Listviðir - 07.04.1932, Blaðsíða 10

Listviðir - 07.04.1932, Blaðsíða 10
£ 1 s t v i ð í r 7. apríl 1932 Húsið, sem jjeymir frægustu myndhöggvaralist íslands og þann sem”skapaði h'ana, Einarþ’Jónsson.' Ágætt. Barbro fór að blístra fjörlega, þótt hún væri að visna og deyja. Allt í einu skipti hún skapi. Hún hafði séð mynd sína í búðar- glugga. Hún stóð þarna brosandi, með ávalar rósrauðar kinnar, og glampandi augu. Það var eitthvað í augunum, sem minnti á rennandi læk, og rauðu varirnar mynduðu dálitla totu. TTún sveigði sig dálítið til; og athugaði hvort kápan færi vel. Jú — hún fór ágætlega. Barbro hélt göngunni áfram. Hún var nú i dálítið léttara skapi. Ekki dugði að vera svona þungbúin. Og svo var þetta rökkur, sem breytti allri grámyglunni í eitthvað blátt og létt, eins og kóngulóarvef í birtunni af götuljósunum. Þetta var allt annar Stokkhólmur en fyrri hluta dagsins. Nú var æfintýralykt úr hverri hliðargötu, og í kirkjuturnunum voru vinaleg ljós, sem litu út eins og dálítil tungl. Fólkið gekk hratt, en þó hljóðlega, eins og það gengi á mosa, — rökkurmosa. Þegar ein- hver gekk undir götuljós sást andlitið í bleiku skini, með augu sem líktust titrandi skuggum. Það var öfgakennt hvað fólk breyttist í rökkr- inu, bæði hið ytra og innra. Barbro leit í kring- um sig með blikandi augum. Æ, æfintýrið. Hvenær ætli það kæmi til hennar? Þetta heillandi rökkur. Var það ekkert ann- að en leiktjald, sem þegar hver vildi gæti horf- ið fyrir hversdagslegum sjónleik veruleikans? Nei, — Barbro fannst æfintýrið liggja í felum í rökkrinu. Það var eins og döggvuð blómkrónublöð kæmu við kinn hennar. Ein- hver var að hvísla. Lokkandi ástúðlegt hvísl, sem kom hjartanu til að slá hraðar. Hún mundi mæta einhverju — einhverju — hérna — núna. Maður mundi koma fram úr hinum reikandi skuggum, rétta út hendina, og leiða liana brott með sér. — Hvert —? Það vissi hún ekkert um. Og svo—? Já, svo mundi hún elska og verða elskuð, eins og stóð í skáld- sögunum. Þarna var stór og bjartur gluggi á blóma- sölubúð. Glugginn sendi elfu af björtu Ijósi út á dimma götuna, og í Ijóselfu þessari fannst Barbro sem hún sæi fljóta hina undraverðustu liti, þúsundum saman, eins og skrautlegu blóm- in innan við rúðuna leystust upp i kristaltæru vatni og blönduðu litum sínum í það. Barbro staðnæmdist við gluggann. Þarna stóð hún, ung og lagleg stúlka, ennþá óþrosk- uð, með útlimi, sem aldrei gátu verið kyrrir, og með í’ökkuraugu, eins og aðrir, stór, titr- andi, eins og hinir reikulu skuggar í strætinu. Meðal blómanna lýstu nokkur brönugrös. Já, þau lýstu, eins og logi hefði verið tendraður í þeim. Barbro fanst þau í fyrstu vera dæmalaus að fegurð, en grænu brönugrösin voru óhrein, eins og þau hefðu vaxið í göturæsi. Þau litu út fyrir að vera með eitruðum flekkjum. Og þessi rauðu. Þau voru ekki verulega rauð. Nei, lituð af sjúku blóði, sem hafði gert þau krækl- ótt. Og ennfremur. — Augu Barbro stækkuðu. ITvaðan komu þessar undarlegu jurtir? Þær voru ekki í samræmi við hinar. Þær voru svo veikbyggðar, en höfðu þó eitthvað illilegt við sig. Já, — eitthvað ljótt. Þær neyddu fram hugsanir hjá Barbro, drógu þær út úr siálu hennar, með köldum kræklóttum fingrunum. Æfintýrið, sem hana hafði dreymt um fékk allt í einu ákveðna lögun, varð að einhverju undarlegu, — brönugrasi —. Fýsnafullu sam- bJandi af heitu blóði og kulda. Af svölum skógarhreinleik, og óafmáanlegum blettum. Var æfintýrið þannig. — Hú — Hún kærði sig ekki um það. Hún vildi komast heim. í litla herbergið sitt með hvítu húsgögnunum á bak við læsta hurð. Þar væri óhultara að sökkva sér niður í draumóra. Barbro leit í kringum sig hálfóttaslegnum augum. Já, hér voru engir veggir. Götuskarkalinn heyrðist rétt hjá henni. Bifreið þaut framhjá og sletti nokkrum drop- um af for á bláa kjólinn hennar. Næst þegar Barbro leit upp, stóð maður hjá henni. Augu hennar mættu glettnislegum, Frh. á síðu 15. lO

x

Listviðir

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Listviðir
https://timarit.is/publication/599

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.