Dýraverndarinn - 01.02.1978, Blaðsíða 7
A ðalfundur Dýraverndunarfélags
Akureyrar.
Formanni S.D.Í. var boðið á síð-
asta aðalfund D.A. sem haldinn var
í febrúar 1977. Var þetta einstak-
lega ánægjuleg helgi sem formaður
S.D.Í. átti þar í hópi norðlenskra
dýravina og einnig á heimili for-
manns. D.A., Maríusar Helgasonar.
Á þessum fundi var samþykkt að
styrkja Dýraverndarann með 50
þús. króna gjöf. Þessi höfðinglega
gjöf af svo nýstofnuðu félagi til
okkar fátæka málgagns er ómetan-
leg og verður ekki fullþökkuð. En
stjórn S.D.Í. metur þann einstaka
hlýhug og velvild sem liggur að
baki þessari gjöf.
Kattabœklingurinn
Sala kattabæklingsins sem gefin
var út fyrir jólin 1976 hefur gengið
nokkuð vel. Bæklingurinn var send-
ur til bókaverslana víðs vegar um
land. Stjórnarmenn S.D.Í. hittust
eina kvöldstund og pökkuðu ritinu.
Útivistarráðstefna Landverndar.
Landvernd hélt ráðstefnu um úti-
líf, í Reykjavík 30. apríl 1977. Af
hálfu S.D.Í. sat Ólafur Jónsson ráð-
stefnuna.
Dýraspítalinn
í upphafi ársins 1977 var haldið
áfram að vinna að stofnun sjálfs-
eignarfélagsins Dýraspítali Wat-
sons. Fundir voru haldnir í undir-
búningsnefnd og unnið að gerð
skipulagsskrárinnar og framkomn-
um breytingartillögum á henni, en
hún hafði áður verið send eigend-
um spítalans til kynningar. Þessi
tími var einnig notaður til að búa
húsið betur undir væntanlega starf-
semi.
Undirbúningsnefndin fól Sigfríði
DÝRAVERNDARINN
Þórisdóttur að hafa framkvæmda-
stjórn á því verki.
Eins og fram hefur komið í fyrri
ársskýrslum, hefur S.D.Í. safnað fé
til spítalans. Þetta fé var nú allt
notað, en þar sem það var ekki nóg,
safnaði Sigfríð stórum upphæð-
um til þessa og sýndi þar eins og í
öðrum störfum sínum einstakan
dugnað og ósérhlífni.
Það voru smíðuð sex hundabúr,
skápar fyrir lyf og umbúðir. Keypt
voru áhaldaborð og þ. u. 1. - Flís-
ar voru settar á veggi í hundaher-
bergi í sjálfboðavinnu af stjórnar-
mönnum í S.D.Í. Plastefni var lagt
á gólf í hunda- og kattaherbergj-
um Ýmsir aðilar gáfu stóla í bið-
stofu, gluggatjöld, spegil, hand-
klæðaslár o. s. frv.
Loks kom að því að undirbún-
ingsvinnu var lokið og var gengið
til undirritunar skipulagsskrárinn-
ar. Var það gert á fundi er haldinn
var í dýraspítalanum. Jakob Jónas-
son, formaður Hundavinafélags ís-
lands, undirritaði með þeim fyrir-
vara að húsið yrði samþykkt sem
spítali af yfirdýralækni. Strax eftir
þennan fund var haft samband við
settan yfirdýralækni, Guðbrand
Hlíðar, í fjarveru Páls A. Pálssonar.
Hann brást skjótt við og skoðaði
húsið gaumgæfilega. í bréfi sínu
um spítalann lýsir hann ánægju
sinni með húsið og segir m. a.: „Ég
tel að þarna sé kominn hin æskileg-
asta aðstaða til rannsókna og hvers
konar aðgerða og geymslu heimilis-
dýra. Er með þessu sjúkrahúsi ráðin
bót á tilfinnanlegum skorti á að-
stöðu til aðgerða og vörslu sjúkra
heimilisdýra sem lengi hefur verið
brýnn skortur á hér í borg."
Eftir að þetta bréf hafði borist
var skipulagsskrá Dýraspítala Wat-
sons send dómsmálaráðuneytinu til
staðfestingar og þar fékk hún skjóta
og góða afgreiðslu.
Stofnfundur sjálfseignarfélagsins
„Dýraspítali Watsons" var síðan
boðaður þann 20. maí 1977. Það
var jafnframt fyrsti aðalfundur fé-
lagsins.
Á stjórnarfundi S.D.f. voru
Gunnar Steinsson og Sverrir Þórð-
arson valdir sem fulltrúar S.D.Í. í
sjálfseignarfélaginu Dýraspítali
Watsons.
Um þessi áramót safnaði Paula
Sörensen, stjórnarmaður S.D.Í.,
ein krónum 45.000 fyrir dýraspítal-
ann. Gjöfin var ætluð til kaupa á
tæki til notkunar við súrefnistæki
spítalans. Paula safnaði miklu meiru
en fyrir andvirði tækisins og hefur
7