Dýraverndarinn


Dýraverndarinn - 01.02.1978, Blaðsíða 38

Dýraverndarinn - 01.02.1978, Blaðsíða 38
Opnuð hjálparstöð fyrir dýr Þann 6. janúar s.l. var opnuð hjálparstöð fyrir dýr í Dýraspítala Watsons í Víðidal. Stjórn spítalans ákvað þetta eftir að útséð var um að dýralæknir ræðist að spítalanum í náinni framtíð. Hjálparstöð þessi er að amerískri fyrirmynd og vinn- ur í samvinnu við dýraverndunar- félög. Sú þjónusta, sem samkvæmt regl- um stöðvarinnar er veitt þarna, er alls konar skyndi- og neyðarhjálp við dýr og viðtaka flækingsdýra. Einnig eru veittar þarna allar mögulegar upplýsingar í sambandi við meðferð dýra. Eini fasti starfs- maður stöðvarinnar er Sigfríð Þór- isdóttir dýrahjúkrunarkona. — Er þetta er ritað hefur stöðin starfað í rúman mánuð og er undirrituðum kunnugt um að það hefur verið mjög mikið að gera þennan fyrsta mánuð. Og það hefur oft verið það mikið, að ekki hefur veitt af aðstoð og hefur mér verið það mikið á- nægjuefni að geta verið þarna til aðstoðar þegar mest hefur verið að gera. Þarna er allt gert sem hægt er til að veita dýrum og dýraeigendum sem besta þjónustu og leiðbeining- ar. Þarna er tekið við flækingskött- um og kettlingum. Einnig eru þarna hundar sem finnast lausir þar til hafst hefur verið upp á eigend- um þeirra. Og er það í samvinnu við Guðmund og íris í Hundavina- félaginu, sem manna mest hafa unnið í sambandi við týnda hunda í Reykjavík og nágrenni. Einnig hefur verið þó nokkuð um það að fólk hefur komið með hunda sína til hjálparstöðvarinnar til þess að fá leiðbeiningar í sam- bandi við uppeldi þeirra. Og það er mjög gott, því fleiri vel uppaldir hundar sem eru til, því fleiri verða hundavinirnir. Aftur á móti er sá skaði ótrúlegur sem illa uppalinn hundur gerir, eða réttara sagt eig- endur slíks hunds, því dýrið verður ekki gert ábyrgt gerða sinna. Af slysum eru fótbrot og skurðir algengastir. Einnig hefur verið komið með hunda með bein föst í hálsi. Er ekki nægilega brýnt fyrir fólki að gefa hundum sínum EKKI bein sem þeir geta flísað niður. Sem sagt alls ekki kindaleggi eða nein kindabein. Hundar mega að- eins fá mergbein úr stórgripum (nauta- eða hestaleggi). Ástæða er einnig til að koma því að hér vegna kettlinga og hvolpa sem fólk vill losna við, að láta þá ekki frá sér of snemma. Átta vikur (tveir mánuðir) eru lágmark þess sem hvolpur eða kettlingur þarf að vera hjá móður sinni og allt tal um að tíkin eða læðan sé „orð- in leið" á afkvæmum sínum er marklaust þvaður. Fólk sem heldur slíku fram ætti að lesa sér til um Framhald á bls. 40. DÝRAVERNDARINN

x

Dýraverndarinn

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dýraverndarinn
https://timarit.is/publication/598

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.