Dýraverndarinn - 01.02.1978, Page 43
Samheldni
SAMHELDNI
Eftirfarandi grein birtist í 4■ tbl.
1977 af DJURSKYDDET, mál-
gagni scenska dýraverndunarsam-
bandsins. Greinin er eftir Gunnar
T. Krantz og birtist hér í lauslegri
þýðingu.
Efni þessarar greinar er mjög
umhugsunarvert og á ekki síður við
hér á landi.
Samheldni er orð, sem felur í sér
ábyrgð. Við sjáum það og heyrum á
hverjum degi; sýndu samheldni
með fjölskyldu þinni, með vinnu-
félögum þínum, með stjórnmála-
flokki þínum, gagnvart landi þínu,
gagnvart trú þinni og gagnvart
sjálfum þér. Við sem vinnum að
dýravernd verðum að standa saman
um hið sameiginlega takmark okk-
ar, um félagið okkar, um sambandið
okkar. Samheldni skapar einhug og
styrk. Samheldni útheimtir tillits-
semi við aðra. Samheldni krefst
þess að eigin metnaði sé fórnað.
Samheldni þýðir ekki að allir eigi
að hugsa eins. í samheldnum hópi
er hægt að skiptast á skoðunum án
þess að samheldnin fari forgörðum.
Það sem við þurfum á að halda
einmitt núna innan sambands okk-
ar er samheldni til að geta mætt erf-
iðleikum og uppfyllt þær kröfur
sem gerðar eru til okkar. Aðeins
með því að standa saman getum
við skapað virðingu fyrir málstað
okkar og tryggt framgang dýra-
verndar. Sameinað sterkt landssam-
band er mjög mikilvægt þegar við
setjum fram tillögur og álitsgerðir,
eða finnum að því sem miður fer.
Út á við eigum við málgagn, „Dýra-
verndarann". Það er áríðandi að
þetta tímarit okkar komi út og
dreifist og að efni þess sé lifandi.
Frá og með n.k. ári verður fé-
lagsmönnum skylt að kaupa blað-
ið og mun þetta tryggja þann
grundvöll og formfestu sem er
nauðsynleg fyrir tilvist blaðsins
í þessu sambandi verður hver og
einn félagsmaður að sýna samheldni
með þrennum hætti:
Með því að borga hið smánar-
lega lága áskriftargjald kr. 8.
Reyna að útbreiða blaðið til allra
sem hafa áhuga fyrir málefnalega
vel uppbyggðri dýravernd í landi
okkar.
Leggja til efni og fréttir sem
gera blaðið lifandi og framsækið.
Ritstjórinn á ekki að skrifa blað-
ið einn. Það verður að styðja við
bakið á honum og hjálpa honum
að finna efni.
Á komandi árum er því nauð-
synlegt að sýna: Samheldni, einhug
og virka þátttöku.
ÁFENGIS-
OG TÖBAKSVERZLUN RÍKISINS
Skrifstofa Borgartúni 7 — Sími 24280
Opiö mánudaga til föstudaga
frá kl. 8.45-16.30
Útborganir á fimmtudögum
frá kl. 10-12 og 13-15
DÝRAVERNDARINN
43