Dýraverndarinn - 01.02.1978, Síða 39
Heilög dýr og hjátrú í sambandi við þau
Kötturinn
Kötturinn var í Englandi hinu
forna heilagt dýr. Það var viðlögð
dauðarefsing að drepa kött. Sums
staðar í landinu var guðdómurinn
táknaður með kattarhöfði og feg-
urstu grafhýsi voru búin til fyrir
þessi dýr. Venjulega voru þau
smurð, og í Memfis einni hafa
fundist fleiri þúsundir af katta-
múmíum. Annars staðar voru þeir
brenndir, ásamt kattarmyndum í
bronsi, tré eða steini. Allir kettir,
sem drápust í nágrenninu voru
fluttir til grafhýsanna með mikilli
viðhöfn.
Ljónið
Að konungur dýranna, Ijónið,
hefur verkað örfandi á ímyndunar-
afl mannanna segir sig sjálft. í
fyrsta lagi sem tákn hugrekkis og
hreysti (það hefur iðulega verið
sett á skjaldarmerki). Hjá fornald-
arþjóðum var það álitið standa
guðdóminum mjög nærri.
Margar egypskar guðamyndir
voru með Ijónshöfðum, og í hofum
í Egyptalandi voru höfð lifandi
Ijón sem heilög dýr og fulltrúar
sjálfs guðdómsins. í Litlu-Asíu og
Grikklandi hafa fundist fjölda
margar myndir af ljónum, ýmist
sem tákn hugrekkis og krafta eða
þá sem guðamyndir.
Hvíti fíllinn
Venjulegur fíll hefur aldrei ver-
ið settur neitt í samband við guð-
DÝRAVERNDARINN
dóminn. Hvíti fíllinn hefur aftur á
móti, einkum í Síam, verið dáður
og dýrkaður. Hvítir fílar eru sem
sé mjög sjaldgæfir og flestir þeirra
eins og t. d. þeir sem hafa hvíta
bletti á höfðinu hafa verið þvegnir
upp úr tamarínvatni og við það
fengið nokkru ljósari lit.
Hulumanapinn
Annað heilagasta dýr Indlands en
fíllinn er svokallaður hulmanapi.
Innfæddir menn halda að sálir þeirra
taki sér bústað í þessum dýrum eftir
dauðann og umhyggjan fyrir þeim
er því fram úr öllu hófi. Dæmi eru
til um það, að stofnuð hafa verið
sjúkraskýli, þar sem þessum öpum
hefur verið veitt hjúkrun. Hver sá
er vogar sér að drepa hulmanapa á
það á hættu að týna lífi sínu.
Hinn heilagi tordýfill
Hann er bjöllutegund, sem mik-
ið hefur verið dýrkaður, svo að
mörg hinna stærri dýra mættu öf-
unda hann af. Forn-Egyptar
skreyttu musteri sín með myndum
af þessum dýrum, og það var mynd
hins heilaga tordýfils sem heilagur
Apis átti að hafa á tungunni.
Fornaldarþjóðirnar höfðu yfir-
leitt einkennilegar hugmyndir um
þessi skrýtnu dýr. Þau voru, að
skoðun þeirra, öllsömul stríðshetj-
ur, klædd pansara og brynju. Þau
voru vígð helgidóminum og vernd-
aði sjálf myndin ein af þeim, menn-
ina frá illum öndum. Myndir af
þeim voru lagðar á brjóst dauðra
manna, og bornar af lifandi mönn-
um sem verndartákn gegn veikind-
um og dauða. (Lauslega þýtt).
Útbreiðið Dýraverndarann
Stjórn Sambands dýraverndunarfélaga íslands skorar á aðildar-
félög og einstaklinga að útbreiða DÝRAVERNDARANN. -
Nýir kaupendur fá eldri árg. í kaupbæti og einnig er hægt að
fá keypta gamla árganga á væðu verði, eins og margir hafa not-
fært sér.
Stjórn S. D. í. þakkar öll bréf sem berast með efni eða ábend-
ingum um efni og biður fólk að vera duglegt að skrifa okkur
um hugðarefni sín.
Hafið þið, lesendur góðir, einhverja ákveðna skoðun á dýra-
vernd og framkvæmd hennar? Sendið okkur þá línu. Því fleiri
raddir sem við heyrum í blaðinu okkar því betra og fjölbreyttara
verður það.
Utanáskrift er: DÝRAVERNDARINN, pósthólf 993, 121
Reykj avík.