Dýraverndarinn - 01.02.1978, Side 4
Skýrsla stjórnar
Á aðalfundi S.D.Í. þann 5. des.
1976 voru eftirtaldir menn kosnir
í stjórn:
Jórunn Sörensen, formaður.
Gunnar Steinsson, varaformaður.
Ólafur Jónsson, ritari.
Hilmar Norðfjörð, gjaldkeri.
Meðstj órnendur:
Gauti Hannesson,
Kristleifur Einarsson,
Paula Sörensen.
Varamenn:
Skúli Ólafsson,
Álfheiður Guðmundsdóttir,
Sverrir Þórðarson
Sólveig Theodórsdóttir.
Endurskoðendur:
Þórður Þórðarson,
Magnús Þorleifsson.
Dagur dýranna.
Dagur dýranna var haldinn 18.
sept. s.l. Dagskráin var með hefð-
bundnum hætti, ef hægt er að nota
það orð, þegar Dagur dýranna hefur
aðeins verið haldinn fimm sinnum.
En þetta er í fjórða sinn sem þetta
form er á honum, þ. e. merkjasala
víðs vegar um landið, ávarp í blöð-
um og öðrum fjölmiðlum. Dýranna
var einnig minnst í kirkjum lands-
ins, en biskupi hafði verið ritað
vegna þess.
Útvarpið hafði eins og fyrr, dag-
skrá og sáu Jórunn Sörensen og
Borgþór Kjærnested fréttaritari um
hana.
Merkjasalan var eins og áður
sagði víðs vegar um landið. Á fleiri
stöðum en nokkru sinni áður. 1
4
S.D.Í. um árið 1977
Reykjavík aðstoðuðu félagar úr
Dýraverndunarfélagi Reykjavíkur
og Hundavinafélagi íslands stjórn
S.D.Í. við dreifingu merkjanna. í
Hafnarfirði sá Dýraverndunarfélag
Hafnfirðinga um merkin og á Ak-
ureyri var það Dýraverndunarfélag
Akureyrar. Á öðrum stöðum voru
það ýmsir einstaklingar er tóku
þetta að sér. Stjórn S.D.Í. þakkar
öllu þessu fólki af heilum hug.
Útvarpsdagskráin var tvískipt. í
fyrri hlutanum var minnst villtu
dýranna í landinu og þess réttar
sem þau hafa til landsins en er svo
oft fótum troðinn. En í seinni hluta
dagskrárinnar ræddi Jórunn Sören-
sen við stjórnarformann Dýraspít-
ala Watsons um spítalann og hvers
vegna hann væri þá ekki enn tek-
inn til starfa. Verður nánar rætt
undir kaflanum um dýraspítalann.
Dagblöðum og öðrum fjölmiðl-
um var sent ávarp í tilefni dagsins
og var það helgað villtum dýrum á
íslandi. Einnig var bent á nauðsyn
þess að henda ekki fiskúrgangi,
þannig að fugl komist í hann, og
byrgja sorphauga í sama augna-
miði. En fuglum sem lifa á slíkum
úrgangi hefur fjölgað gífurlega á
undanförnum árum.
Fulltrúajundur landverndar.
Að þessu sinni var fulltrúafundur
Landverndar haldinn í Munaðar-
nesi í Borgarfirði. Sólveig Theo-
dórsdóttir sat fundinn að þessu
sinni af hálfu S.D.Í. Hefurhún skýrt
stjórn S.D.Í. frá för sinni og kvað
erindi og umræður fundanna hafa
verið bæði gagnlegar og ánægju-
legar.
Það er dálítið skemmtileg til-
viljun að verkefni þessa fulltrúa-
fundar Landverndar var einmitt
nýting og frágangur fisk- og slátur-
úrgangs og sorps, m. a. með það
markmið fyrir augum að draga úr
fjölgun þeirra fugla, sem nú tíðk-
ast að kalla „vargfugla".
Dýraverndarinn
Af Dýraverndaranum hafa kom-
ið út sex tbl. á árinu - tvö og tvö
saman. Sama ritnefnd starfar nú
eins og nokkur undanfarin ár, það
eru Gauti Hannesson og Jórunn
Sörensen. Auglýsingar eru í hönd-
uh Hilmars Norðfjörðs og Jón ís-
leifsson sér um afgreiðsluna. Stjórn
S.D.Í. sér sérstaka ástæðu til að
þakka Jóni ísleifssyni hans störf,
en hann hefur séð um afgreiðslu
blaðsins undanfarin ár með slíkum
ágætum að betur verður ekki gert.
S.l. vor var aðildarfélögum S.D.Í.
ritað og þeim boðið að senda efni
til birtingar í blaðinu. Var þetta
gert til að auka fjölbreytni efnis og
einnig til að aðildarfélögin gætu
komið skoðunum sínum og ábend-
ingum á framfæri við félagsmenn
sína. Tvö félög hafa sent nokkuð
efni en ekkert hefur borist frá hin-
um. Vonandi taka þau einnig við
sér og senda efni í blaðið. Þannig
verður það meiri eign okkar allra.
Áskrifendum hefur fjölgað mik-
ið á árinu og er það nær eingöngu
DÝRAVERNDARINN