Dýraverndarinn - 01.02.1973, Page 10
hefur fallið í sömu gryfju og Kon-
ráð, borðað rottueitur í staðinn
fyrir hundamat. Hann verður að
vera á spítalanum nokkra daga í
viðbót þar sem dekrað er við hann
á alla lund og honum gefnir
skammtar af K-vítamíni.
Stofugangurinn á dýraspítalanum
í Emdrup er ekki ósvipaður og ger-
ist og gengur á sjúkrahúsum al-
mennt. Nema hvað sjúklingarnir
líta að sjálfsögðu nokkuð öðruvísi
út. Bent Riis yfirdýralæknir og
dýralæknarnir Ove Jespersen og
Peter Aller eru klæddir í hvíta
sloppa og á eftir þeim gengur
Jannie Larsen, hjúkrunarkona og
ritari. Á stofuganginum er líðan
120-130 innlagðra dýra athuguð.
Nær skoðunin yfir alla þá sjúk-
dóma sem hrjá ketti, hunda,
hamstra, fugla, pöddur og yfirleitt
flestar þær dýrategundir sem fólk
hefur fyrir húsdýr.
Þrífœttir vinir.
Hundar eru í miklum meirihluta
meðal sjúklinganna og flestir hafa
orðið fyrir svipuðum óhöppum og
mennirnir verða fyrir. Margir hafa
t. d. orðið fyrir óhöppum í umferð-
inni og hoppa um á þrem fótum
því sá fjórði er í gipsi eða vafinn
sáraumbúðum. En það hindrar þá
ekki í að stökkva í loft upp þegar
stofugangurinn stendur yfir. Hund-
ur verður að vera mjög veikur til
að hann láti ekki í ljós þörfina á
að komast í snertingu við menn.
Við hverja „stofu" er spjald með
nafni hundsins og fjölskyldu hans.
Kirkjuyfirvöld vilja hafa afskipti af
því hvaða nöfn foreldrar velja
törnum sínum, en það eru engin
takmörk fyrir því hvaða nöfn fólki
dettur í hug að velja húsdýrum sín-
um. Hér eru hundar sem heita í
höfuðið á poppsöngvurum og aðrir
sem heita eftir uppáhaldsdrykk
húsbóndans. Wisky Petersen, sem
lenti í umferðarslysi, hefur alveg
sama vinalega augnaráðið og mað-
ur sem hefur lokið við þriðja há-
degissjússinn og Hof Dam geltir
af heimþrá eins og sönnum bjór-
hundi sæmir.
Hver sjúklingur er vandlega
rannsakaður. Það er skrifuð skýrsla
og ritarinn punktar allt samvizku-
samlega niður í vasabók. Því hún
verður að vera viðbúin mörgum
spurningum þegar aðstandendur
hringja og spyrja um líðan hins
heitt elskaða og sárt saknaða sjúk-
lings. Og það eru margir sem
hringja og spyrja margs.
lnnilegar tilfinningar.
Þær tilfinningar sem látnar eru
í ljós á venjulegum spítölum eru
hreint smáræði miðað við það
sem gerist á dýraspítala. Fólki
finnst það ekki viðeigandi að kasta
sér grátandi yfir ættingja, sem
verið er að aka inn á skurðstofu,
eða kyssa og faðma eiginmanninn
eða eiginkonuna ákaflega á sjúkra-
beðinu á heimsóknartíma. En þær
tilfinningar sem fólk sýnir hvert
öðru yfirleitt í einrúmi, fá opin-
bera útrás þegar dýr eiga í hlut.
- Ef það kemur eitthvað fyrir
Pelle, þá dey ég, sagði kona ein
um leið og hún kom með lítinn
hvítan hund. En ótti hennar reynd-
ist ástæðulaus því lítið amaði að
hvutta. í afgreiðslunni stendur
pelsklædd kona og tárin streyma
niður á bröndóttan kött sem hún
hefur í fanginu. — Mundu að hann
er bezti vinur móður sinnar, kallar
hún til aðstoðarstúlkunnar sem á
að fara með uppáhaldið á katta-
deildina.
Á þeirri deild er hvorki fagnað-
arsöngur né önnur merki um gleði,
þegar stofugangurinn stendur yfir.
Kettirnir sitja í búrum sínum, með
fjarrænu augnaráði virða þeir fyrir
sér fylkinguna og það eru bara
þeir nýkomnu sem mjálma í þe'rri
von að eigendurnir heyri til þeirra.
Stór högni, sem heitir Drengur
að fornafni og Jensen að eftirnafni,
horfir grunsemdaraugum á lækn-
ana. Til þess hefur hann fulla
ástæðu, því frá og með þessum degi
hefur hann sungið sinn síðasta
ástarsöng. Ákveðið hefur verið að
gelda hann og það hlýtur að vera
mjög átakanlegt fyrir kött sem ber
nafnið Drengur.
Daginn skipstjóri.
Stofugangurinn endar hjá fugl-
unum. Á þeirri deild fara fram
stórmerkir uppskurðir. Páfagaukar
og.kanarífuglar eru skornir upp við
margs konar innvortis sjúkdómum
og síðan saumaðir saman á ný. Sár
eru grædd, brotnir vængir gerðir
heilir og þar fram eftir götunum.
Eins og á öllum öðrum sjúkra-
húsum er einn sjúklingur í sér-
stöku uppáhaldi á þessari deild.
Það er indverski páfagaukurinn Bea
Jensen, sem situr í búri sínu og
spjallar. — Daginn skipstjóri. Á ég
nú aftur að þvo upp? spyr fugl-
inn.
Nágranni þess málglaða er Jago
páfagaukur sem er þögull sem gröf-
in. Hann hefur plokkað af sér
allar fjaðrir í sorg sinni yfir því
að fjölskylda hans neyddist til að
10
DÝKAVERNDARINN