Stúdentablaðið - 01.05.2007, Blaðsíða 16
lflðtal við Jónas Krístjánsson
Fyrst og f remst
leiðarahöfundur
Þeir eru fáir, ef nokkrir, hér á landi
sem hafa verið viðriðnir fjölmiðla
jafn lengi og Jónas Kristjánsson.
Hann byrjaði sem blaðamaður á
Tímanum árið 1961 og nú fjörutiu
og sex árum síðar er hann enn að
miðla upplýsingum til fólks.
Jónas er stúdent úr
Menntaskólanum í Reykjavík og
lauk B.A.-prófi í sagnfrteði frá
Háskóla Ísíands árið 1966. Jónas
hefur unnið sem blaðamaður,
ritstjóri, fréttastjóri, útgáfustjóri og
leiðarahöfundur á Timanum, Vísi,
Dagblaðinu, DV, Fréttablaðinu
og Eiðfaxa. Auk þess hefur hann
skrifað fjölda bóka um rcektun
íslenska hestsins og leiðarvisa um
stórborgir.
1 ljósi þessa er ekki skritið að hann
sé einn allra afkastamesti bloggari
landsins. A hverjum degi birtast
á heimasíðu hans, www.jonas.is,
þrjár stuttar greinar eða punktar
eins og hann kýs að kalla þá, um
allt milli himins og jarðar. Það
sem gerir blogg Jónasar áhugavert
er að þar þarf hann ekki uó lúta
þeim lögmálum sem þekkjast hjá
hlaða- og fréttamönnum. Skrifin
eru afdráttarlaus og með ólikindum
hverju maðurinn hefur ekki skoðanir
á.
Blaðamaður Stúdentablaðsins
settist niður með Jónasi á heimili
hans á Seltjarnarnesi og ræddi vió
hann um fjölmiðlun, bteði hérlendis
og erlendis.
Hvað er langt síðan að þú byrjaðir
AÐ BLOGGA OG HVAÐA ÁSTÆÐUR LÁGU
ÞAR AÐ BAKI?
Ég hef gaman af þessu formi. Ég hef
áratugareynslu af því að skrifa leiðara
í blöð en það sem ég hef verið að
reyna að gera á netinu er að skrifa
stutta og hnitmiðaða texta enda finnst
mér formið kalla á það. Þar reyni
ég því að spúla textann niður, tek út
óþarfa orð og forðast málalengingar.
Ég hef fylgst með netskrifum og var
áskrifandi af fréttahópum þar fyrst í
kringum 1990. Upphaflega ástæðan
fyrir því að ég fór á netið var sú að
ég vildi halda utan um það sem ég hef
skrifað í gegnum tíðina og því fór ég í
það verk að skanna það allt þarna inn
á stafrænt form. Inni á vefnum er því
mestallt sem ég hef skrifað síðan 1973.
Svo hef ég bætt þarna inn ýmsu öðru,
nú síðast, varðandi hestamennsku
sem birst hefúr í Eiðfaxa. Þannig að
á vefnum núna á að vera mestallur
texti sem ég hef skrifað í gegnum
tíðina að frátöldum einhverjum
blaðagreinum sem hafa farið fram
hjá mér. Það má því segja að í byrjun
og allt fram til ársins 2000, hafi verið
um einhverskonar sagnfræði að ræða,
þarna setti ég inn texta sem ég var
búinn að skrifa. Það var svo fyrir
u.þ.b. sjö árum sem ég fór að skrifa
inn á netið milliliðalaust.
Þjáist ekki af sviðsskrekk
ÞÚ SKRIFAR Á HVERJUM MORGNI ÞRJÁR
STUTTAR GREINAR, EÐA PUNKTA EINS
OG ÞÚ KALLAR ÞA», ÁSAMT ÞVÍ AÐ
GAGNRÝNA VEITINGAHÚS AF OC TIL. Er
AF NÆGU AÐ TAKA?
Ég hef nú verið það marga átatugi í
þessum bransa að ég þjáist ekki af
neinum sviðsskrekk. Þegar ég sest
niður til að skrifa á netið eru alltaf
einhver verkefni, þetta er fyrst og
fremst spuming um að velja og hafna.
Enda er það þannig að stundum er
þetta áhugavert fyrir lesendur en
stundum svo sérhæft að ég efast um
að nokkur annar en ég hafi áhuga á
því. Ég bendi Iíka oft á það, í þessum
punktum, sem aðrir hafa verið að
skrifa um úti í heimi og vitna þá í
erlendar greinar. í þeim tilfellum
endursegi ég einhverjar staðreyndir
upp úr viðkomandi grein og bæti svo
kannski einhverju við, það er allur
gangur á því.
En ég á aldrei í neinum erfiðleikum
með að finna eitthvað til að íjalla um,
þar er ég aldrei stopp, það er löngu
Iiðin tíð.
Gagnrýni á ýmsa menn og
MÁLEFNI ER ÁBERANDl Á HEIMASÍÐU
ÞINNI. SEM DÆMI KALLAR ÞÚ
Framsóknarflokkinn vinnumiðlun,
ÞÉR LÝST EKKI Á BUSH OG RÍKISSTJÓRN
HANS, UTANRÍKISSTEFNU ÍSRAELS,
SKIPULAGSMÁL 1 BORGINNI OG
FANGELSISMÁL SVO FÁTT EITT SÉ
NEFNT. HEFUR ÞÚ ALDREI HUCLEITT A»
FARA ÚT í PÖLITÍK?
Nei, það hefur mér aldrei dottið í hug,
þó ég hafi mikinn áhuga á henni. Ég
hef í gegnum tíðina fyrst og fremst
verið leiðarahöfundur frekar en
fréttahöfundur. Þegar ég skrifa inn á
netið, og flokka, er það í framhaldi af
ferli mínum sem leiðarahöfundur á
dagblöðum. Þannig að fréttir í skrifum
mínum eru minna atriði heldur en
skoðanirnar. Ég hef þó ávallt reynt að
setja þessar skoðanir þannig fram að
ég vísa til fréttar, eða staðreynda, sem
hafa komið fram. Enda lít ég á bloggið
sem vettvang til þess að koma mínum
skoðunum á framfæri.
Hvaða hlutverki telur þú skrif á
NETINU GEGNA? ÞURFA F.KK1 AÐ CILDA
EINHVERJAR REGLUR ÞAR EINS OG T.D.
HJÁ FJÖLMIÐLUM ?
Ég hef hvatt til þess að þeir sem
skrifa á netið setji sér reglur, án þess
að einhver stofnun komi þar endilega
nálægt. Þetta á við í þeim tilvikum
þegar þeir hleypa að skoðunum
annarra á sínum síðum, sem er mjög
algengt. Þarna finnst mér sjálfsagt að
fólk komi fram undir nöfnum, ekki
nafnlaust eða undir gervinöfnum.
Þetta tel ég að mundi bæta umræðuna
og koma í veg fyrir að hún sé
eyðilögð. Þetta getur auðviðað hver
og einn ákveðið fyrir sig en það á ekki
að hleypa fólki inn með skoðanir sem
vill ekki koma fram undir nafni, þetta
161 Stúdentablaðið