Dýraverndarinn - 01.02.1978, Síða 8

Dýraverndarinn - 01.02.1978, Síða 8
stjórn dýraspítalans nú verið af- hent tækið og peningarnir. Hundahreinsun. Haft var samband við stjórn S.D.f. vegna hundahreinsunar í einu af nágrannabyggðarlögum Reykjavíkur. Þrátt fyrir háan hundaskatt er ekki meiri tækni við hundahreinsun þar en það að enn er hreinsað með gamla laginu - niðurgangslyfi og lýsólbaði. Núver- andi stjórn S.D.Í. hefur um árabil barist gegn þessari aðferð og er grein þess efnis meðal þeirra til- lagna er lagðar hafa verið fyrir full- trúa S.D.Í. í dýraverndunarnefnd ríkisins, Sigríði Ásgeirsdóttur hér- aðsdómslögmann. Hún fór á stað- inn ásamt Sigfríði Þórisdóttur dýra- hjúkrunarkonu og ljósmyndara. Vonandi fara nú augu almenn- ings og ráðamanna að opnast fyrir því hve hér er um villimannslegar aðferðir að ræða og taka upp nýrri og betri aðferðir sem löngu eru komnar til sögunnar og nú þegar notaðar á nokkrum stöðum. Hundar og kettir á flcekingi. Þessi dýr halda áfram að lenda á flækingi, eins og reyndar flest önn- 8 ur dýr mannanna. Fundnir og tap- aðir hundar eru yfirleitt mál sem leyst eru í samvinnu við Guðmund Hannesson og konu hans íris hjá Hundavinafélaginu og dýrahjúkr- unarkonuna Sigfríð. Sigfríð hefur verið óþreytandi að útvega þeim hundum sem eigandi finnst ekki að ný og góð heimili. Öll aðstaða til vörslu flækingshunda hefur batnað stórlega eftir að hjálparstöðin var opnuð í dýraspítalanum. Og nú þegar hefur eitt bæjarfélag nána samvinnu við stöðina, er það Garðakaupstaður. En það skal tekið fram, að það er alltof algengt að hundar finnist ómerktir á flækingi og einnig að þrátt fyrir ýtarlegar auglýsingar og eftirgrennslan hefst EKKI upp á eiganda þeirra. Það er skömm að þessu og ber að vinna gegn þessu athæfi eftir mætti. í tveim tilfellum var leitað til sam- bandsins af eigendum hunda er höfðu misst hundinn sinn í hendur lögreglunni. í annað skiptið heppn- aðist að fá hundinn afhentan lif- andi og var það í Kópavogi. í hitt skiptið var búið að drepa hundinn er talað var við sambandið og var það í Reykjavík. Einnig var kært yfir því að hund- ar væru drepnir á mjög óviður- kvæmilegan hátt í Hveragerði. Var margtalað við lögregluna á Sel- fossi um þessi mál og henni bent á lög um hundahald. Það virðist oft fara saman algjört kæruleysi al- mennings fyrir að gæta dýra sinna og hrottaskapur löggæslunnar og erfitt að brúa það bil. Á svipaðan hátt er þetta með kettina. Þeir leggjast mikið í flakk vegna þess að eigendur þeirra at- huga ekki að láta gera dýrin ófrjó. Aukinn skilningur er þó einnig á þessu og fer vonandi vaxandi. Formaður sambandsins og dýra- hjúkrunarkonan hafa í nokkrum til- fellum farið og handsamað algjöra villiketti - urðarketti. Hundar í svelti Fyrir ári síðan fékk stjórn S.D.Í. fregnir af því að 3 hundar væru lokaðir inni í gluggalausu herbergi í aflagðri verslun við Vesturgötu í Reykjavík. Hundarnir höfðu að sögn verið þarna um árabil. Þeir voru þarna í nær algjöru hirðu- leysi - sjaldan eða ekki viðraðir og nánast aldrei í samneyti við menn. Sóðaskapurinn var gífurlegur á staðnum. Margoft var haft samband við eiganda hundanna og reynt að benda honum á hve illa hann færi með hundana sína. En það var al- gjörlega talað fyrir daufum eyrum og hann svaraði skætingi einum. Þá var haft samband við lögreglu, en er hún kom á staðinn höfðu hundarnir verið fjarlægðir. í sumar fréttum við svo aftur af þessum hundum, þá voru þeir komnir í sumarbústað upp við Lög- berg og hafði lögreglan í Hafnar- firði afskipti af þeim vegna lambs sem sagt var að þeir hefðu drepið. DÝRAVERNDARINN

x

Dýraverndarinn

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dýraverndarinn
https://timarit.is/publication/598

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.