Dýraverndarinn - 01.02.1978, Side 16

Dýraverndarinn - 01.02.1978, Side 16
Fuglarnir okkar Við höldurn ájram rneð endurn- ar. Ritnefnd vill nota tœkifœrið og benda fólki á þessar greinar urn ís- lensku fuglana. Þœr eru vel og skemmtilega skrifaðar og veita mikinn fróðleik. B. KAFENDUR DUGGÖNDIN (Nyroca marila rnarila (L)) Þessi önd er algeng um land allt, að heita má. Hún er helst á og við vötn og tjarnir, einkum þar sem hólmar og smáeyjar eru í vötnum og gróður nægilegur til skjóls og öryggis. Hún er dýraæta að mestu og étur smáfiskaseiði, hrogn, snigla, smákrabba, skordýr alls konar og lirfur þeirra, sem í vatni lifa. Dugg- öndin dvelst löngum við sjó og er aðeins á og við ósalt vatn um varp- tímann eða liðlega það. Hún er að illa muni ganga að koma þeim í góðar hendur, þá er best að fækka þeim strax í upphafi. En lógið aldrei öllum hvolpum (eða kettling- um) sem fæðast. Það er mjög grimmdarlegt gagnvart móðurinni. Ef einhver hefur hug á að fræð- ast meira um þessi atriði er velkom- ið að hringja til mín og fá upplýs- ingar. — Sími Hjálparstöðvarinnar er 76620. í næsta blaði munu birtast ein- faldar leiðbeiningar fyrir nýbakaða hvolpaeigendur. ó. Þ. farfugl, sem fer seint héðan á haust- in og kemur snemma á vorin. Merktar duggendur íslenskar hafa komið fram einna flestar á írlandi og Bretlandseyjum, en einnig tals- vert slangur af þeim dvelst við aust- anverðan Norðursjó, t. d. í Þýska- landi, Hollandi, Frakklandi og víð- ar á vetrum. Duggendur verpa víða í allþéttum vörpum, einkum þar sem kjarri vaxnar eyjar og smá- hólmar eru í vötnum, t. d. við Mý- vatn, þar sem hún er meðal hinna bestu varpanda. Oft verpa þær tvær saman eða fleiri í eitt hreiður, og mun það að líkindum stafa af því, að bestu varpstaðirnir, t. d. kjörrin í eyjum og hólmum, eru eigi svo víðáttumiklir, að allir kom- ist þar að sem vilja, því að þetta er eigi óalgengt við Mývatn. Þar er því jarðnæðisskortur að sumu leyti. Landrými er nóg, en nægilegur gróður er ekki alls staðar, en fugl- arnir verpa helst þar, sem skýlla er. Það er aðeins af neyð, ef t. d. endur verpa á bersvæði. Fullorðinn duggandarbliki er svartur á höfði, hálsi og á ofan- verðu baki og bringu, og er víða grænleit eða móleit, eða stundum purpuralit slikja á fiðrinu. Miðhluti baksins og herðarnar eru hvítar með þéttu, fíngerðu, svörtu kroti á hverri fjöður. Aftasti hluti baksins og efri stélþökurnar eru svartar. Vængirnir eru dökkmógráflikróttir. Spegillinn hvítur. Neðri hluti bringunnar og kviðurinn allur nema allra aftast er hvítur. Neðri stélþökur svartar. Nef og fætur blágráir, en sundfitin svört. Augað gult. Öndin er öll dökkmóleit að of- anverðu, en hvít við nefræturnar, og hvítur, kringlóttur blettur er á bak við eyrun á 1 árs gömlum öndum, en sjaldan á eldri fuglum. Allur efri hluti baksins og efri vængþökur eru mósvartar, með hvítleitum dröfnum á stöku stað. Vængirnir svartleitir og spegillinn Iítt sýnilegur, aðeins hvítleitir jaðr- ar á armflugfjöðrunum. Bringan ofanverð mórauð, en hvítleit hið neðra, með móleitum dröfnum og kviðurinn sömuleiðis. Nefið blá- leitt, nöglin svört. Hreiðurdúnninn dökkmóleitur. Ungar á fyrsta hausti eru nauða- líkir öndinni, karl- og kvenfugl- ana má þó greina að á því, að tals- vert ber þegar á hvítleitu kroti á fiðrinu á baki og herðum blikanna. Duggendurnar fara að verpa síð- ari hluta maímánaðar eða snemma í júní. Við Mývatn er varptíminn orðinn lengri en öndinni er eðli- legt, vegna þess að talsvert er tek- ið af eggjunum í byrjun varptím- ans, en endurnar bæta þá ávallt við nokkrum eggjum, áður en þær fara að sitja á fyrir alvöru. Venjulega verpa þær 8-10 eggjum. Þau eru mógræn á lit. Útungunartíminn er allt að fjórum vikum, og annast öndin það starf einsömul að mestu. Blikarnir hópa sig sér, en dvelja þó sjaldan langt frá hreiðrunum og koma þangað við og við til þess að 16 DÝRAVERNDARINN

x

Dýraverndarinn

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dýraverndarinn
https://timarit.is/publication/598

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.