Dýraverndarinn - 01.02.1978, Side 10

Dýraverndarinn - 01.02.1978, Side 10
Skóli fyrir dýr og menn „The Campus" heitir staðurinn eins og háskólasvæðin eru almennt kölluð í Bandaríkjunum. En þessi Campus, sem er nálægt borginni San Rafael, 36 km fyrir norðan San Franzisco er að mörgu leyti einstakur. Hann er nefnilega há- skóli fyrir hunda, nánar tiltekið fyr- ir „blindrahunda". í þennan skóla er ekki hægt að láta skrá sig heldur þarf viðkomandi að vera fæddur þar. í og kringum San Rafael hafa margar fjölskyldur fallega hrein- ræktaða hunda, allt þýskir Scháfer, Golden- eða Labrador Retriver, en eigandi hundanna er Campus, m. ö. o. „Guide Dogs for the Blind Inc." Þessi félagsskapur á 4,5 hektara landsvæði sem Campus stendur á. Þetta er eini hundaskólinn í heimi, sem ræktar hundana sjálfur. Ýmsar ástæður eru fyrir því að eingöngu þessar 3 tegundir hunda eru notað- ar. Þeir eru af réttri stærð, eru hæfi- lega fjörugir, vinnusamir og ónæm- ir fyrir veðrabreytingum. A réttum tíma koma hundarnir til Campus til að para sig. Seinna kemur tíkin aftur til að eiga hvolp- ana. Sex vikum síðar hverfa tík- urnar frá Campus en hvolparnir verða eftir. Nú fá þeir tvær vikur til að venjast því að vera einir, móðurlausir og sjálfstæðir. Eftir það hefst fimm vikna inntökupróf. Þá eru þeir mældir og vigtaðir. Viðbrögð við hávaða prófuð, næm- leiki í fótum, gáfnafar og vinnu- fýsi athuguð. Allt er þetta skráð, og að loknum þessum prófum fellur ca. einn þriðji hluti. Þegar gengið er framhjá búrun- um í Campus — sem auðvitað eru mjög hreinleg - er hegðun hvolp- anna sérstök. Hér er enginn hávaði, dýrin koma ekki vælandi á móti fólki. Þessir ungu hundar taka lítið eftir heimsóknum. Þeir eru ekki búnir að bindast manninum á þessu æviskeiði. Enn eru þetta „búr-dýr". Það á eftir að breyta þeim í heim- ilisdýr til þess að þeir geti orðið góðir blindrahundar. En það gerir félagsskapur sem nefnist „4-H". - 4-H er unglingasamband sem var stofnað árið 1900 til þróunar per- sónuleika og samstöðu meðal borg- aranna. Hin 4-H eru: Head, Hearth, Hands and Health, eða Höfuð, Hjarta, Hendur og Heilbrigði. í 4-H eru 7 milljónir meðlima á aldr- inum 9-19 ára og ca. 550.000 ófé- lagsbundnir fullorðnir leiðtogar. Þeir starfa svipað og skátar, nema án búninga og heiðursmerkja. 4-H hefur margt á stefnuskrá sinni, svo sem kanínurækt, raf- magnsfræði og fleira sem stuðla á að sjálfstæðu ábyrgðarfullu og verk- legu starfi þessara hópa sem aðal- lega eru úr sveitunum. Og þeir hafa einnig hundarækt á stefnuskrá sinni. 4-H-fólkið tekur að sér hvolpana frá San Rafael um tíma, en ekki sem lifandi leikföng. Um leið og þeir taka að sér hvolpana taka þeir fulla ábyrgð á velferð þeirra, fæði, uppeldi og hugsanlegum læknis- kostnað. Áður hefur umsjónarmað- ur Campus komið í heimsókn til unga fólksins og athugað heimili þess. Vikulega koma hundur og herra í heimsókn til Campus og taka þátt í hlíðnisæfingum undir stjórn eins af 4-H stjórnanda sem þannig fylgist stöðugt með fram- förum hjá hundunum. Aðalatriðið er að hundurinn verði sáttur við sambúðina við manninn, umhverf- ið, hávaða, bílaakstur, umferð o. s. frv. í stuttu máli, hvolpurinn verð- ur að heimilisdýri. Kennsla fyrir hund og herra Þá kemur að sársaukafyllsta þætti þessarar hundaævi fyrir bæði hund- inn og manninn. Það er skilnaður- inn. Eftir 12-14 mánuði þarf hund- urinn að fara aftur í búrið til San Rafael í hina eiginlegu kennslu. Flest fólkið tekur aftur hvolp til uppeldis og margt er gert til að milda hundinum einveruna. Hann fær samband við aðra hunda þrisvar á dag í almenningi, á hverju kvöldi er tónist úr hátölurum eins og í heimahúsum og að síðustu er dag- leg „skólun" undir handleiðslu kennara. Hvernig lítur nú kennsluskrá hundsins í San Rafael út? Hann byrjar á því að læra það sama og allir hundar þurfa að læra, að „sitja", „standa", „sækja", „ganga rétt í ól" o. s .frv. Eftir 5-6 tíma í þessum fögum á túnum og götum í Campus er farið í næsta kennslu- stig. Það fer fram í rólegum íbúð- 10 DÝRAVERNDARINN

x

Dýraverndarinn

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dýraverndarinn
https://timarit.is/publication/598

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.