Dýraverndarinn


Dýraverndarinn - 01.02.1978, Qupperneq 42

Dýraverndarinn - 01.02.1978, Qupperneq 42
Börnin skrifa Hver getur hjálpaS músinni? Músin þarf að komast inn í holu sína, án þess að verða á vegi katt- anna, sem þarna sjást víst einir þrír. — Á hún að fara leið 1 eða 4? Hver getur nú hjálpað? LITLI DVERGURÍNN HANN HÓDÓ Einu sinni var lítill dvergur sem hét Hódó. Hódó litli átti heima í stórri borg. Hódó var bannað að leika sér við dýr, en samt fór hann á hverjum degi út í skóg að hjálpa öllum dýrum sem voru í vandræð- um og leika sér við þau. Einu sinni hitti Hódó lítinn kettling sem hafði fótbrotnað. Hann læddist með hann heim til sín og faldi hann. Hódó sagði syst- ur sinni frá kettlingnum og þau hjúkruðu honum. Svo slepptu þau honum þegar honum var batnað. Pabbi Hódó var reiður við Hódó og bannaði honum að vera með dýrin. En þá var Hódó svo leiður að pabbi hans sagði að nú mættu öll dvergabörn leika sér við dýr. Og síðan hafa öll dvergabörn leikið sér við dýrin í skóginum. Sólborg, 8 ára. VINKONA MÍN (skólastíll) Vinkona mín er alveg ferlega skrítin, en æðislega skemmtileg. Hún er lítil og mjó og þykir gaman að hlaupa í hringi á teppinu inni í herbergi eða inni á baði. Einu sinni nagaði hún gat á teppið. Hún er mjög lítil, aðeins 13 cm á lengd og 100 gr á þyngd. Nú farið þið sjálfsagt að velta fyrir ykkur hvers konar fyrirbæri þetta sé. Ég skal segja ykkur það. Þetta er einstæð hamstramóðir sem hefur tvisvar verið ólétt og átt sam- tals 19 börn. Hún missti manninn sinn. Hann var myrtur um miðnæt- urbil - það gerði kisan mín. En vinkona mín lét ekki bugast. Hún hresstist til muna, svei mér þá. K. J. 42 DÝRAVF.RNDARINN

x

Dýraverndarinn

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dýraverndarinn
https://timarit.is/publication/598

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.