Dýraverndarinn


Dýraverndarinn - 01.02.1978, Blaðsíða 9

Dýraverndarinn - 01.02.1978, Blaðsíða 9
Var einn af þessum hundum aflíf- aður. En nú um miðjan febrúar höfðu skátastúlkur er höfðu verið í göngu- för samband við stjórn S.D.Í. Þær höfðu komið að umræddum sumar- bústað og séð þar fjóra hunda inni. Lýstu þær ástandi hundanna og var mjög brugðið. Formaður S.D.Í. og dýrahjúkr- unarkonan fóru á staðinn og sóttu hundana. Var farið með þá í hendur dýralæknis á Keldum og þangað komu lögreglumenn úr Hafnarfirði. í krufningsskýrslu dýralæknis segir m. a.: „... Skoðun á hundunum leiddi til þeirrar niðurstöðu, að hundun- um bæri að lóga. Utlit þeirra bar glögg merki langvarandi vanhirðu. Allir voru hundarnir strengdir upp í hrygg af langvinnu matarleysi og uppþornaðir af skorti á drykkjar- vatni. Tveir þeirra voru svo mátt- farnir af næringarleysi að þeir gátu vart staðið. Þar sem ég taldi ó- verjandi að láta dýrin lifa eins og þau voru á sig komin og mjög vafa- samt að þeim mætti koma til fullrar heilsu og holda, var þeim lógað með svæfingu og þeir síðan krufðir.' Eigandi hundanna hefur verið kærður. Kindur. Ætíð er nokkuð um að kvartað sé yfir meðferð á kindum. Að þær gangi órúnar þó komið sé langt fram á sumar, að illa sé fóðrað, að þær séu á útigangi o. s. frv. Eitt mjög alvarlegt mál kom upp í sambandi við vanfóðrun og van- hirðingu og var það leyst í sam- ráði við viðkomandi trúnaðarmann. Einnig er á hverju hausti kvart- að yfir því að fé sé haft of lengi í réttum án fóðurs og vatns áður en það sé flutt í sláturhús. Þarna virð- ist vera eitthvert skipulagsleysi á ferðinni hjá réttarstjórum. Dúfur Mikið er kvartað yfir meðferð ýmissa barna og unglinga á dúfum. Eru það í nokkrum tilvikum um hreinar misþyrmingar að ræða. Stjórnarmenn í S.D.Í. hafa farið margoft á staðinn í slíkum tilvik- um ásamt dýrahjúkrunarkonunni og Valdemar Sörensen. Kindur í Hérdísarvík. í síðustu ársskýrslu er greint frá aðgerðum S.D.Í. til að koma í veg fyrir sauðfjárhald tveggja manna í Herdísarvík. Þar hefur um margra ára skeið verið fé á útigangi og eins og héraðsdýralæknirinn orðar það í umsögn sinni um féð, - en að beiðni stjórnar S.D.Í. var farið og litið á féð og aðstæður. - „Allt eftirlit með þessu fé er í lágmarki og miðast nánast við að lemba það og hirða úr því lömbin." Núna, s.l. haust, hafði forðagæsla Búnaðarfélagsins og Ólafur Dýr- mundsson hjá beitarþolsrannsókn- um samband við stjórn S.D.Í. vegna þessa máls. Eigandi jarðarinnar Herdísarvík er Háskóli íslands, og stjórn sam- bandsins fékk bréf frá Háskóla- rektor þar sem hann staðfestir að yfirvöld Háskóla íslands hafi eigi heimilað neinum afnot af landi Herdísarvíkur, og að þau afnot sem hér um ræðir séu án vitundar háskólayfirvalda og algjörlega heimildalaus. En allar þessar aðgerðir leiddu til þess að eigendur kindanna fluttu þær burt. Scvdýrasafnið. Eins og fram kom í skýrslu s.l. árs hefur stjórn S.D.Í. unnið ötul- lega að því að aðbúð dýranna í Sæ- dýrasafninu verði viðunandi, en safninu lokað að öðrum kosti. Ar- angur alls þessa er enginn, því enn starfar safnið. Kæruleysi yfirvalda gagnvart þessari stofnun er víta- vert, t. d. hefur menntamálaráð- herra ekki svarað einu einasta bréfi er honum hefur verið ritað af stjórn S.D.Í. varðandi Sædýrasafn- ið. Og enn hefur safnið fengið starfsleyfi sitt framlengt og nú fram í júlí 1978. Stjórn S.D.I. fékk þær upplýsing- ar að bæjarfógetinn í Hafnarfirði hefði sent umsókn Sædýrasafnsins til menntamálaráðuneytisins, sem svo aftur hefði vísað henni til dýraverndunarnefndar. Því miður var fulltrúi S.D.Í. í þeirri nefnd, Sigríður Ásgeirsdóttir héragsdóms- lögmaður, ekki á landinu er þetta var tekið til meðferðar af dýra- verndunarnefndinni. S.l. sumar var formanni S.D.Í., Jórunni Sörensen, stefnt af Sædýra- safninu, fyrir, eins og segir í stefn- unni, „að hafa skaðað safnið stór- lega". Lögfræðingur S.D.Í., Sigríður Ásgeirsdóttir héragsdómslögmaður, flytur málið fyrir Jórunni Sörensen. Lokaorð. Það sem hér er á undan upptalið eru þau mál sem helst voru á dag- skrá hjá S.D.Í. á liðnu starfsári. Allt smávegis eins og upplýsingastarf- semi í gegnum síma er hér ekki meðtalið. Þó er það ekki minnst mikilvægt. Að lokum þakka ég meðstjórnar- mönnum mínum innilega fyrir mjög gott samstarf og einstaklega góða mætingu á stjórnarfundum og á það jafnt við um aðalstjórn og varastjórn, en allir eru ævinlega boðaðir á fundi. DÝRAVERNDARINN 9

x

Dýraverndarinn

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dýraverndarinn
https://timarit.is/publication/598

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.