Stúdentablaðið

Árgangur

Stúdentablaðið - 01.05.2007, Síða 26

Stúdentablaðið - 01.05.2007, Síða 26
islenskunim Frá S-Ameríku til Aðalbyggingar Þær vekja óneitanlega eftirtekt innan veggja Háskólans enda sjaldgæft að hitta fyrir nunnur i fullum skrúða að tékka á tölvupóstinum sínum í tölvuverinu. En þessar blá-/gráklæddu, brosmildu systur eru líka alveg sérstakar og líkjast alls ekkert þeirri úreltu ímynd sem flestir íslendingar hafa af kaþólskum nunnum. Þær eru hvorki gamlar, strangar né úr takti við tímann heldur ungar, eldhressar og nútimavæddar. Maríusysturnar fjórar; systir Maria de Pentecostés, systir María Reina del Paraíso, systir María Reina de los Cielos og systir María Máe de Deus féllust á aó ræða við Stúdentablaðið um dvölina á lslandi, námið og trúna. Þær eru nýkomnar heim úr daglegri kvöldmessu í Jófríðarstaðakirkju í Hafnarfirði þegar þær setjast niður með blaðamanni um kvöldmatarleytið. Aðspurðar segjast þær ekki þurfa að borða fyrst því þær séu vanar að matast seint á kvöldin. Það sé ein þeirra hefða frá heimaslóðunum sem þær haldi fast í. Það kemur reyndar ekki á óvart að matmálstímamir séu ólíkir því sem hér tíðkast enda em heimaslóðir þeirra í annarri heimsálfú og allt öðmm menningarheimi, nánar tiltekið í Suður - Ameríku. Þrjár systranna koma frá Argentínu en sú fjórða, systir Máe de Deus er frá Brasilíu. Það liggur því beinast við að byrja á að spyrja þær, hvenær og hvers vegna þær hafi komið alla leið hingað til íslands. Köllun en ekki starf Pentecostés: „Við komum hingað í september 2004 í fyrsta skiptið en þá var príorinnan (yfimunna klausturreglunnar) með okkur fyrstu vikuna. Príorinnan bauð okkur að fara til íslands og við gerðum það. Við verðum nunnur til þess að fylgja köllun Guðs og fylgjum Honum alla ævi okkar, hvert sem Hann leiðir okkur.“ Slík köllun er líklega ofar skilningi hins almenna, vantrúaða íslendings sem flyst varla búferlum nema hann ákveði það sjálfur og hvað þá á milli heimsálfa. Systir Pentecostés útskýrir þetta nánar þegar hún svarar því til af hverju þær hafi kosið að verða nunnur. Pentecostés: „Þetta er erfitt fyrir íslendinga sem og annað fólk að skilja því þetta er köllun sem kemur frá Guði. Fólk hugsar um þetta sem starf, til dæmis eins og að vera læknir, en það er ekki rétt. Þetta er ekki starf heldur köllun. Sumir hafa þá köllun að giftast og stofha fjölskyldu, okkar köllun er sú að tilheyra Guði ejnum. Hann býður börnum sínum að nálgast sig og sumir segja nei en aðrir já. Þetta er ekki vinna í okkar augum heldur köllun sem breytir öllu lífi okkar." Reykjauík, Island Köllunin hefúr svo sannarlega breytt lífi þessara ungu nunna sem voru á aldrinum 16 til 23 ára þegar þær fengu hana og gengu til liðs vió alþjóðlegu klaustursregluna Servidoras del Seftor y de la Virgen de Matará (Maríusystur til einfoldunar fyrir okkur Islendinga). Reglan sem skiptist í karla- og kvendeildir starfar nú í 22 löndum og meðlimir hennar eru rúmlega 700 talsins. Pentecostés: „í henni eru bæði prestar, munkar og nunnur í lokuðum klaustrum en líka trúboðar eins og við sem ferðumst milli staða og boðum trúna.“ Systurnar fjórar sem fengu það viðamikla verkefni að breiða út trú sína hér á landi, þekktust aðeins lítillega áður en þær voru sendar hingað. Pentecostés/Máe de Deus: „Við erum úr sömu reglunni en bjuggum í mismunandi klaustrum. Við getum búið með reglusystrum alls staðar að úr heiminum en þekkjumst sjaldnast fyrirfram." Þær þekktu þó enn minna til áfangastaðarins en sambýlinga sinna fyrir komuna. Pentecostés: „Við vissum bara að Reykjavík væri höfúðborg íslands eins og við lærðum um í skólanum. Tveimur árum áður en við komum hingað, fengum við svo stofnanda reglunnar okkar í heimsókn sem Iýsti landinu og fólkinu fyrir okkur. En áður en hann kom, vissum við lítið sem ekkert." EKKíeinsogí biomyndunum Þrátt fyrir takmarkaðar upplýsingar segjast systurnar samt ekki hafa fengið slæmt menningarsjokk við komuna til landsins enda treysti þær á að Guð leiði þær ekki í ógöngur. Pentecostés: „Island var auðvitað allt öðruvísi en það sem við þekktum en viðsemtrúboðarerumundirbúnarfyrir að takast á við hvað sem að höndum ber. Skiptir ekki máli hvort við forum til fátækra eða ríkra landa, hvort við vinnum með bömum eða öldruðum. Við eigum ekki í vandræðum með að nálgast fólk sem á erfitt eða er lokað. Við höfum öðruvísi hugmyndir en aðrir því við treystum því að Guð hjálpi okkur í öllum störfum okkar og gefi okkur máttinn til að geta þetta. Annað fólk kemur kannski til að starfa héma í stuttan tíma og vinna sér inn peninga. Fyrir það skiptir ekki endilega máli að læra tungumálið eða hvort Ioftslagið sé gott eða slæmt. Við erum héma á öðmm forsendum því við viljum breyta þvf sem miður fer í samfélaginu og veita sáluhjálp þar sem hennar er þörf.“ Markmið þeirra Maríusystra em því önnur en flestra útlendinga sem hingað sækja, en hvemig skyldu fslendingar hafa tekið á móti þeim? Pentccostés: „Bara vel, fólk er mjög kurteist við okkur. Það er dálítið skrítið fyrir Islendinga að sjá okkur úti á götu. Þeir vita lítið um nunnur, kannski bara úr bíómyndum. Þeir veita okkur þó nokkra athygli en em líka mjög þolinmóðir við okkur.“ Tala meíralesa minna Þolinmæði í garð útlendinga er einmitt lykilatriði þegar kemur að því að læra og þjálfa íslenskukunnáttuna. Systurnar hafa allar nema ein, sótt tíma í íslensku fyrir útlendinga síðastliðin tvö ár. SystirParaíso, sem hefúrnýlega bæst í hópinn, sækir nú námskeið hjá Mími en ætlar hugsanlega í HI á næstu önn. Inntar eftir því hvemig íslenskunámið gangi, svara þær vel en gjóa svo augunum, flissandi á hver aðra. Systir Pentecostés, sú sem hefur oftast orð fyrir þeim enda búin að vera hér lengst ásamt systur Cielos, viðurkennir á lýtalausri íslensku að þær hafi verið afar námsfúsar fyrsta árið sitt í náminu en áhuginn hafi farið dvínandi. Pentecostés: „Á öðm ári er minna um málfræði en meira um bókmenntafræði, íslendingasögumar og fleira þess háttar. Við leggjum mesta áherslu á að læra málnotkunina til að geta talað við fólk. Við vorum duglegar að æfa okkur en ekki eins duglegar að lesa heima.“ Eins og gjamt er um aðflutta nýbúa jafnt sem boma og bamfædda íslendinga, á málfræðin það til að vefjast fyrir þeim. Systumar em þar engin undantekning. Cielos: „Erfiðast við íslenskuna? Það er málfræðin, alltof margar undantekningar!“ Blaðamaður getur vel tekið undir það en hvemig skyldi þeim hafa verið tekið innan háskólans? Máe de Deus: „Fyrsta árið var fólk pínu hissa þegar það sá okkur. Þá vorum við líka átta saman í náminu; tveir prestar, tveir munkar og við. Kennararnir og nemendurnir voru forvitnir um hvaðan við værum og hvað við værum eiginlega að gera hér.“ Fjallaklifur í frístundum Það er ekki örgrannt um að sama forvitni nái til blaðamanns sem stenst ekki mátið að spyrja hvemig venjulegur dagur í lífi nunna sé. Þær skella allar upp úr og em skjótar til svars. Pentecostés: „Venjulegur dagur er ekki til hjá okkur! Allir dagar eru mismunandi. Vikan okkar er þéttskipuð, við forum í skólann og læmm heima, sjáum um trúfræðslu fyrir börn, skipuleggjum bamaskemmtanir og kórastarf, sækjum messur á hverju kvöldi og um helgar. Við heimsækjum líka fólk, eldum og þrífum heima hjá okkur óg í kirkjunni. Svo höfum við tilbeiðslustundir hér heima á morgnana og kvöldin." En líf systranna snýst ekki bara um að sinna náminu og öðmm sky ldustörfum því þær eiga líka fjölbreytt áhugamál sem þær stunda í frítíma sínum. Paraíso/Cielos/Pentecostés/Máe de Deus: „Við spjöllum saman, lesum bækur, sendum tölvupósta til fjölskyldna okkar, fömm í göngutúra, spilum og margt fleira.“ Eins og flestir útlendingar sem hingað koma til lengri eða skemmri dvalar, em systurnar áhugasamar um íslenska náttúm og hafa heimsótt fleiri staði innanlands en margir innfæddir Frónbúar. Þær hafa þegar farið hringinn um landið og láta sig ekki muna um að hlaupa upp um fjöll og fimindi til að njóta útsýnisins sem best. Paraíso/Cielos/Pentecostés/Máe de Deus: „Já, við höfum ferðast mikið. Sáum meðal annars Skógarfoss, Kirkjubæjarklaustur, Skálholt, Geysi, Þingvelli, Bamafoss, Hvalfjörð, Reykholt...Svo fómm við upp á Helgafell, Keili og Esju.“ Grátaekkiafheimbrá Þar sem systumar þekkja orðið land og þjóð svona vel þykir blaðamanni óhætt að spyrja hinnar ofnotuðu en óumflýjanlegu alíslensku þjóðrembu- spumingar; „how do you like Iceland?“ Eða „hvernig líkar ykkur á íslandi?" á hinu ylhýra. Pentecostés: „Mjög vel, hér er allt í lagi að vera og okkur gengur vel hérna. Við gemm í rauninni það sama og heima eins og að sofa, borða og spjalla en allt annað er öðruvísi. Maturinn, veðrið, önnur þjóðtrú. Argentína er hins vegar risastór með mikinn mannfjölda og meirihlutinn er kaþólskrar trúar." Máe de Deus: „Það er bara eðlilegt að við söknum stundum íjölskyldna okkar og foðurlandsins en við grátum ekki“ segir systir Mae de Deus, hlæjandi þegar þær em spurðar hvort heimþráin sæki að þeim. Máe de Deus/Pentecostés: „Ættingjar okkar hafa ekki enn getað heimsótt okkur hingað því það er langt að fara og ferðalagið er mjög dýrt. En við höldum góðum tengslum með því að hringjast á, skrifa bréf og senda tölvupóst. Við tökum líka fullt af myndum og sendum heim frá íslandi." Systurnar segjast ekki vita hvað þær verði hérna lengi áfram en þær bíði sallarólegar eftir frekari boðum um það frá yfirboðurum sínum. Pentecostés: „Aðeins Guð almáttugur veit það. Þannig er líf hinna trúuðu, við erum trúboðar og við vitum ekki hvert eða hvenær við fómm næst.“ Þrátt fyrir óvissuna sem tilheyrir lífi trúboðans, er ljóst að systumar taka virkan þátt í íslenskum hversdagsleika enda bíður þeirra lærdómur fyrir lokaprófið í Beygingarfræði II, strax að loknum síðkvöldverði. Nina Margrét Jónsdóttir nmjl@hi.is 261 Stúdentablaðið

x

Stúdentablaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Stúdentablaðið
https://timarit.is/publication/350

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.