Búnaðarrit - 01.06.1918, Qupperneq 14
140
BÚNAÐARRIT
en að þau hafl reynst tiltölulega hlý flestölJ, því hlýtt
má það hús heita, sem hvergi frýs í, þó upphitun sje
af mjög skornum skamti, en svo mun víðast vera.
Og þó verður vart við raka í öllum húsunum nema
einu (nr. 11), en líklega er reynslan þar heizt til stutt.
Að vísu er víða aðeins að tala um lítinn rakavott, en
þó bendir þetta til þess, að annaðhvort þurfl meira að'
hita húsin eða gera veggina enn hlýrri, með öðrum
orðum að gera tróðið þyJckara, t. d. 10—12". Þætti
mjer ekki ólíklegt, að sá siður komist á og gæfist vel..
Þá er annað atriði, sem eflaust þarf endurbóta viðt
gluggar og umbúnaður þeirra. í öllum húsunum nema
einu (nr. 4) eru einfaldir gluggar. Það borgar sig vel að
gera þá tvöfalda, eykur hlýindin til góðra muna. Þá
geri jeg ráð fyrir, að víða sje ekki svo vel um glugg-
ana búið sem æskilegt væri, enda erfitt að þjetta tryggi-
lega rifuna milli gluggakistu og steinveggjarins.
Það má nú telja fullreynt, að hús með tvöföldum
steinveggjum og 5—6" tróði milli veggja, úr mómylsnu
eða þurru torfl, reynist hlý og að mestu rakalaus. Auð-
vitað er þetta byggingariag ekki svo gott sem æskilegt
væri, því bæði er það alldýrt og ýmsir erfiðleikar stafa
af því að tróðið sígur. Væri það hin mesta framför, ef
það tækist að gera hlýja steypu innan útveggjanna,
sem vaéri svo sterk að spara mætti innri veggina.
Jeg skal þá drepa á nokkur önnur atriði í fám
orðum.
Stœrð húsanna er frá 12 X 12 ál. upp í 21 X 14,-
(Munkaþverá), meðalstærðin náíægt 12 X 14 ál. Öll
húsin eru einlyft nema eitt, öll með kjallara nema eitt,
flest með „porti" að því sjeð verður. Hæðin undir loft
í íbúðarherbergjum er minst 38/r al., mest 43/r al., víð-
ast 4 al., sem er mjög viðunandi stofuhæð á bænda-
býlum, en má þó heizt ekki minni vera.
Hús þessi ættu í raun og veru að vera nægilega