Dýraverndarinn - 01.02.1978, Side 15
er orðinn stálpaður er sem hér
segir:
1 tsk. fyrir smákyn, t. d. poodle.
2 tsk. fyrir meðalkyn, t. d. íslenska.
1 msk. fyrir stórkyn, t. d. labrador.
Þegar hvolparnir eru 4 vikna er
gefin kjötmáltíð í stað einnar
mjólkurmáltíðar. Notið hrátt hakk-
að kjöt og blandið smávegis með
muldu heilhveitibrauði eða soðinni
kartöflu. Gott er einnig að blanda
þá máltíð með hundavítamíni.
Það er mjög auðvelt að kenna
hvolpi að eta kjöt. Pínulitlu skal
troðið upp í hann og eftir það er
hann mjög gráðugur í kjötið.
Þegar hvolparnir eru orðnir 6
vikna er gott að gefa þeim leikföng
úr þykku gúmmí til að naga og
leika sér að. Ekki bein. Þá má einn-
ig gefa þeim Mick hundakexið ó-
uppbleytt þar sem þeir hafa gaman
af að bryðja það.
En ekki megum við gleyma tík-
inni. A meðan hún mjólkar hvolp-
unum þarf hún mikið af nærandi
fæðu og mjög mikið að drekka.
Tíkinni skal gefið kalk þar til hvolp-
arnir eru a. m. k. 5—6 vikna. Tík-
inni skal gefið mikið kjöt, hrátt eða
léttsoðið. Lifur og annar innmatur
og slátur er einnig nauðsynlegt fyr-
ir hana. Matinn skal blanda með
heilhveitibrauði og eða soðnum
kartöflum. AUt kjöt- og fisksoð er
til fellur á venjulegu heimili er
mjög gott fyrirtíkina og mágjarnan
hella því út á matinn. Meðan tík-
in mjólkar sem mest og hvolpunum
er ekki gefinn annar matur, þarf
hún gjarnan fjórar máltíðir á dag.
Þeim er svo fækkað niður í tvær er
hvolparnir fá meiri mat. Gæta skal
þess að hafa tíkina ekki hjá hvolp-
unum er þeim er gefið og gefa
þeim áður en tíkin gefur þeim.
Á það skal bent að þegar tíkin
byrjar að venjahvolpanaaf og hætt-
ir að vilja vera stanslaust hjá þeim
og vill jafnvel sofa annars staðar,
þýðir ekki að hún vilji ekkert með
þá hafa. Eins og talað er um hér
fyrr tekur það langan tíma fyrir
tíkina að gera hvolpana sér óháða.
Og það er mjög rangt að flýta því
á nokkurn hátt. Því þó að hvolp-
arnir séu farnir að éta sjálfir og tík-
in fari aðeins til þeirra nokkrum
sinnum á dag til að lofa þeim að
sjúga, þroskast þeir mikið við að
vera saman og að það komi svona
smátt og smátt að tíkin venji þá
undan og snúi sér meira að hús-
bændum sínum. Þegar hvolparnir
eru um það bil 8 vikna er tíkin
hætt að mjólka og er þá kominn
tími til að hvolparnir fari á sín
nýju heimili.
Ég vil leggja á það mikla á-
herslu að fólk vandi val á heimil-
um fyrir hvolpana og gangi úr
skugga um að nýju eigendurnir
geri sér grein fyrir því hvað þeir
eru að fara út í með að fá sér
hund. Að þeir séu sér meðvitandi
um þá miklu ábyrgð sem það er að
taka lifandi dýr að sér. Og einnig að
eigendurnir séu tiibúnir til að ala
hvolpinn vel upp þannig að hann
verði hvorki eigendum sínum eða
umhverfi til leiðinda.
í starfi mínu við Hjálparstöð
dýra verð ég mjög áþreifanlega vör
við mistökin í dýrahaldinu. Við
fáum hvolpana, hundana, kettling-
ana og kettina unnvörpum frá fólki
sem ekki gerði sér grein fyrir því
hvað það var að fara út í með að fá
sér dýr, og hafði ekki hugsun eða
vilja á því að læra neitt um uppeldi
og meðferð dýrsins.
Þannig að ef þið, lesendur góðir,
eru ekki fullvissir um að hvolpur-
inn (nú eða kettlingurinn) fari á
gott heimili sem uppfyllir framan-
greind skilyrði, þá látið lóga dýrinu
á mannúðlegan hátt. Ef margir
hvolpar fæðast og fyrirsjáanlegt er
DÝRAVERNDARINN
15