Listviðir - 07.04.1932, Side 15

Listviðir - 07.04.1932, Side 15
E í s t v í ð ! x 7. apríl 1952 Frh. frá síðu 10. gráum augum. Andlit hans sást óglöggt. Hann hafði þi’ýst barðastórum hatti ofan á ennið. „Ungfrúin dáist að blómunum“, sagði hann. Ilann hafði hljómfagra rödd. „Já, það geri ég“, sagði Barbro. Hversu oft hafði ekki móðir hennar varað hana við því að svara mönnum, sem yrtu á hana á götunni. Nú var það gleymt. Hún benti á brönugrösin. „Draumablóm“, sagði hann. Barbro kinkaði kolli alvörugefin. Einmitt. — Hann hafði rétt að mæla. Þetta voru drauma- blóm. Þau höfðu læst klónum í hjarta hennar. „Til eru konur“, hélt hann áfram, „fagrar ]<onur, sem elska brönugrös. Þær heimta brönugrös, mergð af þeim. Ef til vill eru þau svona dýr vegna þess“. Hann hló. — Þurrum hatursfullum hlátri. „Eru þau þá svo dýr“, spurði Barbro ein- feldnislega. Allt í einu fékk hún ákafa löngun til að eiga brönugrösin. Það var ekkert undarlegt þó feg- urðin væri dálítið hátt verðlögð. Að ímynda sér annað eins. Að hafa brönugrös í herberg- inu sínu. Hún mundi gæta þeirra eins og sjá- aldurs augna sinna. Enginn annar en hún skyldi fá að snerta þau. Iienni kom ekki til hugar að þau visnuðu sem önnur blóm. Nei, þau lifðu ætíð, undarlegu, óendanlegu lifi. Þau þekktu ekki orðið „seigdrepandi". Þarna var orðið aftur. Seigdrepandi. Henni hafði nýlega dottið í hug að hún væri að far- ast á þann hátt. Og æfintýrið. Það breytti aftur lit. Varð hugðnæmt. Barbro stalst til að líta á manninn, sem stóð hjá henni. Var þetta hann? Mundi hann taka í hönd hennar og leiða hana langt brott? Nú tók hann til máls aftur; en hún heyrði varla hvað hann sagði. Orðin klingdu í eyrum henn- ar. Henni fundust brönugrösin ekki lengur ljót. Blöð þeirra breiddust út eins og vængir. Þau hlutu að flögra út í gráan geiminn eins og töfrafiðrildi. Hvar sem þau færu yfir mundu hrjóta af þeim blóðdropar og gullkorn, svo að myrkrið breyttist í rökkur. Þau voru sýnis- horn af fjarlægu landi. Dýrðarlandi, þar sem sólin skín ætíð í heiði, og menn ganga höndum tengdir og allsnaktir. Blár særinn kyssir ströndina með blíðlegum ölduslætti silfurtærra smábára, og seglbátar bruna til og frá. Báts- menn syngja söngva um ást og hamingju á bljómfagurri tungu. Nú heyrði Barbro rödd mannsins rétt við eyrað á sér. „Má ég bjóða ungfrúnni eitt brönugras. Bar- bro rétti ósjálfrátt hendina fram. BrönugrasT Brönugras! Þama var æfintýrið að koma til hennar. Hefði hún aðeins brönugrasið í höna- unum, skyldi hún stýra beint út á blátt blik- andi hafið. Gleymdur var skólinn, erfiðu kennslustund- irnar, óþjála röddin kennslukonunnar, hvísl stúlknanna, og skóhljóðið á grófu gólfinu. — Heimilið sökk í gegnurn op, niður í kjallarann, þar sem því bar að vera. Það sökk hægt og hægt, með dökkleitum gluggum, hurðarskell- um, og áminnmgum. Hún, Barbro, skyldi grípa æfintýrið og finna hin mjúku blöð brönugrasanna koma við hend- ur sér. Ætli þau hafi þyrna líka. Mundu þau ef til vill klóra dálitla rispu á hörundið, svo blóðið læki niður í dropatali? ó, hvað hún var heimsk. Brönugrös hafa enga þyrna. „Þökk fyrir, já“, sagði hún andstutt og utan við sig. Og hún varð ekkert undrandi þegar maður- inn opnaði hurðina, og gekk inn í búðina. Iiún stóð kyr við gluggann, titrandi af eftir- . æntingu. 1 ^ Tlann var nú að tala við búðarstúlkuna. Hún var lítil, Ijóshærð og var hárið hrokkið. Barbro sá gegnum gluggann glampana af spegilfægð- lim nöglum hennar. Þau töluðu um urönugrös. Hann ætlaði að kaup þau handa henni. Barbro þrýsti sér þétt að rúðunni. Henni fannst sem hún væri í ætt við þessi undarlegu lýsandi blóm. f blómkrónunni voru falin lítil andlit. Hún gat aðeins greint þau. Henni fannst þau kinka kolli til sín. Allt hið ljóta var nú horfið, þar sem hún átti nú að eignast þau. Henni fannst sem klukknahljómur allt í kring um sig; eins og haustið væri að hverfa brott með klingjandi falli visinna laufa og raki’i skæðadrífu, en í staðinn kæmi vorið og breiddi út ljósgræna kyrtilinn sinn. Hlýir vindar blésu í andlit henni. Vorið. Þráin. Ákafur hjartsláttur ungrar stúlku. Dunk-dunk-dunk —. Nú kom maðurinn nær, og gekk á móts við gluggann. Búðarstúlkan 15

x

Listviðir

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Listviðir
https://timarit.is/publication/599

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.