Alþýðumaðurinn - 22.12.1959, Blaðsíða 18
18
JÓLABLAÐ ALÞÝÐUMANNSINS
Þriðj udagur 22. desember 1959
Engíim
jólamatnr
er svo góður, að
FLÓRU-
GOSDRYKKIR
bæti hann ekki.
Efnagerðin F L Ó R A,
Sími 1700.
NÝIR ÁVEXTIR!
Epli — Bananar — Appelsínur.
NIÐURSOÐNIR ÁVEXTÍR!
Ananas — Anrikósur
Melónur — Plómur
Perur — Ferskjur
Koktail óvextir.
ÞURRKÁÐIR ÁVEXTIR!
Sveskjur — Rúsínur
Blandaðir óvextir.
NÝJA KJÖTBÚÐIN
Sími 1113
ORÐSENDIN G
til húsráðenda og húsmæðra frá
BRUNÁBÓTÁFÉLÁGI ÍSLÁNDS
Farið varlega með eldinn. Jólatrén eru bráðeldfim.
Ef kviknar í jólatré, þá kæfið eldinn með því að
hreiða yfir hann.
. Setjið ekki kertaljós í glugga eða aðra staði, þar
sem kviknað getur í gluggatj öldum eða fötum.
Gleðileg jól!
Farsælt komandi ór!
Ilmhertin
komin.
Stjörnu Ápótek.
LlNAN
BRUNÁBÓTÁFÉLÁG ÍSLANDS.
BGSDOt^GGGDOOtSOOOGGDOD
Nýtt safn listrænna frásagna af íslenzkum örlögum og eftirminnileg-
um atburðum eftir Jón Helgason, myndskreytt af Halldóri Péturs-
syni. Fyrri bók Jóns var tekið með kostum og kynjum jafnt af al-
menningi, sem gagnrýnendum. „Þessi liöjundur fer listamannsliönd-
um um efni sitt, byggir eins og listamaður af þeim efnivið, sem hann
dregur saman sem vísindamaður,“ segir dr. Kristján Eldjárn, þjóð-
minjavörður. Verð ib. kr. 175.00.
Vogrek
Frásagnaþættir ýmiss konar af þjóðlegum toga eftir Guðfinnu Þor-
steinsdóttur — skáldkonuna Erlu. Efni þáttanna er fj ölbreytilegt
og margt af því fólki, sem þar kemur við sögu, verður lesandanum
áreiðanlega minnisstætt. — Aður kom út bókin Völuskjóða eftir
Guðfinnu, frásagnasafn hliðstætt því, er hér birtist. -— Verð ib. kr.
138.00. .
Lögmól Parkinsons
Heimsfræg metsölubók eftir C. Northcote Parkinson prófessor í þýð-
ingu Vilmundar Jónssonar landlæknis. Ritdómari hins merka brezka
blaðs New Statesman segir um höfundinn: „Ég tel hann einn af
fyndnustu mönnum veraldarinnar.“ — Margar skemmtilegar mynd-
ir prýða bókina. — Verð ib. kr. 138.00.
Njósnarinn Sorge
Hér segir frá ævintýralegum ferli langfremsta njósnara í síðustu
heimsstyrj öld, dr. Richard Sorge, sem olli straumhvörfum í styrj-
öldinni. Sorge bar af öllum öðrum njósnurum, bœði fyrr og síðar,
og á sama hátt tekur bókin um hann fram öllum öðrum frásögnum
af njósnum og njósnurum. — Verð ib. kr. 158.00.
Grannur ón sultar
Nýjar vísindalegar tilraunir hafa varpað algerlega nýju ljósi á or-
sakir offitu og afsannað ýmsar eldr.i kenningar. Höfuðniðurstaðan
er sú, að enginn þarf lengur að svelta sig til að grennast. Menn geta
borðað sig vel sadda af kjarngóðum mat, aðeins ef þeir læra að forð-
ast kolvetnaríka fæðu. Þessi bók veitir ýtarlegar upplýsingar um
hinar nýju og árangursríku megrunaraðferðir. Kristín Ólafsdóttir
læknir þýddi bókina. Verð ób. kr. 55.00.
Teflið betur
Bók um skák í þýðingu Magnúsar G. Jónssonar menntaskólakenn-
ara. Einn af höfundum bókarinnar, dr. Max Euwe, er fyrrverandi
heimsmeistari í skák og hefir um áratugi verið einn ágætasti og
mikilvirkasti skákkennari í veröldinni. — Baldur Möller segir um
bókina: „Hún er ekki eiginleg byrjendabók, en setur fram á óvenju
skýran hátt undirstöðureglur liinnar rökvísu skákmennsku.“ — í
bókinni eru nálega 200 stöðu-myndir. — Verð ib. kr. 120.00.
Heimasætan snýr aftur
Spennandi og hugljúf ástarsaga handa ungu stúlkunum eftir Sigge
Stark, höfund hinna vinsælu bóka „Kaupakonan í Hlíð“, „Þyrni-
vegur hamingjunnar“ og „Skógardísin“. — Þetta er fyrsta bókin í
nýjum flokki hinna vinsælu „Gulu skáldsagna“. Verð ib. kr. 68.00.
Handa börnum og unglingum:
Fimm á Smyglarahœð, fjórða bókin í bókaflokknum um félagana
fimm. Áður eru komnar út: „Fimm á Fagurey“, „Fimm í ævintýra-
leit“ og „Fimm á flótta“.
Dularfulli húsbruninn, fyrsta bók í flokki hörkuspennandi leynilög-
reglusagna handa börnum og unglingum.
Baldintáta, fyrsta bók af þremur, sem ætlaðar eru telpum, og allar
fjalla um baldinn telpuhnokka, og dvöl hennar í heimavistarskóla.
En baldintáta litla er í rauninni bezta stelpa, hjálpsöm, réttsýn og
drenglynd, enda vegnaði henni vel í skólanum, þegar á reyndi.
Þessar þrjár bækur eru allar eftir Enid Blyton, hinn vinsæla og við-
kunna höfund Æfintýrabókanna, sem öll börn kannast við og eru
sólgin í að lesa. Allar eru þessar bækur prýddar fjölda ágætra
mynda. — Verð ib. kr. 65.00 hvér bók.
Ofantaldar bœkur fást hjá bóksölum um land allt og beint frá út-
gefanda. — Sendum burðargjaldsfrítt um land allt.
IÐUNN, Skeggjagötu 1. — Sími 12923. Reykjavík.