Heimir : söngmálablað - 01.01.1937, Blaðsíða 31

Heimir : söngmálablað - 01.01.1937, Blaðsíða 31
B. A.: Edward Grieg 25 E D W A R D G R I E G. EFTIR BALDUR ANDRÉSSON. Á síðustu öld komu fram í Noregi merkir menn á sviði bókmennta og lista, sem gerðu garðinn frægan. Stórskáldin Ibsen, Björnson, Lie, Kjelland og siðar Ham- sun, drógu atbygli lxins menntaða bejms að Noregi og norskri menningu. Og um leið kom Edward Grieg fram og sannfærði heiminn um, að til væri sjálfstæð norsk tónlist. Áður bafði þýzk tónlist setið að völdum á Norður- löndum. Um sjálfstæða og þjóðlega tónlist var ekki að ræða fyrir norðan Þýzkaland. Danska tónskáldið Gade hafði um miðja 19. öldina fundið norrœnan tón í hörpu sinni og varð frægur fyrir. En rétt á efiir óm- aði nýr tónn — lær og þróttmikill. Menn lögðu við hlustirnar. Nýr heimur opnaðist. Norsku þjóðlífi var lýst í tónum. Dimmblá fjöll og grænar lilíðar spegl- uðust í lygnum vötnum og djúpuin fjörðum. En það var nykur i vötnum, skrímsli í fjörðunum, tröll i í'jöll- unum og huldufólk í hólum. Nýr tónn var fundinn. Nýtt land var numið. Nýjum kapitula varð að bæta við músiksöguna, sem hét „Norsk tónlist“ eða „Edward Grieg“. Ættin. Bernskuárin. Edward Grieg er fæddur í Bergen 15. júní 1813. Hann er af góðum ættum. Móðurættin er kennd við Ilagerup biskup, niðja æfintýramannsins Kjeld Stub, sem uppi var á 17. öld, og eru til margar sögur af æfintýrum hans, gázka og gletni. Langafi Griegs í móðurættina var biskup og afi hans var stiftamtmaður. Móðir hans, Gesine Judith Iiagerup, giftist enska konsúlnum i Ber- gen — Alexander Grieg, skozkum kaupmanni. Sumir ættfræðingar vilja rekja föðurætt Griegs til skozka ad-

x

Heimir : söngmálablað

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Heimir : söngmálablað
https://timarit.is/publication/601

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.