Stúdentablaðið - 01.05.2007, Side 24
Nýneminn
Nýneminn í nærmynd
Oft heyrist rcett um hversu
mikil viðbrigði það séu að klára
menntaskólann oghefja háskólanám.
Nýútskrifaðir stúdentar fyllast oftar
en ekki valkvíða á þessum mikilvægu
timamótum. Þá má oft sjá ráfa
ráðvillta í öngum sinum milli bása
á skorakynningum háskólanna.
Einhvern veginn tekst þeim þó
flestum að komast i gegnum fyrstu
önnina án teljandi skakkafalla. En
hvernig œtliþaðgangi í raun og veru ?
Hvernig tilfinning fylgir því að vera
nýnemi við Háskóla Islands? Hvaða
spurningar leita á nýnemann og hvar
heldur hann sig? Stúdentablaðið
ákvað að velta þessum margslungnu
spurningum fyrir sér og setti sig í
spor nýnemans.
Tilhlökkunartímabilið - Fyrir
annarbyrjun: Þetta er sá tími þegar
hinn tilvonandi nýnemi tekst á við
eina stærstu spumingu lífs síns; ætti
ég að velja mér leiðinlega en hagnýta
námsleið sem veitir mér greiðan
aðgang að framtíðarféþúfum, eða
á ég að velja þá sem gerir mig að
hamingjusömum öreiga? Á þessu
stigi stendur valið oftar en ekki á milli
viðskipta- og hagfræðideildar og
hugvísindadeildar. Margir nýnemar
stríða við valkvíða á þessu mikilvæga
tímabili. Ekki er þó nauðsynlegt að
örvænta því þrátt fyrir að verðandi
nýnemar haldi hið gagnstæða, þá ferst
háskólaferillinn ekki þótt þeir skipti
um skoðun síðar meir. Staðreyndin
er reyndar sú að rétt eins og með
framtíðarmakaval, prófa margir
nýnemar fleiri en eina námsleið áður
en þeir hitta á þá einu réttu.
Helstu staðir til að hanga á:
Háskólakynningar, heimasíða HÍ
Og biðraðimar hjá FS, LÍN og
Nemendaskrá.
Einkennandi andlegt ástand:
Óvissa, eftirvænting, kvíði, tilhlökkun
og óbilanleg bjartsýni á framtíðina.
Togstreitutímabilið - Upphaf
annar: Hér hefst alvara lífsins þegar
nýneminn þarf að takast á við nýtt
nám, nýtt umhverfi, nýja kennara,
nýja félaga og svo framvegis. Á
þessum tímamótum stendur hann
ffammi fýrir ýmsum spumingum sem
valdið geta verulegum valkvíða og
andlegri vanlíðan ef ekki er að gætt.
Spumingar sem sækja á nýnemann á
þessu timabili geta til að mynda verið
af þessum toga: Á ég að nota stílabók
eða fartölvu fyrir glósur? Á ég að sitja
fremst í stofunni/salnum til að virðast
áhugasamur eða á ég að setjast aftast
til að geta spjallað við bekkjarfélagana
þegar kennarinn sér ekki til? Á ég
að mæta í vísindaferðina eða á ég
að læra heima fyrir krossaprófið í
næstu viku? í heimspekideild: Á ég
að vera í lopapeysunni eða mussunni
í dag? í lögfræðideild: Á ég að mæta
með bindi eða Burberry’s trefilinn?
í sálfræðideild: Á ég að byrja að
reykja og drekka svart kaffi til að
falla í hópinn? í læknisfræði: Á ég að
flytja lögheimili mitt í Læknagarð eða
ffekar upp á Bókhlöðu? í kynjafræði:
Á ég að mála mig fyrir tímann? Á
þessu erfiða byrjunarstigi er það þó
oftast nær skynsemin sem ræður vali
nýnemans.
Helstu staðir til að hanga á: ínni í
kennslustofú (stundvíslega), heima
en á Uglunni að skoða glæmr, í
fyrstu vísindaferðinni (en bara
ef það liggur enginn aðkallandi
heimalærdómur fyrir), á kaffistofúnni
á Þjóðarbókhlöðunni að eyða
sumarhýmnni í lestrarpásum.
Einkennandi andlegt ástand:
Metnaður til náms, skipulagsvilji,
mikil andleg togstreita. Skynsemi og
jákvæðni hafa þó enn yfirhöndina.
Kæruleysistímabilið - Á miðri
önn: Þegar hér er komið við sögu,
er töluvert kæmleysi farið að gera
vart við sig hjá nýnemanum. Þeir
sem völdu stílabækur í byrjun annar
hafa nú flestir ef ekki allir fjárfest í
fartölvum til að geta flakkað á Netinu
eða lagt kapal meðan á misjöfnum
fyrirlestmm stendur. Kennararnir
em famir að biðja nemendur
um að færa sig ffamar í stofunni
svo þeir geti fylgst betur með og
fostudagsvísindaferðir em fastur
liður á stundaskrá nýnemans. Helsta
togstreitan felst í spumingum á borð
við þessar: Á ég að mæta í tíma eða á
ég að taka „langt matarhlé" á Kaffitári
í Þjóðminjasafninu? Á ég að glósa
þessa glæpsamlega þykku, þurm bók
sem gefin var út á fornöld eða á ég
að biðja sessunaut minn um að lána
mér glósumar sínar rétt fyrir prófið
(ath. þetta á ekki við ef þú ert nýnemi
í hjúkrun og enginn tímir að lána
þér glósur af ótta við samkeppni)?
Ætti ég ekki bara að afpanta
hópavinnuherbergið á Bókhlöðunni
klukkan átta í fyrramálið og stinga upp
á að við hittumst frekar klukkan átta
um kvöldið á Stúdentakjallaranum?
Það þarf vart að taka fram að á þessu
tímabili er áðumefnd skynsemi
nýnemans á bak og burt.
Helstu staðir til að hanga á: Öll
helstu kaffihús og barir borgarinnar,
leikjanet.is (í tímum), útsölur verslana
og Stúdentakjallarinn um leið og hann
opnar á daginn.
Einkennandi andlegt ástand:
Metnaðarleysi, almenn leti,
einbeitingarleysi, þynnka og deyfð
sem dregur úr námsmætti nýnemans.
Örlítill vottur af samviskubiti sem
gleymist þó jafnskjótt og fyrsti bjórinn
er opnaður í næstu vísindaferð.
Áfallstímabilið - í lok annar: Þegar
aðeins fáeinar vikur eru eftir af
önninni, fá flestir nýnemar andlegt
áfall í aðdraganda próftímabilsins.
Sjokkið er þó í mismiklum mæli
eftir því hversu skynsamlega eða
óskynsamlega nýnemarnir hafa
hegðað sér á fyrri tímabilum. Þótt
ótrúlegt megi virðast þá falla fæstir
þeirra í gryíju svartsýni og volæðis
á þessum tímapunkti heldur fyllast
þess í stað endumýjaðri orku. Fögur
fyrirheit eru gefin um heilbrigt
lífemi, nákvæma skipulagningu
og nýtingu upplestrarfrísins.
Glósuhópar eru myndaðir í gríð og
erg og próflestrarplön lögð fyrir
síðasta sprettinn. Spumingarnar sem
nýnemar glíma við á þessu krefjandi
tímabili eru aðallega eitthvað á þessa
leið: Á ég að lifa á safapressuðum,
lífrænum ávöxtum og Ginsengi næstu
vikumar eða fá orku og úthald úr
kaffi, gosi og nammi? Á ég að fá mér
næturaðgangskort að Odda eða á ég
að treysta á gildi góðs nætursvefns?
Ekki þarf að Ijölyrða um að flestöll
fyrirheit og metnaðarfull plön fara
forgörðum hjá mörgum nýnemanum
og meirihluti þeirra lýkur þessu
tímabili ólesinn og ósofinn í sykur-
og/koffeinsjokki.
Helstu staðir til að hanga á: Allar
háskólabyggingar og bókasöfn sem
bjóða uppá lestraraðstöðu, prof.is,
ged.is, Heilsuhúsið og Nammiland.
Einkennandi andlegt ástand:
Samviskubitafverstusort,eftirsjáeftir
tímaeyðslu á kæmleysistímabilinu og
prófkvíði. Skynsemin borin ofurliði
af prófstreitu.
Nina M. Jónsdóttir
nmjl@hi.is
við seljum geisladiskum fólk...
Smekkleysa Plötubúð
á nýjum stað!
fÆ '
vertu íplús
og kauptu
Mínus
og Björk
Mínus - The Great Northern Whalekill
Kemur í verslanir í dag
1 sömu ferð
Björk - Volta
2. upplag kemur í verslanir í dag
Smekkleysa Plötubúð
Laugavegi 28 • sími 534 3730
241 Stúdentablaðið