Stúdentablaðið

Årgang

Stúdentablaðið - 01.05.2007, Side 22

Stúdentablaðið - 01.05.2007, Side 22
Námið Flestir háskólanemar stunda einhverja vinnu með skóla, 50% vinnu, hlutavinnu eða kvöld- og helgarvinnu. Allt til þess að geta borgað næsta reikning. En fœst okkar eru þó þeim hœfileikum gædd að geta unnið 100% vinnu og verið i 100% námi af fullum krafti á sama tíma. Sumum munar samt ekkert um það. Blaðamanni Stúdentabaðsins lék forvitni á að vita hvernig fólk fer að þvi að sameina öll sín hlutverk. Eru skipulagðari persónur búnar heraga? Eða lœtur eitthvað undan þegar manneskja tekur á sig 200% vinnu? Til dæmis félagslífið eða fjölskyldulífið? Er skólakerfið ekki nægilega krefjandi að mati þeirra sem geta sinnt fullri vinnu með námi? 100% vinna með 100% námi Áekkiaðkoma heim? Skúli Skúlason hefur stundað nám samhliða vinnu síðan 2001 en þá byrjaði hann í viðskiptafræði við Háskólann í Reykjavík. Yngri dóttir hans var þá aðeins 11 ára og sú eldri 14 ára. 1 dag er hann að klára M.A. nám í stjómun og stefnumótun við Háskóla íslands og vinnur sem rekstrarráðgjafi hjá Capacent. Aður vann Skúli sem fjármálastjóri ÍTR. Honum fannst vera kominn tími til að skipta um umhverfi. „Þetta er nú samt ekki alltaf búið að vera auðvelt," segir hann. „Yngri dóttir mín hringdi í mig um daginn og spurði hvort ég ætlaði ekki að fara koma heim. „Jú jú, ég kem heim eftir smá tíma,” sagði ég. „Nei pabbi, ég meina í alvöru heim. Ég er að verða fullorðin án þess að þú sért búin að taka eftir því.” Það var svolítið sárt að heyra.“ Skipuleggurvikuísenn „Ég reyni að skipuleggja mig fyrir vikuna, ekki lengra, nema ef stór verkefni koma upp. Það er ekki hægt að gera langtímaplön þegar maður er að gera svona margt í einu.“ Skúli segist skipuleggja allt á tölvudagbók sem hann geti vart verið án. Annars er ekki mikið jafnvægi á milli vinnu, skóla og fjölskyldu hjá honum í dag. „Fjölskyldan situr á hakanum, án þess að það sé ætluninn, en það bara gerist. Svo á maður auðvitað ekkert félagslíf, fæ alltaf samviskubit ef ég fer út, gæti verið heima að læra“ segir Skúli. „Ég held það sé samviskubit sem er þekkt á meðal háskólanema, eða er það ekki?“ HR meíri hrdfur en HÍ Þar sem Skúli hefur bæði stundað nám í HR og í HÍ var ekki úr vegi að spyrja hvort munur sé á milli skólanna að hans mati. „Sum námskeið í skólanum eru ekki með nógu miklar kröfur, það á bæði við um HR og HÍ en mér finnst meira vera tekið á því í HR.” Skúla finnst nemendur hafa meira um námið að segja í HR, „ef við erum ekki ánægð með námið og kvörtum þá er það bara lagað.“ Kerfið í HR er þannig sett upp að hver árgangur er með nemendafulltrúa. Skúla finnst það kerfi vera áhrifameira en kennslukannanimar í HI. „Vandamálin koma fyrr í ljós með nemendafulltrúa heldur en þegar kennslukannanir eru gerðar“, segir Skúli, og hefúr sjálfsagt lög að mæla í þeim efhum. SkúliSkúlason ekki vilja gera þetta aftur,“ bætir hún við. Meðan Marín var á fyrra ári sínu í M.A. náminu stundaði kærasti henanr nám erlendis. „Ég held það hafi bjargað sambandinu mínu, þá gat ég nýtt frítíma minn í það að læra en þurfti ekki að deila tímanum með honum, ég meina það er erfitt að vera með manneskju sem gerir ekkert annað en að læra og vinna“, segir Marín og hlær. Kennarar sýna nemendum skilning En hvað um kröfumar sem skólinn setur nemendum sínum, em þær of litlar? „Nei það held ég alls ekki, ég hef náttúrulega aðeins verið í mannfræði en þar em kennaramir alveg að sýna nemendunum skilning um að lífið er eitthvað meira en aðeins skólinn." Samt sem áður snérist líf Marínar um fátt annað en námið og vinnuna, vinirnir fengu að sitja á hakanum „en ég er heppin að því leyti að eiga góðar vinkonur. Þær voru duglegar að bjóða mér í mat“, segir Marín að lokum og er auðsjáanlega mjög þakklát vinkonum sínum. Sveigjanleikí skíptir öllu Asta Sól Kristjánsdóttir er ekki aðeins búin að vera í námi með vinnu í rúmlega 7 ár, heldur er hún einnig með fjölskyldu. Síðastliðið ár hefur hún verið í 100% námi með 100% vinnu. Asta Sól er að klára M.A.- nám í blaða- og fréttamennsku við Háskóla íslands en áður kláraði hún B.A. í ensku og kynjafræði og Hagnýta fjölmiðlun. Samhliða náminu hefúr hún mest allan tfmann unnið 100% vinnu hjá Norrænafélaginu sem verkefnisstjóri Snorra verkefnis. Að sögn Ástu skiptir það höfúð máli við að sameina nám og vinnu að yfirmennimir séu sveigjanlegir því annars sé þetta elcki hægt. „Ég vinn þá bara lengur þá daga sem ég þarf að fara í skólann,“ segir Ásta og gefúr blaðamanni það á tilfinninguna að henni finnist þetta ekkert mál. Sérfræðingur í „Post it“ miðum „Ég er skipulögð að eðlisfari,“ segir Ásta Sól í sömu andrá og hún sýnir blaðamanni miða. Á þeim sést hvemig hún skipuleggur daginn. „Ég skrifa allt sem ég þarf að gera fyrir daginn, á litla gula „post it“ miða. Ég skrifa einn fyrir skólann, annan fyrir vinnuna og enn annan fyrir allt persónulegt sem ég ætla að gera. Stundum er ég komin með svo mikið af miðum að ég veit ekki lengur hvemig ég á að snúa mér,“ segir hún og hlær. Hún bætir við að „gott skipulag er lykillinn að því að láta hlutina ganga upp.“ Asta og maðurinn hennar eiga líka tvo hunda þannig að bæði kvölds og morgna þarf að fara út með hundana. Það eykur kröfumar um gott skipulag sem virðist þó yfirleitt ganga upp. „Það þarf að púsla deginum saman en það tekst alltaf “ Kröfurnar mænu vera meiri Aðspurð um kröfumar sem farið er fram á í náminu segir Ásta að þær mættu vera meiri í ákveðnum námskeiðum. „Ég hef samt alveg tekið mér viku frí til þess að sinna skólanum vegna þess að ákveðinn kúrs er það krefjandi, en það fer þá bara af sumarfríinu. Annars em námskeiðin mismunandi og kröfúmar í kúrsunum líka.” Það sem fær helst að sitja á hakanum hjá Ástu er svefninn að dagsverki loknu. „Já, mér finnst svo erfitt að klippa á eitthvað annað“, segir Ásta að lokum. Díana Dögg Víglundsdóttir ddv@hi.is ÁstaSólKristjánsdóttir t|*w u rá*:. RAUOl K»oss 'SIANDS Marín Þórsdóttir Myndi ekki gera úetta aftur Marín Þórsdóttir útskrifaðist með M.A. gráðu í mannfræði júní 2006. Með náminu vann hún fulla vinnu við upplýsinga- og markaðsmál hjá Blóðbankanum. Marín segist aldrei hafa getað gert þetta ef hún hefði ekki verið starfi þar sem vinnutíminn var sveigjanlegur. Þannig fékk hún leyfi til að ganga inn og út til að sækja tíma. Hún slapp þó ekki við að sinna vinnunni því verkefnin biðu alltaf eftir að vera unnin þegar hún kom til baka. Héltkærastanum! Marín segir það ekki vera algengt að nemar í mannfræði vinna með námi og hvað þá 100% vinnu. Hún segir „aðeins einn hafði útskrifast með M.A. í mannfræði á settum tíma á undan mínum útskriftahóp, en við vorum svo þrjú í mínum hóp, þannig það ég myndi ekki segja að þetta væri normið.“ Marín segist heldur ekki vita um neinn annan í mannfræðinni sem vann 100% vinnu með fúllu námi. „Ég veit ekki til þess að neinn hafi unnið svona mikið með, þetta er náttúrulega líka allt of mikið og ég myndi 221 Stúdentablaðið

x

Stúdentablaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Stúdentablaðið
https://timarit.is/publication/350

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.