Dýraverndarinn - 01.02.1978, Side 37

Dýraverndarinn - 01.02.1978, Side 37
„Já, þetta var dálagleg byrjun á einum degi," hugsaði Jörgen með sjálfum sér um leið og hann fékk sér far með strætisvagni inn til miðborgarinnar, þar sem vinnu- staður hans var. Ósjálfrátt glápti hann á raðir bílanna sem ýmist komu á móti eða fóru framúr strætisvagninum. Hann gerði það í þeirri von, að hann sæi e.t.v. bílinn sinn einhversstaðar, en sú von brást þó. Hins vegar fannst honum, að hann kæmi auga á hundinn sinn, hann Pjakk, á harða hlaupum, langt í burtu, en um þetta var hann ekki viss. Jörgen hringdi nokkrum sinnum til lögreglunnar, en leitin að hinum stolna bíl hafði engan árangur bor- ið. Og Pjakkur kom ekki heim þetta kvöld. - Astrid var gráti nær vegna óvissunnar um hundinn. Það tók meira á hana en tap bílsins. Jörgen fór út á bílastæðið seint þetta kvöld og kallaði nokkrum sinnum hátt á hundinn, en árang- urslaust. Það var því ekki mikið um svefn hjá þeim hjónum þessa nótt og þau voru nær því jafnþreytt um morguninn og um kvöldið áður er þau lögðust til hvílu. Nú var hvarf hundsins einnig til- kynnt lögreglunni, en Jörgen tók sér far með strætisvagninum sömu leið og daginn áður. Ekki sá hann bíl sinn eða hund á þeirri leið, sú hugsun tók nú að sækja á hann, að Pjakkur hefði orðið fyrir bíl daginn áður, því að aldrei hafði það komið fyrir áður, að hann skilaði sér ekki heim að kvöldi dags. Síðari hluta þessa dags stóðu allt í einu tveir lögreglumenn inni í skrifstofu hjá Jörgen og báðu hann að koma með sér, því að „nú höfum við fundið bæði bílinn og hundinn," sögðu þeir. „En þú verð- ur að koma með, því að hundurinn DÝRAVERNDARINN gætir þjófsins inni í bílnum og hleypir hann engum þar út eða inn." Á leiðinni að bílnum sögðu lög- regluþjónarnir Jörgen frá því, sem skeð hafði. „Við ókum framhjá bif- reiðastæði einu hér stutt frá og þá var okkur gefið merki með bíl- horni eins bílsins. Þegar við kom- um að bílnum, sáum við strax, að þarna var einn af stolnu bílunum, sem við vorum að leita að og í hon- um sat við stýrið lafhræddur mað- ur. Hundur sat við hlið hans í fram- sætinu og virtist hafa góða gát á öllu. Bílþjófurinn - ungur maður - mátti sig hvergi hræra eða starta bílnum fyrir grimmum hundin- um." Þegar Jörgen og þjónar réttvís- innar komu að bílnum, varð Pjakk- ur mjög glaður og flaðraði upp um húsbónda sinn, eins og hann vildi segja, „allt er gott þá endirinn er góður." Lögregluþjónarnir tóku þjófinn í sína vörslu og sáust glöggt á hon- um tannaför eftir hundinn og einn- ig voru klæði hans rifinn. Hann sagði frá því, að sér hefði verið ómögulegt að sleppa útúr bílnum, eftir að hundurinn stökk upp í framsætið þarna á bifreiðastæðinu. Einasta leiðin til að sleppa var að nota bílhornið, hvað hann og gerði. Það skeði heima hjá Jörgen þetta kvöld, að eftir að Astrid hafði gef- ið Pjakk vel að eta, þá fékkst hann ekki til þess að leggjast í körfuna sína, þar sem hann var vanur að sofa, heldur gekk að framdyrum bílsins, og þegar þær voru opnaðar, þá stökk hann upp í sætið og bjóst til að sofa þar. Það var látið eftir honum. Og betri vörð var ekki unnt að fá. - Það henti einu sinni að ó- kunnur maður fór í ógáti að rjála við bílinn, en þá var Pjakkur fljót- ur að standa á fætur og sýna hvass- ar tennur sínar. Svo má að lokum geta þess til gamans, að nokkru seinna seldi Jörgen bíl sinn og fékk sér nýjan í staðinn. Þá var sem Pjakkur missti allan áhuga fyrir því, að gæta hans. Hann fór nú að sofa á gamla staðn- um sínum á hverri nóttu og ekki fór hann heldur í neinn leiðangur til þess að leita að þeim gamla, hann Pjakkur — hann vissi sínu viti, sögðu menn. (Lauslega þýtt úr dönsku, G. H.) 57

x

Dýraverndarinn

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dýraverndarinn
https://timarit.is/publication/598

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.