Dýraverndarinn


Dýraverndarinn - 15.09.1916, Blaðsíða 2

Dýraverndarinn - 15.09.1916, Blaðsíða 2
66 DÝRAVERNDARINN G i m b a; hún sést illa á myndinni, því aö dóttirin er frek og rySst fram fyrir. Hún er nú veturgömul og farin að finna til sín, enda munu fáar gimbrar vera meira metfé. En þaö var nú eiginlega G i m b a, sem myndin átti aö gera ódauölega, og lesendur Dýraverndarans áttu aö sjá og kynnast ofurlítiö. Hún er nú senn komin á fallanda fót, en hefur veriö væn og vitur. Iiún fæddist 1905; mun hafa mist mömmu sína nokkurra daga gömul og þá verið tekin í fóstur heim að Ögri viö ísafjaröardjúp, þar sem þær Ögurmæögur búa rausnarbúi og eru góöar viö allar skepnur. Má segja aö hún hafi aldrei farið út fyrir túniö síöan. Fyrsta lambið eignaöist G i m b a 1907. Síöan hefur hún ávalt átt tvílembing, nema eitt skifti einlembing og eitt skifti þrilembing. Það var í vor. Hún hefur nú eignast 19 lömb, og engin afstyrmi hafa. þau veriö. Árs árlega hafa tvilembing- arnir veriö 25—33 kr. virði. En i fyrra haust var annar þeirra (hrútlamb) seldur á 28 k r. og 90 a u r a. Hitt var gimbur og sett á vetur; þaö er hún, sem sést á myndinni. Vel var hún á vetur setjandi, því að í október var hún 39 ko. aö þyngd. G i m b a hlaut ágætt uppeldi, þó aö aldrei væri hugsaö um aö láta hana á sýningu til verðlauna, og hún hefur lifaö góöu lifi og viö gott atlæti. Hún hefur borgaö uppeldiö í fríðu, og atlætiö hefur hún borgað meö trygö viö eigandann. Því aö hún er eins vitur og hún er væn. Svo veröa flestar skepnur, sem fólk umgengst mjög mikiö. R a g n h i 1 d u r, eigandi G i m b u, kann margar sögur aö segja af viturleik hennar og trygö viö sig, ef hún vildi þeim sögum á lofti halda. KYNBÆTUR Lengi hefur veriö rætt og ritaö um kynbætur á búpeningi, og lítilsháttar tilraunir hafa verið geröar. En hvar er árang- urinn? Sér þess nokkurstaðar merki, aö fjárkyn, nautgripa- kyn eöa hrossakyn sé að batna? Nei, svo langt er ekki komiö enn. Hross eru orðin merkileg markaösvara hér á landi, en geta orðið langtum meira viröi en þau eru nú, þó aö verðið þyki nú

x

Dýraverndarinn

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dýraverndarinn
https://timarit.is/publication/598

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.