hér átti í hlut, er hestamaöur og góöur drengur. En hann
er einn af þeim, sem þykir gaman aö ríða hart. Og i þetta sinn
hafði hann riðið o f hart.
Flversu mikið gaman, sem þér þykir að riða hart, þá mundu
alt af eftir því að ofbjóða ekki þoli hestsins þíns.
Sumum þykir gaman að hæla sér af því að hafa riðið svo
og svo langa leið á svo og svo stuttum tíma. Misjafnlega er
á haldið á ferðalögum. Einn fer hlutfallslega langa leið á
stuttum tíma, og hefur þó farið vel með hestinn sinn. Annar
fer styttri leið á jafnlöngum tíma, og hefur samt sem áður farið
illa með hestinn sinn. Satt er það. En oft eru óprúttnir glannar
og skepnuníðingar að hrósa sér af því, sem þeir ættu heldur
að skammast sín fyrir, ])egar þeir eru að monta af hraðri reið.
Ef nokkur á hrósið, þá er það hesturinn. Vandalaust er að
sitja í hnakknum.
DÝRA-SJÚKRAHÚS
Liklega rekur einhver upp stór augu, þegar hann les þetta
orð : d ý r a-s j ú k r a h ú s, — sjúkrahús fyrir hunda, ketti,
kýr og kálfa.
En svona langt eru siðaðar þjóðir komnar í mannúð við
skepnur og góðri meðferð á þeim.
Það er ekki furða, þó að við stöndum agndofa af undrun yfir
Jjví að til séu dýrasjúkra-hús með öllum þeim þægindum, sem
sjúkum dýrum verða látin í té, meðan við eigum ekkert sæmi-
legt sjúkrahús fyrir mennina.
Hinn 25. sept í fyrra var Dýraverndunarfélagið
danska fertugt. Þann dag var opnað — og félagsmönnum til
sýnis — dýra-sjúkrahúsið í Emdrup í Danmörku. Það eru
afarmikil húsakynni, í mörgum deildum, eins og nú þykir
hentugast að byggja öll sjúkrahús; mörg einstök hús, en ekki
ein samfeld bygging. Húslóðin er yfir 14000 ferálnir að stærð,
og húsin hin skrautlegustu, svo að þau gefa ekkert eftir ný-
tískuhúsum í sama augnamiöi fyrir menn. Og allur útbúnaður
innan húss að sama skapi vandaður og fullkominn.
Sjúkrahús þetta hefur kostað 150,000 kr. — og er óneitanlega