Listviðir - 07.04.1932, Qupperneq 8

Listviðir - 07.04.1932, Qupperneq 8
ElstvíÖlr 7. apríl 1952 KVIKMYNDflGflGNRÝNI Óþekkii hermaðurinn. „Óþekkti hermaðurinn“ er sérstæð kvik- mynd. Þegar kvikmyndir eru framleiddar án þess að vera eingöngu gerðar í gróðaskyni, en þaö er vitanlega mjög sjaldgæft, getur maður vænzt góðrar og sérkennilegrar kvikmyndar. „Óþekkti hermaðurinn“ er ein slík kvikmynd. Nokkrir menn hafa tekið sig saman um, undir stjórn Rússans Victor Trivas, að vinna fyrir hugsjón sína og gera kvikmynd þessa. Myndin er stríðsmynd, en friðarviljinn kemur í þessari mynd miklu skýrar í ljós en í öðrum stríðs- myndum, sem á sjónarsviðið hafa komið. Frið- arhugsjónin skín gegnum mestalla myndina, og ];að kemur skýrt fram, að mennirnir beggja megin stríðslínunnar, þótt þeir tali ólíkt mál, eiga margt sameiginlegt. í lok myndarinnar kemur hugsun þessi þó ekki nógu skýrt í ljós og myndin skilur áhorfandann eftir hálfgert í iausu lofti. Eins má ef til vill segja, að friðar- hugmyndir söguhetjunnar séu á köflum nokk- uð barnalegar, en eru þó alls ekki áberandi. Á jneðan skynsemis- og hugsjónakvikmyndirnar tilheyra vonaríkinu, er það stór kostur við þær, að þær hafa jákvæða stefnu. Fimm menn úr herfylkingum óvinaþjóðanna, Þjóðverji, Frakki, Englendingur, rússneskur Gyðingur og svartur listamaður hittast allir í gamalli smiðju á milli herlínanna, staðnæmast ]>ar einangraðir frá hinum skipulagða fjand- skap þjóðanna, öðru fólki og vinum. Þessi við- bruður er eftirtektarverður og vekur áhuga áhorfandans sökum fjölbreytni viðburðanna, hinnar auknu vináttu milli þessara manna og sökum þess hve allur leikurinn þarna er eðli- legur. Fjórir af mönnum þessum leika eins og niyndavélin væri í þúsund mílna fjarlægð. Aft- ur á móti leikur Valdimar Sakolow af miklum krafti og dýpt hlutverk klæðskerans, hins rúss- neska Gyðings. En það sem þar að auki gerir ,,Ó] ekkta hermanninn" sérstaklega eftirtektar- verðan eru þeir hlutar, sem sýna líf þessara fimm manna áður en þeir hittast þarna í „no man’s“ landinu. Þá eru samtímis sýndar mynd- ir frá París, Berlín, London og fleiri stöðum, þar sem maður fær að kynnast hinu hamingju- sama lífí þessara sömu fimm manna áður en ófriðurinn byrjaði. Síðan er byrjun stríðsins sýnd með öllum þeim hörmungum, þjóðernis- æsingaræður eru haldnar, nýliðarnir æfðir, herdeildirnar sendar til vígstöðvanna og' hinar sárustu kveðjuathafnir fara fram. Uppistöðu myndarinnar hefir Leonard Frank samið og hefir honum tekist að fá gott sam- ræmi í myndina þrátt íyrir að atburðirnir ger- ast á svo mörgum ólíkum stöðum. Af öllum þessum atburðum og persónum gefur Trivas iifandi og áhrifaríkar myndir. Sem dæmi má nefna ástarsögu unga Frakkans — hversu mikill yndisleiki og fegurð er ekki yfir henni! Stundum er það sýnilegt að stjórnandinn hefir verið neyddur til, sökum fjárskorts, að þjappa efninu mikið saman. En það hefir oft sýnt sig að listin sjálf hefir unnið á því, svo það virðist nauðsynlegt að láta góða kvikmynda- stjórnendur, hafa stundum minna fé og tæki til umráða en þeir efu vanii' við. Þetta er eitt af því, sem þessi „filma“ hefir kennt okkur. „Óþekkti hermaðurinn" er án efa ein bezta kvikmynd, sem komið hefir á þessu ári. KVIKMYNDIR, SEM KOMA í þessum mánuði sýnir NÝJA B]Ó meðal annars “Ljóshaerði nætur- galinn«, sem Else Elster og" Arthur Hell leika aðalhlutverkin í og »Falski eiginmaðurinn« með Johannes Riemann og Maria Pandler í aðalhlatverkunnm. Þessar myndir eru frá UFA-kvikmyndafélaginu, Úr myndinni East Lynne, sem sýnd var í Nýja Bíó 2. páskadag. 8

x

Listviðir

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Listviðir
https://timarit.is/publication/599

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.