Dýraverndarinn - 01.02.1973, Blaðsíða 10

Dýraverndarinn - 01.02.1973, Blaðsíða 10
hefur fallið í sömu gryfju og Kon- ráð, borðað rottueitur í staðinn fyrir hundamat. Hann verður að vera á spítalanum nokkra daga í viðbót þar sem dekrað er við hann á alla lund og honum gefnir skammtar af K-vítamíni. Stofugangurinn á dýraspítalanum í Emdrup er ekki ósvipaður og ger- ist og gengur á sjúkrahúsum al- mennt. Nema hvað sjúklingarnir líta að sjálfsögðu nokkuð öðruvísi út. Bent Riis yfirdýralæknir og dýralæknarnir Ove Jespersen og Peter Aller eru klæddir í hvíta sloppa og á eftir þeim gengur Jannie Larsen, hjúkrunarkona og ritari. Á stofuganginum er líðan 120-130 innlagðra dýra athuguð. Nær skoðunin yfir alla þá sjúk- dóma sem hrjá ketti, hunda, hamstra, fugla, pöddur og yfirleitt flestar þær dýrategundir sem fólk hefur fyrir húsdýr. Þrífœttir vinir. Hundar eru í miklum meirihluta meðal sjúklinganna og flestir hafa orðið fyrir svipuðum óhöppum og mennirnir verða fyrir. Margir hafa t. d. orðið fyrir óhöppum í umferð- inni og hoppa um á þrem fótum því sá fjórði er í gipsi eða vafinn sáraumbúðum. En það hindrar þá ekki í að stökkva í loft upp þegar stofugangurinn stendur yfir. Hund- ur verður að vera mjög veikur til að hann láti ekki í ljós þörfina á að komast í snertingu við menn. Við hverja „stofu" er spjald með nafni hundsins og fjölskyldu hans. Kirkjuyfirvöld vilja hafa afskipti af því hvaða nöfn foreldrar velja törnum sínum, en það eru engin takmörk fyrir því hvaða nöfn fólki dettur í hug að velja húsdýrum sín- um. Hér eru hundar sem heita í höfuðið á poppsöngvurum og aðrir sem heita eftir uppáhaldsdrykk húsbóndans. Wisky Petersen, sem lenti í umferðarslysi, hefur alveg sama vinalega augnaráðið og mað- ur sem hefur lokið við þriðja há- degissjússinn og Hof Dam geltir af heimþrá eins og sönnum bjór- hundi sæmir. Hver sjúklingur er vandlega rannsakaður. Það er skrifuð skýrsla og ritarinn punktar allt samvizku- samlega niður í vasabók. Því hún verður að vera viðbúin mörgum spurningum þegar aðstandendur hringja og spyrja um líðan hins heitt elskaða og sárt saknaða sjúk- lings. Og það eru margir sem hringja og spyrja margs. lnnilegar tilfinningar. Þær tilfinningar sem látnar eru í ljós á venjulegum spítölum eru hreint smáræði miðað við það sem gerist á dýraspítala. Fólki finnst það ekki viðeigandi að kasta sér grátandi yfir ættingja, sem verið er að aka inn á skurðstofu, eða kyssa og faðma eiginmanninn eða eiginkonuna ákaflega á sjúkra- beðinu á heimsóknartíma. En þær tilfinningar sem fólk sýnir hvert öðru yfirleitt í einrúmi, fá opin- bera útrás þegar dýr eiga í hlut. - Ef það kemur eitthvað fyrir Pelle, þá dey ég, sagði kona ein um leið og hún kom með lítinn hvítan hund. En ótti hennar reynd- ist ástæðulaus því lítið amaði að hvutta. í afgreiðslunni stendur pelsklædd kona og tárin streyma niður á bröndóttan kött sem hún hefur í fanginu. — Mundu að hann er bezti vinur móður sinnar, kallar hún til aðstoðarstúlkunnar sem á að fara með uppáhaldið á katta- deildina. Á þeirri deild er hvorki fagnað- arsöngur né önnur merki um gleði, þegar stofugangurinn stendur yfir. Kettirnir sitja í búrum sínum, með fjarrænu augnaráði virða þeir fyrir sér fylkinguna og það eru bara þeir nýkomnu sem mjálma í þe'rri von að eigendurnir heyri til þeirra. Stór högni, sem heitir Drengur að fornafni og Jensen að eftirnafni, horfir grunsemdaraugum á lækn- ana. Til þess hefur hann fulla ástæðu, því frá og með þessum degi hefur hann sungið sinn síðasta ástarsöng. Ákveðið hefur verið að gelda hann og það hlýtur að vera mjög átakanlegt fyrir kött sem ber nafnið Drengur. Daginn skipstjóri. Stofugangurinn endar hjá fugl- unum. Á þeirri deild fara fram stórmerkir uppskurðir. Páfagaukar og.kanarífuglar eru skornir upp við margs konar innvortis sjúkdómum og síðan saumaðir saman á ný. Sár eru grædd, brotnir vængir gerðir heilir og þar fram eftir götunum. Eins og á öllum öðrum sjúkra- húsum er einn sjúklingur í sér- stöku uppáhaldi á þessari deild. Það er indverski páfagaukurinn Bea Jensen, sem situr í búri sínu og spjallar. — Daginn skipstjóri. Á ég nú aftur að þvo upp? spyr fugl- inn. Nágranni þess málglaða er Jago páfagaukur sem er þögull sem gröf- in. Hann hefur plokkað af sér allar fjaðrir í sorg sinni yfir því að fjölskylda hans neyddist til að 10 DÝKAVERNDARINN

x

Dýraverndarinn

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dýraverndarinn
https://timarit.is/publication/598

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.