Stúdentablaðið

Árgangur

Stúdentablaðið - 01.05.2007, Síða 30

Stúdentablaðið - 01.05.2007, Síða 30
Ýmislegt Félagslega meðvitaður Hulk Þegar margir hugsa um Hulk dettur þeim helst í hug stóra græna risann sem brýtur og bramlar allt sem í vegi hans verður. Þeir sem vita örlítið meira um kappann vita að hann er einungis afsprengi reiði David Banner, þ.e. í hvert skipti sem manngreyið pirrast upp umbreytist hann í stóra græna ferlíkið. Ég kláraði BA gráðu í félagsfræði fyrir þremur árum og hef alla tíð síðan verið mikill áhugamaður um fræðirit er tengjast félagslegum vandamálum. Afbrotafræðin var mér sérlega hugleikin. Einfaldlega allt sem opnar augu manns fyrir bágum aðstæðum tiltekinna hópa í samfélaginu finnst mér áhugavert og ég gef því sérstakan gaum. Sökum góðra minninga af gömlu sjónvarpsþáttunum um græna risann ógurlega þá stökk ég á að kaupa fyrstu seríu af Hulk. Síðan hef ég verið að kíkja á alla þættina sem ég kemst yfir og les mér til um þá sem ég á erfiðara með að nálgast. Eftir smá pælingu komst ég að því af hverju ég fæ eins mikla ánægju út úr þeim og raun ber vitni. Flestir þáttanna koma inn á félagsleg vandamál af einhverju tagi. Banner er talinn látinn svo hann er stöðugt á flótta til að ekki komist upp um hann. í hverjum þætti er hann í nýrri borg og neyðist ávallt tii að yfirgefa hvem stað í lokin. Hann fær forsmekkinn af öllum mögulegum vandamálumsemhannóvartsogastinn i. Meðal vandamála sem hann tekst á við eru barsmíðar á krökkum, margar tegundir af spilltri smábæjarpólitík, lánardrottnum sem hafa heljartök á atvinnurekendum í litlum hverfum, bágum aðstæðum svartra í Harlem hverfinu og eiturlyfjavandræðum hippakynslóðarinnar. Einnig fær hann smjörþefinn af vandamálum og aðstæðum heimilislausra, kynnist erfiðleikunum hjá fólki handan landamæranna sem reynir að smygla sér inn i fyrirheitna landið og sér svo beinum augum hve erfitt það reyndist fyrrum hermönnum Víetnam stríðsins að aðlagast samfélaginu á nýjan leik. Með reglulegu millibili reitir einhver Banner til reiði og þá birtist Hulk og tuskar þá aðeins til- Hulk þættimir hafa lifað ágætis lífi í gegnum árin og er það ekki tæknibrellum eða stórkostlegum átakasenum að þakka. Það hefur ekki farið fram hjá áhorfendum hve mikilli orku þættimir eyddu í að vekja athygli á ákveðnum málefnum. Meira að segja þóttu sumir þættir nýstárlegir, t.d. einn er varðaði stuld læknasamtaka á bömum. Samtök tóku nýfædd böm af bágstöddum mæðrum og lofuðu þeim góðum heimilum handa börnunum en vom að nota þau til DNA rannsókna. Það er gaman fyrir áhugamann um félagsleg málefni að fá vissan skammt í formi átakalítils skemmtiefnis. Efnistök þáttanna em kannski ekki brautryðjandi en þau fjalla á einlægan og fræðandi hátt um mörg mein í samfélaginu sem gott er að vekja athygli á. Svo spillir það ekki fyrir að fá græna risann að tukta illmennin aðeins til. Oddur Björn Tryggvason obtl@hi.is Stiörnumerkin Vatnsberinn 121. ian.-t9. feb.) Ef makinn öskrar framhjáhald segirðu já, bara til að vera nastý. Þú rekur höfuðið alls staðar upp undir því þú telur þig vera svo hátt yfir aðra hafinn. Vanheill Vatnsberi: Mozart, endaði sem glórulaus og auralaus alkó-hólisti. Fiskarnir [19. feb.-20. mars) Þú ert alltaf að læsa þig úti og manst aldrei hvar þú lagðir bíldmslunni. Ert viðkvæmur og hömndsár fylupúki sem felur sig í óhreinatauinu þegar vandamál banka á dymar. Fingralangur Fiskur: Ami Johnsen: finnst gaman að kýla. Hrúturinn (29. mars-20. apríl) Þú ert mddalegur og óþolinmóður skaphundur, sauðþrár besserwisser og fyrirlítur annað fólk. Háttsettur Hrútur: Tennessee Williams, þunglyndur dóp- og alkahólisti sem kafnaði á pilluloki. Nautið (20. apríl-21. maí) Þú ert húðlatur nískupúki, þröngsýnn og þrályndur þvermóðskuhundur sem étur eins og svín. Skiptir þér af öllu, en manst ekki eftir neinu. Napurt Naut: Adolf Hitler (morðóð geðveila sem skaut sig). Tvíburar (21. maí-20. júní) Þú ferð í bakaríið, kemur heim eftir viku og segir að dekkið á bílnum hafi sprungið (þú fórst fótgangandi). Tvöfaldur Tvíburi: Angelina Jolie, var með blóð úr fyrrverandi kærastanum sínum, Billy Bob Thornton, í nisti um hálsinn. Krabbi (21. iúní-22. júlí) Þú ert mislynd aurasál sem þolir ekki heimskingja og ert því í daglegum krossferðum að afhjúpa slíka þjóðfélagsþegna. Kol-crazy Krabbi: Mike Tyson, brjálaður boxari sem hefúr tileinkað sér eymanart listina. Ljónið (23. júní-23. ágúst) Þú ert ráðríkur, barnalegur og sjálfsupptekinn bruðlari. Þú ert ófær um að taka gagnrýni og ert alltaf að glápa á þig í spegli. Lasið Ljón: Ástþór Magnússon, friðarsinni, fyrrum forsetafram-bjóðandi, tómatsósusullari og jólasveinn. Meyjan (23. ágúst-23. sept.) Þú blaðrar út í eitt, gleymir að anda og það liður yfir þig. Þú ert smámunasamur nöldrari og taugaveiklaður baktalari. Morðóð Meyja: ívan grimmi, drap ófríska tengdadóttur sína fyrir ósæmilegan klæðaburð og drap óvatt son sinn fyrir afskiptasemina. Vogin (23.sept.-22.okt.) Þú ferð í Elko til að fjárfesta í hárblásara, hangir þar til lokunar, meltir möguleg kaup í ár og hættir svo við. Ef þú ert kona ertu vergjöm, ef þú ert maður ertu rola. Virk Vog: Oscar Wilde írskur leikritahöfundur, ljóðskáld og smásöguhöfundur (stunginn í steininn fyrir hommaskap). Sporðdrekinn (23. okt.-21. nóv.) Þú er kaldhæðin, yfirþyrmandi og stjómsöm orkuryksuga sem blaðrar öllu sem þér er treyst fyrir. Sögulegur Sporðdreki: Count Dracula frá Transylvaniu, drakk m.a. blóð og var trúlega ekki til. Bogmaðurinn (22. nðv.-21. des.) Þegar vandamál koma upp smíðar þú þér eldflaug og stingur af til tunglsins. Ert alltaf að móðga fólk með ómeðvituðum, en sármóðgandi athugasemdum. Baldinn Bogmaður: Beethoven, þunglyndur og heymaskertur snillingur. Steingeitin (22. des.-29.jan.) Þú ert tilfinningalega lokuð snobbhæna og nískur þunglyndissjúklingur með lamandi sjálfseyðingarhvöt. Sjúk Steingeit: Martin Luther King, siðlaus í kvennamálum. Vildi verða 125 ára, en var skotinn 39. 301 StúdentablaðiA

x

Stúdentablaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Stúdentablaðið
https://timarit.is/publication/350

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.