Dýraverndarinn


Dýraverndarinn - 01.06.1930, Síða 16

Dýraverndarinn - 01.06.1930, Síða 16
30 DÝRAVERNDARINN strokuhesta, sem sloppið hafa og ekki náðst fyr en eftir langan tíma. Og þó tekur út yfir þegar þreyttir langferöa- hestar, aS afloknu dagsverkinu, eru heftir á þennan hátt. Viö gætum reynt aö binda saman á okkur fæturna meS harðsnúnum kaöli eöa ein- hverjum öSrum spotta, og vita hversu notalegt þaö er, t. d. ef við erum þreyttir eftir langa göngu. Ætli okkur þætti það ekki ónotalega ]>reytandi, að geta hvorki hreyft legg eða lið á eðlilegan háttí' Nú munu menn segja, að það verði ekki hjá þvi komist, að hefta suma hesta, og má það vel vera. En þá er að gera höftin svo úr garði, að þau þvingi ekki hestinn, og að þau vaidi honum sem allra minstum óþægindum." Eggert Kristjánsson söðlasmiður í Reykjavík hefir á seinni árum látið gera mjög hentug' höft og fást þau í verslun hans „Sleipni“ í Reykjavík. Fylg- ir hér mieð mynd af einu slíku hafti. Eru höftin gerð sumpar úr leðri, fóðruð að innan með flóka, léttir járnhlekkir á millihólkanna,semspentireruum fætur hestsins með hringjum. Höftin eru létt og liðleg í allri notkun og munu þau endast lengi með góðri hirðu. Aðeins mætti að þessu hafti finna, sem myndin sýnir, að of stutt sé á milli hólkanna. Mynd- in sýnir 4 hlekki en vitanlega er auðvelt, að fjölga þeim, og ættu þeir helzt ekki að vera færri en 8—9. Það er nauðsynlegt að haftið sé svo langt að hest- urinn geti gengið í því, en þurfi aldrei að hoppa. Enda er það reynsla margra hestamanna að hestar sé venjulega hagspakari í gönguhafti.ogáreiðanlegt, að þeim líður á allan hátt betur, i stað þess að geta ekki hreyft sig öðru vísi en að hoppa. Þess vegna er ástæðulaust og auk þess heimskulegt, að valda nokkurum hesti þeim óþægindum, er gera hann óyndisgjarnan og uppstökkan. Væri nú vel, að þeir sem hefta þurfa hesta sina vildu taka upp þessi höft og munu þeir íljótt kom- ast að raun um að það borgar sig. Sérstaklega ættu þó allir ferðamenn að hafa slik höft með i föggum sínum, svo hægt sé til þeirra að grípa ef með þarf. Höftin kosta i lausasölu kr. 5,00, en kaupmienn og kaupfélög munu geta fengið þau fyrir lægra verð'. Einar Sæm. Hrefna. Kettir hafa jafnan verið á heimili mínu, og hefi eg löngum haft gaman að athuga ýmsa háttu þeirra. Ekki hefir mér dulist, að sama gildir um ketti og önnur dýr, er eg hefi verið samvistumi við, að þeir hafa sýnt í háttum sínurn misjafnlega mikla vits- muni. n í þetta sinn ætla eg að segja lítilsháttar frá einni kisu minni en hana, tel eg hafa, að vitsmunum til, skarað fram úr flestumi, ef ekki öllum köttum, sem eg hefi þekt. Þó má vera að eg hafi gefið Hrefnu, (svo var kisa nefnd af litnum, sem var einkenni- lega hrafnsvartur), meiri gaum en öðrum köttum, enda fylgdi hún mér lengst, og fluttist með mér þrisvar sinnum, er eg hafði bústaðaskifti. Árið 1914 fluttist Hrefna með mér frá Brautar- holti að Lágafelli í Mosfellssveát. Þegar þangað kom hafði hún ærinn starfa, því að þar var þá rottugangur mikill, eins og oft vill verða þar sem torffjós eru, en nautpeningur fóðraður mikið til á rnjöli eða öðru kjarnfóðri. Vitsmuna kisu gætti þá lítils i öðru en dugnaði hennar og árvekni við rottu- veiðarnar. En tæki hún sér rrí frá því starfi, elti hún m:g eins og tryggur rakki milli húsa eða út um tún og engjar. Var þá oft gaman að ýmsum leikj- um hennar og háttum og var mér mikil ánægja af fylgd hennar. Að öðru leyti voru þau tvö ár, sem hún dvaldi á Lágafelli ekki viðburðarrík fyrir hana. Árið 1916 flutti eg til Reykjavíkur og tók að sjálfsögðu Hrefnu með mér. Fyrsta húsið sem eg kom í var á Laugaveg 15, en þar bjó þá Ólafur Runólfsson, stjúpfaðir konu rninnar. Ekki dvaldi kisa þar næturlangt, því að eg tók hana samdægurs með mér í hús það er eg fluttist í,

x

Dýraverndarinn

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dýraverndarinn
https://timarit.is/publication/598

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.