Dýraverndarinn


Dýraverndarinn - 01.02.1978, Qupperneq 24

Dýraverndarinn - 01.02.1978, Qupperneq 24
ur blettur á vængjum; ekkert svart þverstrik í hvíta blettinum. Hakan og kverkin hvít, annars er hún ljósgrá hið efra, en hvít að neðan. (Stærð: v. 250-295 mm, n. 45- 61 mm. Þyngd 1200-1800 gr). TOPPÖNDIN (Mergus serrator, L) Toppöndin er algengur varpfugl um land allt. Er hún bæði við vötn og ár, smátjarnir, lón og smálæki, ef þar er aðeins einhver fiskur í eða önnur veiði við hennar hæfi. Toppöndin er aðallega fiskæta, en hún etur einnig smákrabba, skor- dýr og orma ef því er að skipta. Hún er jafnt uppi á háöræfum eins og í láglendishéruðum við sjó. Hún er talin meðal staðfugla hér og er það efalaust að meiru eða minna leyd, en ungviðið fer stundum utan, einkum í hörðum árum. Þó hefur t. d. ein toppönd, sem hafði verið merkt fullorðin á Grímsstöðum við Mývatn, náðst í Skotlandi 3 árum síðar. Á vetrum hafast toppend- urnar við á sjó, eða á lónum, eink- um sunnanlands og vestan. Fullorðinn toppandarbliki er svartur eða svartleitur á höfði og ofanverðum hálsinum, með græn- leitri eða fjólulitri slikju á fiðrinu, og fer það eftir því, hvernig hann snýr við ljósinu. Hnakkaskúfurinn er alllangur og áberandi og oft greinilega tvískiptur. Neðri hluti hálsins er hvítur. Efri hluti baksins og herðarnar eru svartar, en annars er fuglinn grámóleitur hið efra, víða með ljósara kroti á fjöðrum. Miðhluti innri flug(arm)fjaðranna, ásamt stærri og miðvængþökunum, er hvítur. Innri armflugfjaðrirnar eru með mjóum, svörtum jöðrum að utan. Þvert yfir stóra hvíta blett- inn á vængnum (spegillinn) eru tvö svört strik eða rákir, sem stafa af því ,að þar sést í svarta fjaður- stafina. Bringan og utanverður háls- inn að neðan er ryðmóleitur með dökkum dröfnum. Síðurnar eru hvítar með svörtu, fíngerðu kroti á fiðrinu. Að öðru leyti er fuglinn hvítur að neðanverðu. Nefið er há- rautt, en nefmænirinn og nöglin er svartleit. Fætur rauðir. Augað er rautt eða rauðgult. Öndin hefur heldur minni topp í hnakkanum. Hálsinn að aftan er rauðmóleitur, en að öðru leyti er hún grámóleit að ofanverðu. Mið- armflugfjaðrirnar eru hvítar, með tveimur svörtum þverstrikum, stór- vængþökurnar eru einnig hvítar. Ryðmóleit í vöngum og utan á hálsinum. Hakan hvítleit. Hálsinn að framan er fölryðleitur og oft með svörtum dröfnum. Bringan og síðurnar móleit, með ljósari jöðrum á fiðrinu. Að neðanverðu er hún öll hvít. Nef og fætur móleitt. Aug- að móleitt. Dúnninn í hreiðrinu dökkgrár. Ungarnir eru svipaðir öndinni, en hnakkatoppurinn er ennþá styttri. Fætur mógulir. Augað gult. Varptíminn er í júníbyrjun eða síðar, eftir því sem árferði er. Eggin eru mörg, oftast um 8—10 eða fleiri, mjög svipuð gulandareggjum; eru ívið minni og hvítleitari. Utung- unartíminn er talinn um það bil 4 vikur (erlendis um 31-32 dagar), og ungarnir eru furðanlega bráð- þroska og geta hér um bil strax gengið og hlaupið, enda þurfa þeir sums staðar að ganga nokkurn spöl til vatns. Þær verpa helst í holum eða öðrum fylgsnum, ef þau eru til, en ella þar sem gróðurinn er nægur til þess að hylja hreiðrið. Toppendur eru algengar við Mý- vatn, því að þar er gott að vera fyrir allar endur. Þó eru þær ekki eins margar þar og við hefði mátt búast, en þær eru þar ekki einar um hituna, því að mennirnir sem þar búa, vilja einnig veiða silunginn í vatninu, og þar sem hagsmunir manna og dýra rekast á, hefur mað- urinn ætíð betur, sem von er. Heimkynni toppandarinnar er- lendis eru í Færeyjum, á Bretlands- eyjum og írlandi, á Norðurlöndum, á norðanverðu Rússlandi, í Síberíu og Norður-Ameríku og á Græn- landi. Einkenni. Nefið er hlutfallslega langt og mjótt. Höfuð og efri hluti hálsins svartur með málmgljáa. í hnakkanum oft greinilega tvískipt- ur skúfur. Yfirleitt mógráleitur á baki, en hvít á kviði. Bringan mó- dröfnótt. Hvítur blettur á vængjun- um með svartri þverrák. Nef og fætur rauðir. Öndin öll móleitari og litaskiptin á hálsinum ógreinileg, mógrá á baki, en hvít að neðan. Vængirnir eins og á blikanum. Eru allfélagslyndar og oft allmargar saman á öllum tímum árs. Eru djúpsyndar. (Stærð: v. 217-259 mm; n. 48- 62 mm. Þyngd 900-1200 gr). Trúnaðarmenn S.D.I. Einn trúnaðarmaður hefur bæst í hinn fjölmenna hóp síðan síðasta blað kom út. Búðarhreppur, S.-Múlas. Guð- mundur Guðjónsson, Skólavegi 35. 24 DÝRAVERNDARINN

x

Dýraverndarinn

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dýraverndarinn
https://timarit.is/publication/598

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.