Dýraverndarinn - 01.02.1978, Síða 29

Dýraverndarinn - 01.02.1978, Síða 29
þetta. Hestamennirnir veltu vöng- um og lögðu höfuð sitt í bleyti, en gátu ekki leyst gátuna. Ég held nú samt, að gátan sé auðráðin, að minnsta kosti trúi ég því, að þarna hafi tár og bænir móður minnar verið að verki. Eins og ætla má um hest eins og Hjörtur var, komst hann í mörg ævintýri um dagana. Langar mig til að segja frá einu þeirra, áður en ég lýk máli mínu. Það var eitt sinn að sumri til, að foreldrar mínir voru stödd í Akur- eyrarkaupstað og voru að búast til heimferðar. Var þetta í Innbænum hjá húsum gömlu verslananna þar. Margt fólk var þarna og fjöldi hrossa. Stórt og mikið herskip lá á Pollinum og sáu þau að bátur koin frá því og lagðist við bryggju. Maður steig úr bátnum upp á bryggjuna og gekk upp til fólksins og hrossanna. Var hann í glæstum einkennisbúningi og allur gulli drifinn. Gekk hann á milli hross- anna og athugaði þau. Allt í einu kom hann auga á Hjört, sem faðir minn ætlaði að fara að leggja á söðul móður minnar. Skoðaði hann skjóna í krók og kring og tók svo að buldra eitthvað, sem þau skildu ekki. Þó þóttust þau skilja það, að hann vildi fá að koma á bak hon- um. Ekki vildi móðir mín það, og sagði að slys gæti af hlotist. - Allt í einu og áður en þau gátu hindrað það, smeygði sá útlendi beislinu upp á háls skjóna og snaraði sér á bak. Um leið tók skjóni sprettinn og fór með ofsahraða upp Búðar- gilið. Sáu foreldrar mínir að fljótt sleppti sá útlendi taumhaldinu og hélt sér með báðum höndum í fax- ið. Ofarlega í Gilinu lá sniðgata út og upp að Eyrarlandi. A þessa götu sveigði skjóni og létti ekki fyrr en hann kom þar á hlaðið. Að undanförnu hafði rignt mikið og hafði af þeim sökum safnast stór forartjörn á hlaðið. Skjóni snar- stansaði við pollinn, og það svo hastarlega, að útlendingurinn tókst á loft, missti tökin og hlammaðist niður í forarvilpuna. Var búningur hans ekki sem glæsilegastur er hann brölti á fætur. Nú víkur sögunni til foreldra minna. Er þau sáu hvar komið var, bað móðir mín föður minn að ríða á eftir þeim skjóna og sjá hver leikslok yrðu. Tók faðir minn reið- hest sinn og reið sem mest hann mátti á eftir þeirn. Var það jafn- snemma að hann kom upp á brekkubrúnina, að útlendingurinn mætti honum og teymdi þá skjóna. Fékk hann föður mínum tauminn, fór ofan í vasa sinn og rétti honum eitthvað af peningum. Klappaði svo á makkann á skjóna, bar hend- ina upp að húfunni í kveðju skyni og skálmaði niður í bæinn. — Sögðu þeir er sáu til ferða hans, að ekki hefði hann verið rishár er hann gekk um bæinn og fram á bryggj- una, þar sem báturinn beið hans. Munu honum ekki hafa þótt sínar farir sléttar. (Skrifað á Akureyri 1951). 29 LEIÐSÖGUHUNDUR MEÐ BLINDUM HUNDI Kalríti litla, 10 ára göviul telþa í Suður-Frakklaudi, varð fyrir því óbaþþi að „Brttnó", hundurinn hennar missti sjónina. Þá datt henni í hug nokkuð sem hún hafði séð í sjónvarþinu: Hundur stjórnaði og leiðbeindi blindum mantú í umferð- inni. — „Pabbi,” sagði hún við föður sinn. „Líklega vteri hcegt að fá leiðsöguhund handa Brunó mtnum. Það hlyti að ganga vel, því að hundar geta talað saman og skilja hvern annan." — Pabbi hennar varð að viðurkenna þessi rök sem rétt og Katrín fékk lítinn hund, sem strax var skírður Jack, til þess að fylgja blinda Brunó. Þeir voru með eins meters langa ól á milli sín. — Eftir nokkra þjálfun gekk allt vel og Jack gætti Brunós svo vel sem vceri hann ungbarn. DÝRAVERNDARINN

x

Dýraverndarinn

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dýraverndarinn
https://timarit.is/publication/598

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.