Heimir : söngmálablað - 01.01.1937, Síða 40

Heimir : söngmálablað - 01.01.1937, Síða 40
Baldnr Andrcsson 34 stakt í sinni röð; það er sem maður sjái fyrir sér þung- stigt tröllið, en óðar sækja að púkar og smá drisildjöfl- ar, og magnast þeir með hverjum takti, svo þeir að lokum ætla mann alveg að æra. „Illur er karlinn, en verri eru þeir ungu.“ — Úr þremur fyrstu nótunum í Sólveigarsöngnum bjó Grieg lil stefið í „Dauða Ásu“. Lagið er meira en nafnið felur i sér: Það er í raun og veru lýsing á dauðanum, og jafnframt á lifinu. I fyrra hluta lagsins er stöðugur stígandi — vöxtur — en síð- an er hyrjunarstefinu snúið við, — lífskrafturinn þverr- ar — og laginu lýkur með þungum stunum — lífið fjar- ar út. — Grieg samdi einnig lög við nokkur kvæði el'tir Ibsen. Þektust eru: „Vöggusöngur Margrétar“ og „Svanur“. Ibsen og Grieg skópu þessi meistaraverk saman. Báð- um fannst þeir vera í ættlandi sínu rödd lirópandans í eyðimörkinni. Þeir áttu sömu vini og óvini, sömu liug- sjónina, en þó var ávallt fjarlægð milli þeirra. Þeir voru ólikir menn. Þegar þeir mættust á götu, tóku þeir djúpt ofan livor fyrir öðrum, alvarlegir á svipinn, en skiptust sjaldan á orðum eða þrýstust i hendur, heldur gengu hnakkakertir hvor sina leið. Grieg kvaðst liafa varið meiri vinnu i að fága slílinn á hréfum sínum til Ibsens en liann varði i að fága tónsmíðar sínar, og var hann þó vel ritfær. Björnson. Aftur á inóti voru jieir Grieg og skáldið Björnstjerne Björnson einlægir vinir, og var Grieg heimagangur hjá honum. Björnson var það áhugamál, að samin yrðu lög við kvæðin sín. Hann sagði, að kvæðin ættu að syngjast inn i fólkið. Nordraak frændi lians liafði sam- ið lagið við „Ja vi elsker dette landet“, og músikina við leikritið „Maria Stuart i Skotiandi“ o. fl. eftir hann. En Nordraak dó 24 ára gamall. Björnson hélt nú, að Grieg væri einmitt rétti maðurinn. Grieg samdi líka

x

Heimir : söngmálablað

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Heimir : söngmálablað
https://timarit.is/publication/601

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.