Stúdentablaðið - 01.05.2007, Síða 20
Hljóntsueitin
the
TónflyUendurnir í Mínus.
Creat northern
Whalekill
I desember síðastliðnum hélt
hljómsveitin mínus vestur um
haf, nónar tiltekið til Los Angeles.
Ólíkt fyrri ferðum sveitarinnar
sem hafa að mestu snúist um
tónleikahald, var markmiðið nú að
taka upp plötu sem var og gert. Ekki
vanþörf á, því rnargir voru farnir
að hafa áhyggjur af hljómsveitinni
enda rétt tæp fjögur ár siðan
meistarastykkið Halldór Laxness
leit dagsins Ijós. Afraksturinn kom
svo út fyrir skemmstu og hefur vakið
verðskuldaðaathyglLSúathyglihefur
að mestu veriðgóð og gagnrýnendur
sem og almenningur hafa lofað
gripinn. Það eru þó ekki allir jafn
sáttir. Hvalaverndunarsinnar,
grænfriðungar og grænmetisætur
víða í heiminum hafa mótmœlt
og kannski skiljanlega, þvi lítil
hætta er á að platan verði boðin
til sölu á lífrœnum mörkuðum í
sumar. Astœðan? Jú titillplötunnar
er: THE GREAT NORTHERN
WHALEKILL.
Blaðamaður Stúdentablaðsins mælti
sér mót við þá Frosta, Bjama og Þröst
til aó ræða um nýju plötuna og hvað
væri framundan hjá mínus.
NÚ ERU FJÖGUR ÁR SÍÐAN SÍÐASTA
PLATA KOM ÚT. AF HVERJU ALLUR
ÞESSI TÍMI?
Frosti: Við höfúm alltaf gefið okkur
góðan tíma í það sem við erum að
gera. Þannig að það stóð aldrei til að
það kæmi strax önnur plata í kjölfarið
á Halldóri Laxness. Enda sjáum við
enga ástæðu til að hamra eitthvað
jám meðan það er heitt. Við emm
í tónlistinni af öðmm ástæðum og
viðskiptasjónarmið hafa ekkert með
þær að gera. Bjami: Síðasta plata var
endurútgefin erlendis einu og hálfu
ári eftir að hún kom út héma heima.
Hún gekk því í endurnýjun lífdaga
ef svo má segja. Það var farið í smá
markaðsherferð með plötuna og henni
pakkað í nýjar umbúðir. Svo þurfium
við líka að fylgja henni eftir úti og
það tók sinn tíma.
•Þröstur: Ferlið, sem var búið hér
heima, hófst því aftur úti. Svo lá líka
ekkert á en við emm mjög ánægðir
með að nýja platan er nú loksins
komin út.
NÚ HEFUR MÁTT GREINA MIKLAR
BREYTINGAR Á TÓNLIST YKKAR Á
MILLI PLATNA. ER ÞAÐ SAMA UPPI Á
TENINGNUM HÉR?
Bjarni: Já og nei. Þetta er samt ekki
jafn stórt stökk og á milli Hey Johnny
og Jesus Christ Bobby og svo aftur
Jesus Christ Bobby og Halldórs
Laxness.
Þröstur: Á þessari plötu erum við
iyrst og fremst að fúllkomna þann
hljóm sem við lögðum grunn að á
síðustu plötu. Með henni vorum við
að gera eitthvað alveg nýtt. Kmmmi
farinn að syngja með hreinni röddu
og uppbygging laganna allt öðmvísi
en áður. Við emm búnir að ná betri
tökum á því sem við vomm að gera
þá.
Bjami: Þetta er svona Use Your
Illusion 1&2 (plötur Guns N' Roses,
innskot blaðamanns), við emm búnir
að ná tökum á stílnum og þurfúm því
aldrei að gera svona plötu aftur.
Frosti: Þessi plata, líkt og þær fyrri,
hljómar bara óumdeilanlega eins og
mínus. Við erum búnir að koma okkur
upp okkar eigin hljóm fyrir löngu,
sem gerir það að verkum, að í hvert
sinn sem þú heyrir lag með mínus
þá veit fólk hvaða hljómsveit er þar
á ferð. Þetta er eiginleiki sem allir
skapandi listamenn verða að hafa.
Þessi plata var tekin upp undir
ÖÐRUM KRINGUMSTÆÐUM EN FYRRI
PLÖTUR. HAFÐI ÞAÐ MIKIÐ AÐ SEGJA
VARÐANDI ÚTKOMUNA?
Bjarni: Já, það hafði mikið að segja.
Það er auðvitað allt annað mál að vinna
með heimsþekktum upptökumönnum
sem unnið hafa með mörgum af okkar
uppáhalds böndum en að vinna plötu
með vini okkar Curver Thoroddsen.
ÉgmeinaJoeBarresi hefur tekið upp
plötur með Tool, The Jesus Lizard,
Kyuss, Queens of the Stone Age og
Tomahawk og Husky Höskulds með
Fantomas og Peeping Tom. Þannig að
fá að vinna með svona náungum er
auðvitað frábær lífsreynsla.
Þröstur: Þetta var óneitanlega
fagmannlegra umhverfi, fullkomið
stúdíó og svoleiðis. Síðan var Joe
Barresi sífellt að benda okkur á hluti
sem við höfðum ekki tekið eftir og
sá hluti sem aðrir eiga erfitt með að
sjá. Það gerir hann jú að þessum virta
upptökumanni sem hann er.
Bjami: Það skipti líka miklu máli
að fá algeran frið til að vinna. Þurfa
ekki að hlaupa út úr stúdíóinu eftir
að upptökum var lokið á kvöldin að
kaupa í matinn eða þrífa íbúðina.
Þröstur: Andrúmsloftið var líka
miklu meira eins og við værum í
sumarfríi. 25 stiga hiti úti, strönd,
barir, strippbúllur og veitingastaðir.
Það hafði góð áhrif á geðheilsuna.
Frosti: Þetta er þó alls ekkert endilega
besta leiðin til að taka upp plötu. Þetta
var engu að síður afbragðs tilbreyting
frá þeim upptökuaðferðum sem við
höfðum áður kynnst.
Líkt og fyrr er mikið lagt í
UMBÚÐIRNAR. Er ÞAÐ ÓRJÚFANLEGUR
HLUTI AF PAKKANUM?
Bjami: Við leggjum mikla áherslu á
að umbúðirnar styðji við innihaldið.
Til að fólk kaupi plötu, í staðinn
fyrir að ná í hana á netinu, verður
að vera eitthvað varið í umbúðirnar.
Þetta verður að vera einn pakki sem
gaman er að eiga og þess vegna verða
umbúðimar að vera í lagi; veglegar
og flottar.
Frosti: Ég hef persónulega aldrei
skilið hljómsveitir og listamenn
sem leggja enga áherslu á útlit
plötuumslaga sinna. Sjáðu til
dæmis allt fjöldaframleidda sorpið
sem kemur frá Senu. Þar virðist
hönnunardeildin samanstanda af
einum og sama manninum sem gerir
öll koverin. Það virðist vera lagður
álíka mikill metnaður í þau og lagður
er í Hagkaupsbæklinginn sem kemur
út fjórum sinnum í viku.
Þröstur: Það er auðvitað þannig að
þegar maður hlustar á alvöru plötu
skoðar maður hulstrið og pælir í því.
Það er stór hluti af upplifuninni.
Nú HAFA FJÖLSKYLDUAÐSTÆÐUR HJÁ
EINHVERJUM YKKAR BREYST, BÖRN
KOMIN f SPILIÐ OG FLEIRA. HVAÐA
ÁHRIF HEFUR ÞETTA HAFT Á YKKUR OG
HLJÓMSVEITINA?
Þröstur: Aðstæður hafa vissulega
breyst og þá aðallega hjá Bjama og
Bjössa sem em orðnir feður. Við hinir
erum ennþá algerlega ábyrgðarlausir.
Bjarni: Þetta hefur lítil áhrif haft á
hljómsveitina sem slíka. Maður þarf
að skipuleggja tíma sinn betur og
er því betur fókuseraður á það sem
maður er að gera hverju sinni. Maður
er hættur að hugsa eingöngu um
rassgatið á sjálfúm sér og þetta drífur
mann áfram í því að ná árangri.
Þröstur: Við munum halda áfram að
fara í tónleikaferðir erlendis enda
enginn heimsendir þó menn eignist
krakka.
Þið hafið verið að spila TÖLUVERT
ERLENDIS. HVAÐ ER AÐ FRÉTTA AF
ÞEIM VÍGSTÖÐVUM?
Þröstur: Við vitum í raun lítið um það.
Við losnuðum undan samningi sem
við vomm með hjá Sony og erum því
núna með hreint borð og getum farið
að þreifa fyrir okkur á þeim vettvangi
að nýju.
Bjarni: Platan er nýkomin út héma
heima og svo er bara að sjá hvað
verður með markaðinn erlendis. Við
munum spila fyrir einhverja erlenda
útgefendur en þetta tekur allt svo
svakalegan tíma svo það er best að
201 Stúdentablaðið